Morgunblaðið - 29.06.2019, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK
Pétur Hreinsson
Þóroddur Bjarnason
Gengi krónunnar hefur veikst nokkuð
það sem af er ári sem vitanlega horfir
misjafnlega við innflytjendum og út-
flutningsaðilum. Gengisvísitala krón-
unnar, sem mælir vegið meðaltal
helstu gjaldmiðla gagnvart krónu,
stóð í gær í 186 stigum og hefur
hækkað um tæp 7% frá byrjun þessa
árs. Að sama skapi hefur gengi
bandaríkjadals gagnvart krónu
hækkað um 6,8% og gengi evru um
6,2% á sama tímabili.
Þrátt fyrir töluverða lækkun krón-
unnar á þessu ári telur Katrín Péturs-
dóttir, forstjóri Lýsis, að krónan eigi
enn aðeins eftir í land svo að „raun-
gengi“ fáist. 96% af tekjum Lýsis
kemur erlendis frá og margir þeir
samningar sem Lýsi hefur gert við
sína viðskiptavini eru gerðir ár fram í
tímann. Því hefur gengi krónunnar
afar mikið að segja um rekstrartölur
fyrirtækisins hverju sinni.
Í samkeppni við útlönd
„Ef við lítum á stöðuna á gengi
krónunnar í dag þá förum við að nálg-
ast það sem vil teljum vera raungengi.
Það er að segja, að það sé jákvæður
viðskiptajöfnuður og að útflutnings-
atvinnuvegirnir séu ekki að niður-
greiða innflutning. Fyrir útflutnings-
atvinnuvegina þurfum við alltaf að
hafa það hugfast að við erum í sam-
keppni við útlönd. Ef að gengi okkar
gjaldmiðils er rangt skráð þá hallar
náttúrlega á okkur í þeirri sam-
keppni,“ segir Katrín.
„Ég myndi halda að það væri raun-
hæft að hafa gengisvísitölu krónunn-
ar á bilinu 195-200. Við ættum að
reyna að miða við það,“ segir Katrín
og bætir því við að þá sé viðskipta-
jöfnuðurinn í ágætu jafnvægi, þá geti
útflutningsvegirnir stillt sig af og ver-
ið sterkir í sinni samkeppnisstöðu á
erlendum mörkuðum.
Lækkun hjálpar til
Kristófer Oliversson formaður
FHG – fyrirtækja í hótel- og gisti-
þjónustu, segir í samtali við Morgun-
blaðið að gengislækkun krónunnar
hjálpi vissulega til hvað varðar rekst-
ur fyrirtækja í greininni, en vegi ekki
upp áföllin sem orðið hafa á árinu.
Kristófer á þar við gjaldþrot WOW
air, verkföll og fleira.
Hann segir að það þurfi einbeittan
ásetning hjá erlendum ferðamönnum
til að sækja landið heim. „Við erum
því miður mjög dugleg að auglýsa að
við séum dýrasta land í heimi. Ef flug-
ið er dýrt og landið sömuleiðis, þá
þarf ferðamaður að vera mjög ein-
beittur í því að koma til landsins.“
Kristófer segir að bakslag sé komið
í gamla markmiðið hjá ferðaþjónustu-
aðilum hér á landi, að fá fram aukna
dreifingu ferðamanna um landið og
meiri dreifingu þeirra yfir veturinn.
„Þetta gekk rosalega vel, en nú er
árstíðasveiflan að aukast og menn
fara síður út á land. Að okkar mati er
það óásættanlegt að stjórnvöld legg-
ist ekki á sveif með okkur m.a. í mark-
aðs- kynningar- og sölumálum nú
þegar þjóðin horfist í augu við 100
milljarða samdrátt í útflutnings-
tekjum. Sértækan skatt eins og gisti-
náttaskatt á að fella niður umsvifa-
laust. Ef við ættum að nefna einhvern
einn aðila sem tapar mestu á sam-
drætti í greininni, þá er það ríkissjóð-
ur Íslands, sem sést á því að endur-
skoða þurfti fjármálaáætlun þegar sló
í bakseglin hjá okkur.“
Hvað næstu vikur og mánuði varð-
ar segir Kristófer að það sé áhyggju-
efni hvað verð á flugi til landsins hef-
ur hækkað mikið, og hljóðið í
mönnum í ferðaþjónustunni sé ekkert
rosalega gott. Óvissa sé mikil.
