Morgunblaðið - 29.06.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
46.900.000,-
Grettisgata 31, 101 Reykjavík
& 585 8800
Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum
Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800
Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515
Herjólfsstígur 16, 801 Selfoss
Fallegt sumarhús
Fallegt sumarhús við Herjólfsstíg í Ásgarðslandi í Grímsnesi. Húsið var byggt
árið 2006. Eignin er á eignarlóð sem er tæpur 1 hektari að stærð (8.927m2).
Eignin skiptist í setustofu, eldhús, baðherbergi og 3 svefnherbergi. Frá húsinu
er fallegt og víðáttumikið útsýni að Ingólfsfjalli.Timburpallur er í kringum
húsið. Hitaveita er á svæðinu og er húsið hitað upp með gólfhita.
32.000.000,-
32.600.000,-
Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja endaíbúð
Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja endaíbúð - seljandi greiðir
yfirstandandi framkvæmdir á húsinu. Íbúðin skiptist í rúmgott endurnýjað
eldhús, svefnherbergi, stofu með útgengi á svalir, baðherbergi. Geymsla og
sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Gnoðarvogur 26, 104 Reykjavík
53.800.000,-
Falleg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð - jarðhæð
Falleg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og
afgirtri verönd við Maríubaug í Grafarholti. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu
með útgengi á afgirta verönd, þrjú svefnherbergi, baðherbergi. Þvottahús
og geymsla eru innan íbúðar. Vel staðsett íbúð á fjölskylduvænum og
rólegum stað. Golfklúbbur Reykjavíkur í Grafarholti í göngufæri.
Maríubaugur 119, 113 Reykjavík
Opið hús
þriðjud. 2. júlí
17:15 til 17:45
Opið hús
sunnud. 30. júní
14:00 til 16:00
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í reisulegu steinhúsi við
Grettisgötu. Íbúðin skiptist í forstofu, setustofu og borðstofu þar inn
af sem unnt er að nýta sem svefnherbergi, rúmgott hjónaherbergi með
fataskápum og baðherbergi. Sameign er snyrtileg.
Allir vita í hvílíkar ógöngurrekstur höfuðborgarinnar
hefur lent eftir að Dagur B.
Eggertsson kom krumlunum í hann
og hvernig hin botnlausa eyðsla þar
á sér engin takmörk.
En víðar er potturbrotinn.
Styrmir
Gunnarsson skrifar í
pistli sínum:
Í Morgunblaðinu er birtathyglisvert línurit um mesta
fjölgun starfa á árunum 2010-2018.
Þar kemur fram að opinberstjórnsýsla er í sjöunda sæti
yfir þær starfsgreinar, þar sem
fjölgun er mest og að þar er meiri
fjölgun en í heilbrigðisþjónustu.
Getur verið að þetta sé eðlilegþróun?
Kannski er tímabært aðRíkisendurskoðun geri
ítarlega úttekt á opinberri
stjórnsýslu af því tagi, sem
stofnunin er að kynna í dag
varðandi Íslandspóst?
Hins vegar ber frétt blaðsins,sem línuritið fylgir þess
merki, að rækilega hafi verið tekið
til í fjármálageiranum á einum
áratug, alla vega í sumum hlutum
hans.
Á árunum 2008-2010 fækkaði um1.300 manns í þeim geira og á
árunum 2010-2018 fækkaði um
1.100 manns til viðbótar.
Kannski getur opinberstjórnsýsla eitthvað lært af
fjármálageiranum?“
Styrmir
Gunnarsson
Stjórnlaust bruðl
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Um 33% aukning varð á milli áranna
2018 og 2019 á umsóknarfjölda til
háskólanáms við Landbúnaðarhá-
skóla Íslands (Lbhí). Aðsókn í skóg-
fræði og náttúru- og umhverfisfræði
tóku hástökk en báðar brautir um
þrefölduðu sinn umsóknarfjölda.
Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu
skólans. Haft er eftir Ragnhildi H.
Jónsdóttur brautarstjóra í náttúru-
og umhverfisfræði við Lbhí, að sjá
megi af mikilli fjölgun umsókna í
náttúru- og umhverfisfræði að um-
ræða samfélagsins hreyfi við og
unga fólkið vilji sækja sér menntun
þar sem viðfangsefnið er m.a. hvern-
ig draga megi úr neikvæðum áhrif-
um á umhverfið.
„Það er virkilega ánægjulegt að
þetta þverfaglega nám sem við bjóð-
um veki athygli og greinilegt að
þetta höfðar til fólks. Umsækjendur
okkar hafa mjög ólíkan bakgrunn og
það er kostur, því þannig koma inn
ólík sjónarmið, sem gerir að námið
verður ennþá betra og skemmtilegra
fyrir vikið, bæði fyrir nemendur og
kennara,“ segir hún.
Fram kemur að góð aðsókn var
einnig í meistaranám þar sem tals-
verð aukning varð á umsóknum í
rannsóknamiðað meistaranám sem
og í doktorsnám við skólann. „Sam-
bærileg aðsókn og í fyrra var í nám í
búvísindum og umhverfisskipulagi á
BS stigi og eins verður nú tekið inn í
BS nám í hestafræði sem er braut
sem LbhÍ og Háskólinn á Hólum
bjóða upp í samstarfi,“ segir þar.
Alls bárust 50 umsóknir um nám í
búfræði á starfsmenntastigi en
vegna fjöldatakmarkana í það nám
var einungis um helmingur umsókn-
araðila tekinn inn. „Í garðyrkjufræði
á starfsmenntastigi er tekið inn ann-
að hvert ár, síðast haustið 2018 og
þar af leiðandi næst haustið 2020. Í
endurmenntunardeild voru um 40
umsóknir í Reiðmanninn sem fer af
stað á 3 stöðum á landinu í haust.“
omfr@mbl.is
Metaðsókn í nátt-
úru- og skógfræði
Umsóknum fjölgaði mikið við Lbhí
Morgunblaðið/Eggert
Skógur Fjöldi umsókna í skógfræði
í Lbhí þrefaldaðist á milli ára.
Verklegar framkvæmdir eru að
hefjast við lagningu Kröflulínu 3.
Hún er ný háspennulína sem tengir
saman raforkukerfin á Norðaust-
urlandi og Austurlandi.
Unnið hefur verið að undirbún-
ingi vinnubúða Landsnets í Möðru-
dal og er verið að flytja eining-
arnar á staðinn þessa dagana.
Bosnískur verktaki sem reisir
möstrin og annast uppsetningu lín-
unnar mun hafa þar aðstöðu og
einnig ÍAV sem annast jarðvinnuna
á milli Jökulsár á Fjöllum og Jök-
ulsár á Dal.
Jarðvinnan var boðin út í þrennu
lagi. Nokkrir verktakar í Þingeyj-
arsýslum annast vestasta hlutann,
ÍAV miðhlutann og Þ.S. verktakar
á Egilsstöðum austasta hlutann.
Stika slóðir
Unnið er við að stika slóðir fyrir
vinnuveg á milli fyrirhugaðra
mastra og verður byrjað á slóða-
gerð á næstu dögum. Í Möðrudal
eru geymdar forsteyptar und-
irstöður undir leggi mastra og
stagfestur.
Háspennulínan verður 122 km að
lengd og verður byggð á svoköll-
uðum M-röramöstrum. Stefnt er að
því að framkvæmdum ljúki á næsta
ári og ný lína verði spennusett fyr-
ir lok næsta árs.
helgi@mbl.is
Framkvæmdir hefjast við Kröflulínu
Vinnubúðir settar upp og unnið að undirbúningi slóðagerðar við línuleið
Ljósmynd/Daníel Scheving Hallgrímsson
Möðrudalur Undirstöður vinnubúða.