Morgunblaðið - 17.08.2019, Side 26

Morgunblaðið - 17.08.2019, Side 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2019 Hjónin Hallveig Fróðadóttir og Ingólfur Arnarson komu hingað aðóbyggðu landi. A.m.k. er viðtekin skoðun að hér hafi ekki veriðneitt fólk fyrir, nema papar, írskir einsetumunkar sem hurfu ábrott því að þeim var ekki vært innan um norræna menn. Íslend- ingar eru því í ákveðnum skilningi frumbyggjar – en telst íslenska þar með frumbyggjamál? Fróðlegt er að velta þessu fyrir sér í ljósi þess að Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) hefur tileinkað árið 2019 frumbyggjamálum. Það er bæði gert í þágu þeirra sem sem tala frumbyggjamál og til að vekja al- menning til vitundar um gildi slíkra mála fyrir menningarlegra fjölbreytni í heiminum. Við Háskóla Ís- lands er stutt við þessa við- leitni hjá Vigdísarstofnun, al- þjóðlegri miðstöð tungumála og menningar sem starfar undir merkjum UNESCO. Ekki er fyllilega ljóst hvernig á að skilgreina frum- byggja og þá ekki heldur frumbyggjamál. Samkvæmt mælikvörðum UNESCO er áætlað að 370 milljónir manna í níutíu löndum teljist til frumbyggja. Flest tungu- mál sem þetta fólk talar eru í mjög viðkvæmri stöðu. Af sjö þúsund tungumálum sem töl- uð eru í heiminum eru um 2700 í útrýmingarhættu. UNESCO skiptir tungu- málum í fimm flokka eftir lík- um á útrýmingu: „Öruggt“; talað af börnum heima fyrir og miðlun milli kynslóða er algjör. „Viðkvæmt“; ekki talað af börnum heima fyrir og lítið notað á opinberum vettvangi. „Örugglega í útrýmingarhættu“; ekki talað af börnum. „Í verulegri útrýmingarhættu“; aðeins talað af eldri kynslóðum. „Í mikilli útrýmingarhættu“; einungis talað af nokkrum einstaklingum af eldri kynslóðunum, oftast ekki reiprennandi. Michael E. Krauss, frumkvöðull í rannsóknum á frumbyggjamálum, bjó til annað flokkunarkerfi þar sem tungumál er talið „í útrýmingarhættu“ ef líkur eru á að börn tali það ekki eftir 100 ár. (Þess má geta að Krauss, sem er nýlát- inn, dvaldist á Íslandi á sjötta áratugnum og telst því Íslandsvinur.) Hvað um það, helsti mælikvarðinn á stöðu tungumála er hvort og að hvaða marki börn tala málið. Rétt er að ítreka að stærð málsamfélagsins segir ekki alla söguna um það hvort tungumál er í útrýmingarhættu eða ekki. Þannig tala t.d. býsna fjölmenn samfélög á Indónesíu tungumál sem eru í útrýmingarhættu. Íslenska er hins vegar ekki í útrýmingarhættu samkvæmt þessari mælistiku þrátt fyrir smæð íslenska málsamfélagsins, enda er íslenska töluð af börnum heima fyrir og miðlun milli kynslóða alger. Þó er vitaskuld nauðsynlegt að vera stöðugt á verði gagnvart erlendum áhrifum á málið. Tungumál deyja út fyrir augunum á okkur með ógnvænlegum hraða. Það blasir við að dauði tungumáls felur í sér óafturkræfa glötun menning- arverðmæta. Ákvörðun Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna að lýsa 2019 ár frumbyggjamála ber að skilja með hliðsjón af því. Frumbyggjamál í brennidepli Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is Ingólfur og Hallveig, frumbyggjar Íslands. Gömlu evrópsku nýlenduveldin voru ekki aðásælast ríki í Afríku, Mið-Austurlöndum ogAsíu til þess að ná yfirráðum yfir fólki. Aðbaki lá eftirsókn eftir auðlindum. Og þau náðu yfirráðum yfir auðlindum í öðrum heimshlutum í krafti hervalds. Þetta var í raun þjófnaður. Þau voru að ræna eignum annarra. Yfir slíku athæfi hefur aldrei þótt hvíla neinn glæsibragur, þótt þessi gömlu nýlenduveldi hafi leitazt við að sveipa þetta tímabil dýrðarljóma. En hér og þar má sjá vísbendingar um endurmat á þeirri sögu og tími til kominn. Við Íslendingar upplifðum dauðateygjur nýlenduveld- anna. Veiðar