Morgunblaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2019 LOKADAGAR yrir heimilin í landinu Sparidagar Skoðaðu úrvalið okkar á *SENDUM UM LAND ALLTLágmúli 8 | S: 530 2800 10% afsláttur 49’’ 55’’ 65’’ 75’’ 15-40% afsláttur 25% afsláttur Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þó vissulega glatist margtþegar sjónin daprast held-ur lífið áfram. Margvíslegný tækni gerir okkur sem erum blind eða sjónskert lífið auð- veldara og þannig tökum við okkur far með upplýsingahraðlestinni um stafræna veröld til jafns við aðra. Allt okkar starf miðar að stuðningi til sjálfstæðis,“ segir Sigþór U. Hall- freðsson, formaður Blindrafélagsins – samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi. Geti átt innihaldsríkt líf Blindrafélagið verður 80 ára næstkomandi mánudag, 19. ágúst, og verður þeirra tímamóta minnst með hátíðarsamkomu á Hótel Hilton Nor- dica síðdegis þann dag. Á Menning- arnótt í Reykjavík næstkomandi laugardag er félagið svo sérstakur heiðursgestur og verður í eftirmið- daginn með viðamikla menningar- og listadagskrá í Tjarnarsal Ráðhússins. Þar verður starfsemi félagsins til dæmis kynnt, tónlistafólk úr röðum þess kemur fram og myndlistarfólk sýnir verk sín. Í dag eru um það bil 1.500 manns á Íslandi skráðir blindir eða sjón- skertir hjá Þjónustu og þekking- armiðstöð fyrir blinda og sjónskerta og fólk með samþætta sjón- og heyrn- arskerðingu eins og stofnunin heitir. Þar af eru um 700 skráðir í Blindra- félagið, en þar er miðað við fólk sem hefur minna en 30% sjón. Það er oft- ast fólk nokkuð við aldur, sem misst hefur sjónina vegna veikinda, þó or- sakirnar geti verið ýmsar fleiri. „Markmið með starfi okkar í fé- lags- og réttindamálum miðar að því að okkar fólk geti átt innihaldsríkt líf á eigin forsendum. Þar liggja undir grunnþættir eins og afkoma, mennt- un og atvinnumál. Viðeigandi ferða- þjónusta er mikilvæg til að þess að þetta gangi eftir og aðgengismál, bæði í raunheimum sem og þeim staf- ræna, eru alltaf ofarlega á baugi.“ Mogginn kominn á vefvarp Sigþór greinir frá því að nú sé baráttumál félagsins að Íslendingar innleiði tilskipun ESB um að aðgengi að opinberum vefsíðum sé aðgengi- legt blindu og sjónskertu fólki til jafns við aðra. Eðlilega leiði það svo til þess að aðrir vefir verði með sama móti aðgengilegir öllum og þá sé til mikils unnið. Talgervlar, sérhæfð skjálestrarforrit og fleiri tækninýj- ungar séu blindum og sjónskertum mikið þarfaþing og opna þeim staf- ræna heiminn eins og öðrum ef fag- lega er staðið að hönnun forrita og vefsvæða. „Núna er til dæmis komin hljóð- útgáfa af Mogganum sem okkar fólk getur nálgast í vefvarpi Blindra- félagsins, meira að segja áður en blaðið kemur úr prentun. Fyrir þá frábæru þjónustu erum við ykkur af- ar þakklát,“ segir Sigþór og bætir við að félagið leggi þunga áherslu á að starfsemi Hljóðbókasafns Íslands haldist óbreytt. Hugmyndir hafi verið uppi um jafnvel að leggja safnið nán- ast niður sem ekki megi gerast. Vissulega megi víða nálgast hljóð- bækur í dag, en safnið tryggi not- andum hins vegar mikilvægt jafnræði og fjölbreyttan bókakost. Því rétt- urinn til að lesa og njóta bókmennta er ekkert annað en sjálfsögð mann- réttindi. Hljóðbókasafnið gegni sömuleiðis afar mikilvægu hlutverki við að útvega og útbúa námsgögn. Það sé blindu og sjónskertu náms- fólki mjög mikilvægt. Miklar