Jón Trausti Ólafsson formaður Bíl-
greinasambandsins, segir aðspurður
að vissulega hafi gengi krónunnar
áhrif á innflutning bíla, en á móti komi
að bílar séu skattlagðir eftir mengun
og útblæstri. „Hagstæðari vörugjöld
vegna sífellt umhverfisvænni bíla
vega upp á móti lægra gengi. Við finn-
um líka fyrir því að Íslendingar eru að
ferðast meira innanlands nú í sumar,
sem lýsir sér í meiri eftirspurn eftir
bílum og þjónustu,“ segir Jón Trausti.
Krónan nálgast raungengi
Gengislækkun vegur ekki upp áföllin sem orðið hafa í ferðaþjónustunni Lægri
vörugjöld umhverfisvænni bíla vega á móti gengisáhrifum Ásetningur einbeittur
Gengismál
» Gengisvísitala krónunnar
gagnvart helstu gjaldmiðlum
stóð í 186 stigum í gær og hef-
ur hækkað um tæp 7% frá
byrjun þessa árs vegna lækk-
unar krónunnar.
» Veikara gengi íslensku krón-
unnar hefur enn sem komið er
ekki vegið upp á móti áföll-
unum sem orðið hafa í ferða-
þjónustu.
Gengi krónu gagnvart bandaríkjadal og evru
Miðgildi, frá 2. janúar til 28. júní 2019
110
115
120
125
130
135
140
145
janúar febrúar mars apríl maí júní
Heimild: Seðlabanki Íslands
Bandaríkjadalur
Evra
116,64
124,46
133,4
141,7
Bílgreinasambandsins, segir að
fjölgun fargaðra ökutækja sé af
hinu góða. Þá sé bílafloti Íslend-
inga orðinn of gamall. „Bílafloti
landsmanna er yfir tólf ára gamall
að meðaltali. Við höfum talið að
eðlilegur meðalaldur flotans hér
ætti að komast í sjö til níu ár,“
segir Jón Trausti og bætir við að
forvitnilegt verði að fylgjast með
bílasölu næstu misseri. „Það eru
vísbendingar um að bílasala taki
við sér í haust og á komandi vetri,
enda eru margar spennandi bif-
reiðar væntanlegar,“ segir Jón
Trausti.
Allt bendir til þess að ökutækjum
sem fargað verður í ár muni fjölga
frá árinu 2018. Þá fer meðalaldur
ökutækja sem send eru til förgunar
hækkandi. Þetta kemur fram í töl-
um frá Úrvinnslusjóði sem Morgun-
blaðið hefur fengið aðgang að. Það
sem af er ári hefur 4.756 ökutækj-
um verið fargað. Til samanburðar
hafði 4.220 ökutækjum verið farg-
að yfir sömu mánuði árið áður.
Frá árinu 2010 hefur förgun bif-
reiða nær fjórfaldast og fátt bendir
til annars en að vöxturinn haldi
áfram á sama hraða næstu ár.
Jón Trausti Ólafsson, formaður
Förguðum ökutækjum fjölgar áfram
Morgunblaðið/Ómar
Bifreiðar Ökutækjum sem er fargað hefur fjölgað mikið milli ára.
● Í mars drógu
íslensk fiskiskip
afla að verðmæti
14,3 milljarðar
króna úr sjó.
Nemur aukningin
í mánuðinum
2,3% miðað við
sama mánuð í
fyrra. Verðmæti
botnfiskafla var
tæpir 12 millj-
arðar og jókst um 21,1%. Þar af var
þorskaflinn 8 milljarða virði sem er 1,4
milljörðum meira en í mars 2018. Af
uppsjávartegundum veiddist eingöngu
kolmunni en aflaverðmæti hans nam
um 1,7 milljörðum samanborið við 445
milljónir í fyrra. Engin loðna veiddist í
mars en árið 2018 nam verðmæti
loðnuaflans í sama mánuði 2,8 millj-
örðum króna.
