Morgunblaðið - 17.08.2019, Side 11
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2019
„Þetta var sannkölluð ævintýraferð
og gekk öllum vonum framar,“ segir
Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins. Á
fimmtudag lauk hátíð Hróksins í
Kullorsuaq, 450 manna þorpi á sam-
nefndri eyju á 74. breiddargráðu við
vesturströnd Grænlands, með sirk-
ussýningu og fyrsta meistaramóti
bæjarins í skák. Meirihluti bæjarbúa
og nánast öll börnin í Kullorsuaq
tóku þátt í hátíðinni, þar sem gleðin
var allsráðandi. Hrókurinn skipu-
lagði hátíðina annað árið í röð í sam-
vinnu við heimamenn.
Sirkuslistamennirnir Axel Diego
og Roberto Magro voru með sirkus-
skóla fyrir börn og fullorðna og
slógu upp mikilli sýningu í íþrótta-
húsi bæjarins í hátíðarlok. Þeir voru
líka í föruneyti Hróksins til Kullor-
suaq í fyrra og segir Roberto að
Kullorsuaq sé einstakur staður. „Ég
hef sýnt og kennt í flestum heims-
álfum, en aldrei kynnst öðru eins og
hérna,“ sagði Roberto. Hann segir
að jafnt ung börn sem veðurbarðir
veiðimenn hafi sýnt einstaka takta
og hæfileika. „Það býr einhver gald-
ur hér í Kullorsuaq. Og að heilt þorp
taki þátt í hátíð af þessu tagi er óvið-
jafnanlegt.“
Hrafn kenndi skák í grunnskól-
anum, þar sem eru um hundrað
nemendur, og hann var ekki síður í
skýjunum með árangurinn. „Við bú-
um að heimsókninni í fyrra og þá
var stofnað skákfélag í bænum.
Börnin sýndu hreint undraverða
leikni við skákborðið og öll voru þau
jafn áhugasöm og yndislegt að upp-
lifa leikgleðina,“ segir Hrafn og
bætir við að undirbúningur fyrir
næstu hátíð í Kullorsuaq sé þegar
hafinn.
Heimsókn Liðsmenn Hróksins heimsóttu meðal annars leikskólann í Kull-
orsuaq með bangsa handa börnunum. Hér sést Hrafn Jökulsson með þeim.
Vel heppnuð hátíð
á afskekktri eyju
Frægðarför Hróksins til Grænlands
Stafrænu strætóskýlin sem Dengsi
ehf. setur upp fyrir Reykjavíkur-
borg verða 210 en ekki 50 eins og
sagt var í frétt Morgunblaðsins um
málið í gær. Rauntímaupplýsingar
um strætisvagnaferðir verða á 50
stöðum.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Skýlin verða ekki 50
talsins heldur 210
LEIÐRÉTT
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Falleg lífstíls- og heimilisvöruverslun í Kringlunni með virkilega flottar
vörur. Verslunin er ung að árum og þannig gefst tækifæri fyrir nýjan
eiganda að móta hana eftir sínum hugmyndum. Hagstæður
leigusamningur í boði.
• Framleiðslufyrirtæki á matvælasviði. Fyrirtækið fullvinnur ákveðnar
fiskafurðir og selur innanlands sem og erlendis. Það er í leigu-
húsnæði og býr við góðan tækjakost. Velta 200-300 kr. og afkoma
með ágætum.
• Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og
loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma.
• Bílaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem sér um minni háttar
viðgerðir og viðhald. Velta 90 mkr. Góður hagnaður.
• Rótgróin heildsala með sérhæfðar vörur fyrir byggingariðnað.
Velta 100 mkr. Góður hagnaður.
• Trésmiðja með 40 ára rekstrarsögu sem sérhæfir sig í innréttinga-
smíði fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er vel tækjum
búið og í eigin húsnæði. Velta 130 mkr.
• Fyrirtæki sem framleiðir ákveðnar tegundir einfaldra matvæla fyrir
aðra aðila á markaði. Töluverð sjálfvirkni þannig að kostnaði er
mjög stillt í hóf. Velta 100 mkr. og afkoman sérlega góð.
• Lítið ferðaþjónustufyrirtæki í góðum vexti sem býður fjölbreyttar ferðir
á Suðurlandi. Eigið húsnæði og góður búnaður. Velta 50mkr. Góður
vöxtur.
• Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit mað
hreinlæti á vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir.
Velta 100 mkr. og góð afkoma.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
LAXDAL SUMARSALAN
ÚTSÖLULOK
VERÐHRUN
60-70% afsláttur
+ Ýmsir aukaglaðningar
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
S í ð a n 1 9 9 5
TIL SÖLU FERÐAÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI Í SJÓFERÐUM
VIÐ ÍSAFJARÐARDJÚP OG NORÐANVERÐA VESTFIRÐI
R e y k j a v í k – S n æ f e l l s b æ – H ö f n H o r n a f i r ð i | S í m i 5 8 8 4 4 7 7 | w w w . v a l h o l l . i s
Um er að ræða rótgróin (um 30 ára) rekstur Sjóferða Hafsteins og Kiddýjar
á Ísafirði sem hefur frá upphafi komu skemtiferðaskip til Ísafjarðar séð
alfarið um þjónustu við ferðaenn skipana ásamt alhliða sjóferðaþjónustu
á svæðinu. Til sölu eru allir þrír bátar fyrirtækisins sem taka 30, 38 og 48
farþega með öllum búnaði til farþegaflutninga. Þjónustuhúsnæði við sér-
hæfða bryggjuaðstöðu fyrirtækisins á Ísafirði og flotbryggja til notkunar
á Hesteyri. Samningur er við ferðaþjónustufyrirtækið Vesturferðir um
þjónustu við skemtiferðarskipin sem skipuleggja m.a. hinar vinsælu ferðir
til Vigur og Hesteyrar. Um 80-90 skemtiferðarskip koma til Ísafjarðar
hvert sumar og er um að ræða mjög ábátasaman rekstur. Talsverðir
ónýttir möguleikar til staðar sérstaklega yfir haust, vetrar og vortíman.
Skuldlaust fyrirtæki. Óskað er eftir verðtilboði.
Allar upplýsingar veitir Ingólfur
Gissurarson lg.fs. í síma: 896-5222
eða ingolfur@valholl.is