áskoranir „Áskoranirnar sem blindir og sjónskertir þurfa í dagsins önn að mæta eru sannarlega miklar og tals- vert aðrar en hjá sjáandi,“ segir Sig- þór. Hann fæddist með arfgengan hrörnunarsjúkdóm í sjónhimnu sem veldur meðal annars náttblindu og vaxandi sjónskerðingu eftir því sem árin líða. Þarna kemur til eitt af- brigðið af Retinitis Pigmentoa eða RP-sjúkdómnum sem Sigþór er með. Þekktar eru meira en 100 mismun- andi stökkbreytingar sem orsaka RP og skylda sjúkdóma. Um þessar mundir er verið að undirbúa al- þjóðlega ráðstefnu í tengslum við norræna augnlæknaþingið, sem hald- in verður í Hörpu í byrjun júní á næsta ári. Þar verður fjallað um þessa sjónhimnusjúkdóma og þær klínísku tilraunir sem eru í gangi við að finna meðferð við þeim; ekki síst genameðferðir við tilteknum af- brigðum. „Árið 2007, þegar ég var 46 ára, hætti ég að keyra bíl, svo hætti ég að geta farið um hjólandi. Síðan bætist við óöryggi ef ég er gangandi í ókunnu umhverfi og svona gæti ég haldið áfram. Í dag er ég með 5-10% sjón og hún hefur daprast hratt síð- ustu árin, eins og er eðli og afleiðing hrörnunarsjúkdóma. Ef bera skal til dæmis minnkandi sjón saman við sorgarferli er gangurinn þar sá að söknuðurinn og missirinn hefur upp- haf uns fólk hefur aðlagast nýjum að- stæðum og lífið er komið í jafnvægi. En svo hefst þessi hringrás á ný þeg- ar hrörnunin heldur áfram – og það er ég að glíma við,“ segir Sigþór. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Veldisspoti Hvíti stafurinn er hjálpartæki blindra og nýtist til að kanna leiðina sem fara skal. Áskoranirnar sem blindir og sjónskertir þurfa í dagsins önn að mæta eru sannarlega miklar, segir Sigþór hér í viðtalinu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samvinna Björk Arnardóttir þjálfari, Krzysztof Jerzy Gancarek og hund- urinn Laban. Leiðsöguhundar hafa gjörbreytt lífi blindra og sjónskertra. Lífið verði blindum auðveldara Blindrafélagið verður 80 ára næstkomandi mánu- dag. Tímamótin verða haldin hátíðleg en mestu skiptir að margt í málum blindra og sjónskertra þokast til betri vegar. „Þegar sjón eða önnur skynjun eða færni er á undanhaldi þarf fólk að aðlagast nýjum veru- leika og aðstæðum sem vissu- lega reynir á andlega líðan,“ segir Sigþór Hallfreðsson. „En þrátt fyrir allt finnst mér gam- an að vera til og á um margt al- veg frábært líf. Það er líka mikilvægt að muna að alltaf er von og ný tækifæri í breyttum aðstæðum.“ Brúa þarf bilið Sigþór er fjölskyldumaður, fæddur í Stykkishólmi 1961. Hann er iðnaðartæknifræð- ingur að mennt og vinnur hjá Verkís hf. Sinnir þar einkum gæðamálum og hefur á vinnu- stað verið búið starfsumhverfi sem hentar. „Lengi var fyrst og fremst horft til þess að skapa okkar fólki störf í léttum iðnaði, svo sem á Blindravinnustofunni sem fé- lagið starfrækir hér í Hamra- hlíðinni. Það hentar mörgum en ekki öllum og með meiri og betri menntun okkar fólks þarf að hugsa þessi mál upp á nýtt og skapa störf fyrir blint og sjónskert fólk sem hefur lokið háskólaprófi. Brúa þarf bilið á milli skólagöngu og atvinnu. Þar er atvinnurekenda að skapa aðstæðurnar og gefa fólki tæki- færi. Fyrirstöður má yfirleitt fjarlægja og þegar hindrunum hefur verið rutt úr vegi hættir fötlun að skipta máli,“ segir formaðurinn. Fyrirstöður má fjarlægja BREYTTAR AÐSTÆÐUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.