Morgunblaðið - 29.06.2019, Side 56
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stúdíó Norn, útgáfufyrirtæki Guð-
mundar Óla Scheving, hefur gefið út
nýjan hljómdisk, Á þjóðhátíð, en
hann hefur verið atkvæðamikill á
þessu sviði undanfarin fimm ár og
gefið út 14 plötur, þar af fimm með
eigin efni. „Ég hef samtals gefið út
50 lög eftir mig,“ segir hann.
Söngvaskáldið, sem notar höfund-
arnafnið Góli á diskunum, segist hafa
byrjað að semja lög á unglingsárun-
um. Hann hafi verið í bílskúrs-
böndum og einkum í tríóinu Einingu.
Félagarnir hafi viljað gefa út lögin en
þá hafi bara verið eitt hljóðver í land-
inu og eigandinn, Svavar Gests, hafi
ekki haft áhuga á svona gaurum. „Þá
keypti ég mér gamalt fjögurra rása
segulband og við tókum upp lögin
okkar í samkomusal Landsmiðjunn-
ar á Sölvhólsgötu,“ segir hann. „Ég
sagðist ætla að geyma lögin mín þar
til ég gæti gefið þau út sjálfur.“
Fyrsti diskur hans, Sporin í sál-
inni, kom út 2014. Spegillinn í sálinni
var gefinn út 2015 og Hvíslið í sálinni
2016. Ljóðin í sálinni, lög Guð-
mundar við ljóð Davíðs Stefáns-
sonar, kom út 2017. Gísli Kjaran
Kristjánsson, lærður trommuleikari,
er upptökustjóri Stúdíó Nornar og
útsetti lögin.
Meindýrin hugleikin
„Ég mæti í vinnuna snemma á
morgnana og byrja á því að taka lag
á gítarinn, opna sálina fyrir morg-
uninn,“ segir Guðmundur. „Tónlistin
hjálpar manni yfir allan daginn.“
Hann segist ýmist spila gömul lög
eða semja á morgnana. „Annars
kemur andinn yfir mig á ýmsum tím-
um.“ Hann segist eiga mörg lög í
handraðanum, ekki síst sjómanna-
lög. „Ég var á sjó í 31 ár og á hverri
plötu minni er sjómannalag en önnur
bíða betri tíma.“
Guðmundur hefur starfað sem
meindýraeyðir frá 2003, rekur sér-
verslun fyrir meindýravarnir, gaf út
bókina Meindýr og varnir 2004 og
hefur verið með fyrirlestra um mein-
dýravarnir í Landbúnaðarháskóla
Íslands. Auk þess hefur hann verið
með vikulegan þátt um skordýr og
fleira á Útvarpi Sögu frá 2007.
„Vegna veikinda í vetur varð ég að
hætta að vinna sem meindýraeyðir,
en ég held hinu áfram og hef meiri
tíma í tónlistina en áður,“ segir hann.
Bendir á í því sambandi að hann
dundi við að setja gamalt efni yfir á
diska, flakkara eða usb-kubba fyrir
fólk, sem getur ekki lengur spilað
efnið. „Meindýraeyðirinn fylgir mér
samt alltaf,“ segir hann.
Öll lög Guðmundar eru á Spotify.
„Eitt lag, „Ég græt inní mér“, er
hlaðið meiri tilfinningum en önnur,“
segir hann. „Við ákveðnar umræður
fyrir nokkrum árum opnuðust æðar
hjá mér og ég gaf út þetta lag sem ég
bjó til á unglingsárunum. Það er enn
í spilun og ég hef líka fengið góð við-
brögð við nýja disknum.“
Morgunblaðið/Hari
Þúsundþjalasmiður Guðmundur Óli Scheving, meindýraeyðir, útvarpsmaður og útgefandi, með nýja diskinn.
Opnar sálina með
gítarspili á morgnana
Guðmundur Óli Scheving eða Góli með nýjan hljómdisk
Söngkonan Ragnheiður Ólafsdóttir
og tónlistarmennirnir Hermann
Stefánsson og Snorri Skúlason
halda tónleika í Hallgrímskirkju í
Saurbæ í Hvalfirði á morgun kl. 16.
Efnisskráin verður fjölbreytt og má
á henni finna kveðskap, sálma og
þjóðlög og lög eftir Ragnheiði við
ljóð ýmissa skálda. Séra Hallgrímur
kemur við sögu og einnig verða
leikin nýrri lög við ljóð Einars Bene-
diktssonar, Ólafar frá Hlöðum og
fleiri. Tónleikarnir eru til styrktar
kirkjunni.
Hallgrímur í Saurbæ
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 180. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Kvartett söngkonunnar Stínu
Ágústsdóttur kemur fram á fimmtu
tónleikum sumardjasstónleika-
raðar veitingahússins Jómfrúar-
innar við Lækjagötu í dag kl. 15.
Með Stínu koma fram Kjartan
Valdemarsson á píanó, Þorgrímur
Jónsson á kontrabassa og Magnús
Trygvason Eliassen á trommur.
Lagavalið verður litað af ást og
friði. Tónleikarnir fara að vanda
fram á Jómfrúar-
torgi bakvið
veitinga-
staðinn og
er að-
gangur
að þeim
ókeypis.
Kvartett Stínu flytur
djass á Jómfrúnni
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Opnað verður fyrir félagaskipti í ís-
lenska fótboltanum á mánudaginn
og samkvæmt nýjum reglum verður
félagaskiptaglugginn nú opinn í
heilan mánuð, eða til 31. júlí. Í
Morgunblaðinu í dag er farið yfir
möguleg viðskipti félaganna tólf í
Pepsi Max-deild karla en sum þeirra
hafa þegar tryggt sér öflugan liðs-
styrk. »44
Hvaða viðskipti gera
félögin í glugganum?