Skessuhorn - 01.06.2016, Qupperneq 79
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 79
Skagamenn og Víkingur Ólafsvík
spiluðu í 32ja liða úrslitum Borgun-
arbikarsins í lok síðustu viku. Skaga-
menn tryggðu sér farseðil í 16-liða
úrslit með 1-0 sigri á Knattspyrnu-
félagi Vesturbæjar á heimavelli. Vík-
ingur þurfti hins vegar að sætta sig
við ósigur gegn sterku liði Stjörn-
unnar á útivelli eftir að grípa þurfti
til vítaspyrnukeppni.
Á Akranesi var það Þórður Þor-
steinn Þórðarson sem kom Skaga-
mönnum yfir á fimmtu mínútu
leiksins eftir undirbúning Mart-
ins Hummervoll. Skagamenn voru
töluvert sterkari allan leikinn og áttu
fjölmörg dauðafæri í fyrri hálfleik en
markvörður KV, Hugi Jóhannes-
son, stóð sig vel í markinu og hélt
KV inni í leiknum. Lokamínútur
leiksins voru spennuþrungnar. Á 80.
mínútu braut Hugi í markinu á Al-
bert og vítaspyrna var dæmd. Albert
Hafsteinssyni fór sjálfur á punkt-
inn en Hugi bætti upp fyrir mistök-
in og varði vítaspyrnuna. KV virtust
hressast við þetta og skiptust liðin
á færum þar til flautað var til leiks-
loka.
Vítaspyrnukeppni í
Garðabæ
Í Garðabæ voru það Stjörnumenn
sem voru sterkari aðilinn í fyrri hálf-
leik sem þó var ekki tíðindamik-
ill. Tvisvar sinnum var þó bjargað á
marklínu. Fyrst voru það Víkingar
sem björguðu á línu á fjórðu mínútu
eftir hornspyrnu en í síðara skiptið
voru það Stjörnumenn sem þurftu að
bjarga á marklínu á 29. mínútu þeg-
ar Alfreð Már reyndi að koma bolt-
anum í netið.
Það voru Víkingar sem brutu ísinn
í síðari hálfleik þegar William Dom-
inguez da Silva skoraði fallegt mark á
50. mínútu. Tíu mínútum síðar skor-
aði Jeppe Hansen fyrir Stjörnumenn
og staðan því orðin jöfn aftur. Víking-
ar svöruðu því marki strax því mínútu
síðar kom Pape Mamadou Faye Vík-
ingum aftur yfir. Stjörnumenn skor-
uðu mark á 89. mínútu þegar Guðjón
Baldvinsson skallaði boltann inn eftir
hornspyrnu.
Jafnt var í lok venjulegs leiktíma
og því farið í framlengingu. Í henni
var ekkert mark skorað og því farið í
vítaspyrnukeppni. Guðjón Baldvins-
son klikkaði á fyrsta víti Stjörnunnar
og Pape á fjórða víti Víkings; úrslitin
réðust því í bráðabana. Það fór svo að
Hörður Fannar, markmaður Stjörn-
unnar, varði víti Alfreðs Más og því
komust Stjörnumenn áfram.
Á föstudag var dregið í 16-liða úr-
slit og drógust Skagamenn gegn liði
Breiðabliks. Sá leikur fer fram á Akra-
nesvelli 9. júní næstkomandi.
bþb
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Krossgáta Skessuhorns
Rigsa
Bóma
Renna
Loka
Vein
Erta
Hól
Dunda
Tær
Hneigja
Ókyrrð
Tengi-
vagn
Labb
Agaður
Fjöldi
Kjaftur
Stafur
Sk.st.
Öku-
maður
Skógar-
dýr
Klampa
Skass
Fiskur
Lota
Glópa-
lán
Athygli
3 19
Glöð
Fé
Bura
16 Sérhlj.
Samhlj.
Spil
Sósa
Tölur
Gufa
Virða
10
Fugl
Ílát
Getur
1 5
Tala
Rödd
Ærsl
Til
Kvísl
Mjúk
Líka
Þegar
Gríla
Til sölu
Druslur
Röstin
12
Rúlla
Orð-
rómur
9 Grjót
Grugg
Sam-
hljóðar
Tignari
Hjól
Átt
Hljómar
Fljóta
Óhóf
Hús-
freyja
Fædii
Brauð
Hindra
Op
Sunna
Ósvikið
14
Þegar
Óletin
Ber
18 Angan
Sk.st.
Reykur
Þófinn
6 Skinn
Uggar
Sónn
Ekrur
Spurn
Haka
Býli
7
Áflog
Kaðlar
Fiskur
2
Sjá
Sáðlönd
Ófús
4 Reim
Tvíhlj.
Mjög
17
Sverta
Ikt
Sonur
Risa
Öldruð
Grip
Ögn
Bið
Ókunn
11 Frá
2000
Fersk
Nettur
Klink
Laun
8 20
Fis
Kámar
Snót
15 13
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18 19 20
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta,
Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja
þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður
úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bókargjöf frá Skessuhorni.
