Morgunblaðið - 29.06.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú er unnið af fullum krafti að gerð nýrrar tengi-
götu á milli Skúlagötu og Sæbrautar með tilheyr-
andi beygjurein og rofi í miðeyju Sæbrautar ásamt
uppsetningu nýrra umferðarljósa og gatnalýsingar.
Hin nýja tengigata er á móts við Frakkastíg, um
50 metrum vestar en sú gamla, sem er á móts við
Skúlagötu 20. Þegar ný tengigata hefur verið tekin
í notkun verður núverandi tengigata og það sem
henni tilheyrir fjarlægt og tyrft yfir svæðið.
Önnur gatnamót á Sæbraut tengjast þessu. Það
eru þrjú verkefni, tengd en þó aðskilin:
Endurgerð Frakkastígs á milli Skúlagötu og
Lindargötu með tilheyrandi lagnavinnu. Færa þarf
strætóbiðstöðvar og gera göngustíga. Leggja þarf
snjóbræðslu og lagnir veitustofnana.
Endurnýjun umferðarljósa og göngu- og hjóla-
leiða á gatnamótum Snorrabrautar og Sæbrautar
ásamt bættri lýsingu á gönguleiðir. Auk þess verð-
ur beygjurein og framhjáhlaup til austurs frá
Snorrabraut inn á Sæbraut aflagt.
Endurnýjun umferðarljósa og gönguleiða á
gatnamótum Katrínartúns og Sæbrautar ásamt
bættri lýsingu á gönguleiðir.
Umferðaröryggi er stærsti einstaki þátturinn í
þessum framkvæmdum, samkvæmt upplýsingum
Jóns Halldórs Jónassonar, upplýsingafulltrúa hjá
Reykjavíkurborg. Nýju gatnamótin verða ljósa-
stýrð og mun það bæta öryggi gangandi vegfar-
enda, en margir þeirra, sérstaklega ferðamenn,
fara þvert fyrir Sæbrautina frá Frakkastíg að Sól-
farinu og hefur þar oft legið við slysum. Á hinum
gatnamótunum eru það gönguleiðir og umferð-
arljósabúnaður, auk götulýsingar sem verður end-
urbætt.
Samið var við fyrirtækið Gröfu og grjót ehf. að
vinna verkið, í framhaldi af útboði. Stefnt er að
verklokum í ágústmánuði.
Morgunblaðið/sisi
Nýja gatan tilbúin í ágúst
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
SUMARÚTSALAN HAFIN
GÆÐAVARA Á EINSTÖKU VERÐI
20%
-70%
AFSLÁTTUR
SUMARYFIRHAFNIR
HEILSÁRSKÁPUR
FERÐAJAKKAR
FRAKKAR
Héraðsdómur Suðurlands hefur
dæmt bílstjóra rútu sem valt á Suður-
landsvegi 27. desember 2017 í sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi og
sviptingu ökuleyfis í tvö ár.
Tveir kínverskir ríkisborgarar lét-
ust og tveir slösuðust alvarlega í slys-
inu. Einn farþegana kastaðist út úr
rútunni og var látinn þegar við-
bragðsaðilar komu á vettvang.Tveir
farþegar voru fastir undir rútunni og
einn farþegi lést á sjúkrahúsi um
hálfum mánuði eftir slysið.
Héraðsdómur féllst á ákæru lög-
reglustjórans á Suðurlandi að bíl-
stjórinn hefði ekið of hratt miðað við
aðstæður og án nægjanlegrar að-
gæslu en hálka var á veginum. Einnig
að ákærði hafi með háttsemi sinni
unnið sér til refsingar, en samkvæmt
umferðarlögum skal jafnan miða öku-
hraða við aðstæður með sérstöku til-
liti til öryggis annarra. Einnig sé öku-
manni skylt að gæta þess að ökutæki
sé í góðu standi. Samkvæmt bíltækni-
rannsókn var hemlaleysi algjört á
tveimur hjólum hópferðabifreiðarinn-
ar. Þegar fólksbifreið fyrir framan
rútuna hægði á sér við útsýnisstað
reyndi bílstjóri rútunnar að hemla,
færði sig yfir á öfugan vegarhelming
og missti þá stjórnina.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Rútubíl-
stjóri
dæmdur
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Eftirvæntingu mátti greina meðal
ferðamannana sem fóru í gærmorg-
un í lundaskoðun frá Ægisgarði í
Reykjavík að Akurey, sem er út af
Ánanaustum. Á vegum Special
Tours eru gerðar út sjö lundaskoð-
unarferðir á dag frá Ægisgarði í
Reykjavík og til þeirra er helst not-
að Skúlaskeið, gamla Viðeyj-
arferjan.
Einstakur fugl
„Áhuginn á lundanum er mikill,
sem ég skil vel. Þetta er alveg ein-
stakur fugl; duglegur við að bjarga
sér og býsna klókur í lífsbarátt-
unni,“ segir Vera Sölvadóttir sem
er leiðsögumaður í ferðum þessum.
Fólk víða að úr veröldinni fer í
lundaskoðunarferðir og margir
vænta þess að geta klappað fugl-
unum eða tekið í fang sér. Svo gæf-
ur er lundinn þó ekki og landtaka
ekki gerleg í Akurey, sem er þess
utan alfriðuð.
„Við höfum skýrar vísbendingar
um að lundastofninn á Kollafirði sé
að styrkjast,“
segir Erpur
Snær Hansen,
líffræðingur hjá
Náttúrustofu
Suðurlands.
„Fuglinn virð-
ist hafa verpt í
kringum 10. maí
sem er talvert
fyrr en í með-
alári. Þá hefur verið einstaklega
sólríkt að undanförnu og vorblóm-
inn í sjónum því mikill. Þar má
nefna svifþörungana og sandsíla-
stofninn, sem er undirstaðan í fæðu
lundans, sem virðist vera að styrkj-
ast. Rannsóknir sem við gerum síð-
ar í sumar sem varpa betra ljósi á
framvinduna verða því spennandi.
Talið er að um 20 þúsund lunda-
pör eigi sér holur í Akurey. Einnig
er allmikið um lunda í Lundey og
varpið í Engey eflist smátt og
smátt. Annars staðar við landið
sjást merki um að lundastofninn sé
í sókn, eftir niðursveiflu í fimmtán
ár.
Líta á lunda í Akurey
Lundastofninn talinn vera að styrkjast Ferðamenn
flykkjast í ferðir á Kollafjörðinn Klókindi í lífsbaráttunni
Morgunblaðið/Eggert
Varp Talið er að í ár verpi um 20 þúsund pör í Akurey, en þar unir fuglinn sér vel eins og sést vel á þessari mynd.
Morgunblaðið/Eggert
Myndasmiðir Siglt er nærri fjöru og þá eru allar myndavélar dregnar upp.
Vera Sölvadóttir