brezkra togara í fiskveiðilögsögu okkar undir herskipavernd voru af sama toga. Þetta var þjófn- aður í krafti hervalds. Hið sama má segja þegar kemur að þjóðnýtingu Egypta á Súez-skurðinum sumarið 1956. Hvaðan kom Bretum og Frökkum réttur til að búa til skipaskurð í öðru landi og ætla að tryggja yfirráð sín yfir honum með hervaldi? Og kalla þjóðnýtingu Egypta þjófnað að auki! Þetta er ljót saga og fjarri því að hægt sé að kenna hana við glæsileika. Þessi eftirsókn gömlu nýlendu- veldanna eftir auðlindum annarra þjóða hefur tekið á sig nýja mynd í samtíma okkar. Þegar Alþingi samþykkti að sækja um aðild fyrir Íslands hönd að Evrópusamband- inu sumarið 2009 var alltaf ljóst að með aðild mundu fiskimiðin við Ísland færast undir stjórn embættismanna í Brussel í smáu og stóru vegna þess að þá hefði Ísland fallið undir sameiginlega fiskveiðistefnu ESB. Það tókst að koma í veg fyrir það. Nú er að verða til það sem kallað er sameiginlegur orkumarkaður ESB. Og nú er að því stefnt í krafti EES- samningsins að fella Ísland undir regluverk þess sam- eiginlega orkumarkaðar. Hvers vegna töldum við Ís- lendingar hagstætt fyrir tæpum þremur áratugum að gera þann samning? Það var vegna þess, að með honum gátum við tryggt okkur aðgang að fiskmörkuðum í Evr- ópu. Nú eru að vísu að verða breytingar á. Bretland er á leið út úr ESB og Bretland hefur alltaf verið einn af okk- ar mikilvægustu fiskmörkuðum. En þar að auki hafa opnast aðrir markaðir fyrir fiskafurðir okkar. Og heyra má á fiskútflyjendum, að þeir telja ekki mikið mál að auka fisksölu til annarra markaða. En það er önnur saga. Það var ekki markmið þeirra, sem gerðu EES- samninginn, að hleypa gömlu nýlenduveldunum í Evr- ópu til áhrifa í nýtingu á hinni mestu auðlind þjóð- arinnar, þ.e. orku fallvatnanna. En samþykki Alþingi orkupakka 3 er það ígildi þess að við hefðum fallizt á að færa yfirráð yfir fiskimiðum okkar til Brussel. Þetta er sagt vegna þess að með samþykkt orkupakkans verðum við hluti af regluverki hins sameiginlega orkumarkaðar í Evrópu. Og jafnvel þótt enginn sæstrengur yrði lagður mundi áhrifa hans gæta hér. Gömlu nýlenduveldin eru enn að. Þau eru enn að ásæl- ast auðlindir annarra þjóða. En nú er öðrum aðferðum beitt. Þar er hvorki herskipum né annars konar hernaðartólum beitt heldur her skriffinna í Brussel, sem búa til ótrúlegar lagaflækjur til þess að binda viðsemj- endur sína í fjötra, sem þeir sjá ekki fyrir, þar sem þeir sitja við samningaborðið. Þegar EES-samningurinn var gerður á sínum tíma datt engum í hug, að í krafti hans mundu ESB-ríkin reyna að ná áhrifum í nýtingu auðlinda á Íslandi. Hafi einhverjum dottið það í hug hafa þeir hinir sömu þagað vandlega yfir því. Um þetta snýst orkupakkamálið nú. Endalausar lagaskýringar fram og til baka eru ekki kjarni málsins. Heldur sú staðreynd að með því að samþykkja orkupakka 3 er- um við að gefa frá okkur yfirráð yfir annarri mestu auðlind okkar. Frá því að EES-samningurinn var gerður hefur að vísu orðið til ný auðlind, sem er nátt- úra landsins, sem dregur hingað ferðamenn. Sú auðlind kann hins vegar að vera fallvaltari en við höfum gert okkur grein fyrir. Í Danmörku eru hafnar umræður um að nauðsynlegt sé að skattleggja flugfargjöld í ríkara mæli með þeim rökum, að þau endurspegli ekki kostnað við flugið í formi áhrifa þess á loftslagsbreytingar. Slíkar umræður gætu orðið til þess að ferðamennirnir hverfi jafn snögglega og síldin hvarf í gamla daga. Og jafnframt gjörbreyta öllum rekstrarforsendum flug- félaga á Íslandi. Kannski er kominn tími á að Eimskip byggi nýjan Gullfoss. Það sem hér hefur verið sagt hefur ekki verið ríkjandi þáttur í umræðum um orkupakkann undanfarna mánuði en er þó kjarni málsins. Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að taka ákvörðun um ráð- herra. Sú staðreynd hefur áhrif á afstöðu einhverra þingmanna hans, sem gera sér vonir um slíkt embætti. Það er erfiðara að skilja, hvers vegna Framsókn- arflokkurinn tekur þátt í þessum leik, vegna þess að hann er einfaldlega í lífshættu. Samfylkingin og Viðreisn fagna vegna þess að þeir tveir flokkar hafa það beinlínis á stefnuskrá sinni að færa yfirráð yfir íslenzkum auðlindum í hendur Brussel. Afstaða VG er óskiljanleg. Forystumenn stjórnarflokkanna hafa uppi falleg orð um að þeir vilji „hlusta“ á fólk og að skoðanaskipti um ágreiningsmál séu mikilvæg. Veruleikinn er allt annar – því miður. Innan dyra kveður við annan tón. Þingmenn hafa tvær vikur til að ná áttum. Auðlindaásókn gamalla nýlenduvelda … … birtist nú í orkupakka 3 Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Ein fjöður getur ekki aðeins orð-ið að fimm hænum, eins og segir í orðtakinu. Hún getur orðið að 97 hænum. Staglast er á því í fjölmiðlum að 97 af hundraði vís- indamanna telji hnattræna hlýnun vera af manna völdum. Nú efast ég ekki um það að hlýnað hafi síðustu áratugi: ég man þá tíð fyrir hálfri öld, er skólahald var stundum fellt niður í Reykjavík vegna veðurs og strætisvagnar ösluðu um á keðjum. Ég hef aðeins bent á tvennt sem liggur í augum uppi. Í fyrsta lagi er afar ólíklegt að nú muni skyndilega ekki lengur um náttúrulegar lofts- lagsbreytingar eins og orðið hafa frá aldaöðli. Í öðru lagi er alls óvíst að loftslagið sem var í heiminum um og eftir 1990, þegar hlýnunin hófst, sé hið eina ákjósanlega. Hlýn- un jafnt og kólnun hafa í senn já- kvæðar og neikvæðar afleiðingar. Uppruni staglsins um 97 vísinda- menn af hundraði er í rannsókn eft- ir eðlisfræðinginn John Cook og fleiri sem greint var frá í veftímariti árið 2013. Þar voru skoðaðir rösk- lega 11 þúsund útdrættir úr rit- rýndum ritgerðum um loftslagsmál tímabilið 1991-2011. Cook og fé- lagar héldu því fram að samkvæmt rannsókninni teldu 97 af hundraði vísindamanna hnattræna hlýnun vera af manna völdum („97,1% en- dorsed the consensus position that humans are causing global warm- ing“). Þegar grein þeirra Cooks er skoðuð nánar kemur þó annað í ljós, eins og eðlisfræðingurinn og hagfræðingurinn David Friedman hefur bent á. Í tveimur þriðju hlut- um ritgerðanna er engin afstaða tekin til þess hvort hnattræn hlýn- un sé af manna völdum. En hvað um þann einn þriðja hluta þar sem afstaða er tekin? Í rannsókn sinni flokkuðu Cook og félagar ritgerðir, þar sem hnattræn hlýnun var talin af manna völdum, í þrennt. Í fyrsta flokki voru ritgerðir þar sem sagt var beint að hnattræn hlýnun væri mestmegnis af manna völdum og lögð fram töluleg gögn um það. Í öðrum flokki voru ritgerðir þar sem fullyrt var að hnattræn hlýnun væri að miklu leyti af manna völdum, án þess að sérstakar tölur væru nefnd- ar. Í þriðja flokknum voru ritgerðir þar sem sagt var óbeint að hnatt- ræn hlýnun væri að einhverju leyti af manna völdum. Af þeim ritgerðum þar sem af- staða var tekin voru 1,6% í fyrsta flokki, 23% í öðrum flokki og 72% í þriðja flokki. Þess vegna hefði verið nákvæmara að segja að 1,6% vísindamanna sem birt hefðu rit- rýndar ritgerðir um loftslagsmál héldu því fram, að hnattræn hlýnun væri mestmegnis af manna völdum, en að þorri vísindamanna teldi menn hafa einhver áhrif á loftslags- breytingar án þess að horfa framhjá hlut náttúrunnar sjálfrar. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Hænurnar 97 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.