Aflaverðmæti úr sjó
reyndist 14,3 milljarðar
29. júní 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.25 124.85 124.55
Sterlingspund 158.08 158.84 158.46
Kanadadalur 94.58 95.14 94.86
Dönsk króna 18.929 19.039 18.984
Norsk króna 14.587 14.673 14.63
Sænsk króna 13.391 13.469 13.43
Svissn. franki 127.1 127.82 127.46
Japanskt jen 1.1516 1.1584 1.155
SDR 172.63 173.65 173.14
Evra 141.3 142.1 141.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.1411
Hrávöruverð
Gull 1402.25 ($/únsa)
Ál 1802.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.05 ($/fatið) Brent
Heildarfjöldi seldra gistinátta dróst
saman um 10,2% í maímánuði, miðað
við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur
fram í nýbirtum tölum Hagstofu Ís-
lands. Í gögnunum kemur fram að
mesti samdrátturinn hafi átt sér stað
hjá aðilum sem miðla gistingu í gegn-
um Airbnb og áþekkar síður. Þar á
bæ nam samdrátturinn 29%.
Meðal hótela og gistihúsa var sam-
drátturinn mun minni eða 5,2% og þá
nam fækkunin hjá öðrum tegundum
gististaða 9,2%. Þrátt fyrir að sam-
dráttur sé í öllum flokkum gististaða
fjölgaði hins vegar gistinóttum á höf-
uðborgarsvæðinu milli ára eða um 2%
en um 57% allra hótelgistinátta á
landinu voru seld á því svæði. Þá
bornar saman við útgefnar tölur Ice-
landair Hotels sést að fyrirtækið hef-
ur aukið hlutdeild sína svo um munar
á markaðnum milli ára. Þannig seldi
fyrirtækið 28.717 gistinætur í maí eða
31% fleiri nætur en í sama mánuði í
fyrra. Í samtali við Morgunblaðið
segir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Icelandair Hotels,
að fyrirtækið hafi náð góðum árangri
í maí, ekki síst fyrir aukin umsvif
meðal ráðstefnu- og hvataferðahópa.
„Nýting hótela í okkar rekstri í
maímánuði var 83% í stað 73% í maí
2018 og það er einstaklega ánægju-
legur árangur í harðnandi umhverfi.
Aukning í maí var ekki einungis í
Reykjavík heldur einnig á lands-
byggðinni,“ segir Magnea og bendir á
að þrátt fyrir fækkun ferðamanna sé
tækifæri fólgið í að sækja í nýja
markhópa og standa undir vænt-
ingum þeirra með þjónustuna.
ses@mbl.is
fjölgaði einnig seldum gistinóttum á
Austurlandi eða um 17% og 11% á
Norðurlandi. Þungur samdráttur
varð hins vegar hjá hótelum á Suð-
urnesjum þar sem 25% færri gisti-
nætur seldust og þá mældist sam-
drátturinn í sama flokki 12% á
Suðurlandi.
Þegar tölur Hagstofunnar eru
Gistinóttum fækkar um 10%
Icelandair seldi
31% fleiri gistinætur í
maí nú en 2018
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Rekstur Hótelmarkaðurinn finnur
fyrir samdrætti í fjölda ferðamanna.
● Vöruskiptahalli
reyndist 18 millj-
arðar á fyrstu
fimm mánuðum
ársins. Þannig voru
á tímabilinu fluttar
út vörur fyrir 287,4
milljarða króna en
inn fyrir 305,4
milljarða. Er hallinn
mun minni nú en
yfir sama tímabil í
fyrra þegar hallinn var 63,8 milljarðar
króna. Vöruskiptajöfnuður reyndist því
45,8 milljörðum króna hagstæðari en á
sama tíma fyrir ári. Þetta kemur fram í
nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.
Sérstaka athygli vekur að verðmæti
útflutnings skipa og flugvéla nam 23
milljörðum króna á fyrstu fimm mán-
uðum þessa árs. Hefði þeirra ekki notið
við hefði hallinn því verið 41 milljarður
króna í stað 18 milljarða.
Hallinn 18 milljarðar á
fyrstu 5 mánuðunum
Flug Sala á flug-
vélum hafði áhrif.
STUTT