Alls bárust 52 lausnir við krossgátunni í blaðinu í
síðustu viku. Lausnin var: „Búpeningur.“ Vinnings-
hafi er: Jón Hjartarson, Kirkjubraut 30, 300 Akra-
nesi.
Skagamenn komust áfram í bikarnum
Þórður Þorsteinn fagnar markinu fyrir
Skagamenn.
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna hjá
Víkingi Ó tóku á móti Hvíta Riddar-
anum síðasta mánudagskvöld. Fresta
þurfti leiknum vegna veðurs þegar
hann átti að fara fram föstudeginum
á undan. Heldur fátt var á vellinum
en þeir sem mættir voru létu vel í sér
heyra. Var þetta loka leikurinn í ann-
arri umferð í 1. deild kvenna A-riðli.
Víkingsstelpurnar mættu ákveðn-
ar til leiks og áttu mjög góðan leik.
Voru þær miklu betra liðið á vellin-
um og óðu í færum á meðan Hvíti
Riddarinn átti erfitt uppdráttar. Var
staðan mjög góð 5 - 0 fyrir Víkings-
stúlkur þegar flautað var til hálfleiks.
Í seinni hálfleik héldu Víkingsstúlk-
ur uppteknum hætti og tóku öll þrjú
stigin í leiknum sem endaði 7 - 0.
Víkinsstúlkur eru í toppsæti riðils-
ins með sex stig eftir fyrstu tvær um-
ferðir sumarsins. Næsti leikur verður
fimmtudaginn 2. júní á mótti Þrótti
Reykjavík á Þróttaravellinum. þa
Víkingsstúlkur burstuðu
Hvíta riddarann
Á sunnudag fór fram leikur ÍA og
Víkings Reykjavíkur í sjöttu um-
ferð Pepsi deildar karla. Leikur-
inn var mikilvægur fyrir bæði lið til
að spyrna sér frá botni deildarinn-
ar. Gunnlaugur Jónsson breytti leik-
kerfi Skagamanna frá síðasta deildar-
leik úr 4-4-2 í 3-5-2. Leikurinn fór
býsna fjörlega af stað og voru það
Skagamenn sem skoruðu fyrsta mark
leiksins strax á annarri mínútu þeg-
ar Jón Vilhelm Ákason skoraði með
viðstöðulausu skoti utan teigs; eitt
af mörkum tímabilsins. Skagamenn
voru þó ekki lengi með forystu því
tveimur mínútum síðar jafnaði Vla-
dimir Tufegdzic metin fyrir Víkinga.
Fjörið var ekki búið því áhorfend-
ur þurftu aðeins að bíða í mínútu til
viðbótar til þess að sjá Garðar Berg-
mann Gunnlaugsson setja boltann í
markið af stuttu færi eftir sendingu
Ásgeirs Marteinssonar. Við það mark
róaðist leikurinn. Víkingar reyndu
að gera atlögu að marki Skaga-
manna en þeir gulklæddu voru þétt-
ir til baka. Tíu mínútum fyrir leikhlé
vildu Skagamenn fá vítaspyrnu þegar
Albert Hafsteinsson féll niður inn í
teig Víkings.
Í síðari hálfleik voru Víking-
ar sterkari aðilinn. Þeir náðu að
jafna með marki hins efnilega Ótt-
ars Magnúsar Karlssonar á 55. mín-
útu. Það var svo á lokamínútu leiks-
ins sem boltinn barst á Ívar Örn
Jónsson sem setti boltann snyrtilega
í mark Skagamanna. Lokatölur 3-2
fyrir Víking Reykjavík. Skagamenn
sitja enn í tíunda sæti með fjögur stig
eftir leikinn. Næsti leikur þeirra er
gegn Þrótti á heimavelli á Skaganum
sunnudaginn 5. júní.
bþb/ Ljósm. Guðmundur Bjarki.
Dramatík í lok leiks
ÍA og Víkings
Jón Vilhelm skoraði glæsilegt mark í
leiknum gegn Víkingi Reykjavík.
Tveir leikmenn hafa samið við
körfuknattleiksdeild Snæfells og
munu leika með karlaliði félags-
ins í Domino‘s deild karla á kom-
andi vetri. Leikmennirnir eru ann-
ars vegar Rúnar Þór Ragnarsson frá
Kverná. Hann er fæddur árið 1993
og leikur stöðu miðherja. Rúnar lék
á síðasta vetri með liði Grundfirð-
inga í 3. deildinni.
Hins vegar hefur verið endur-
nýjaður samningur við Hólmarann
Jón Pál Gunnarsson. Hann er ung-
ur bakvörður, fæddur árið 1998. Jón
Páll hefur leikið með yngri flokkum
Snæfells undanfarin ár en lék sínar
fyrstu mínútur með meistaraflokks-
liði á síðasta keppnistímabili. Jón
Páll skrifaði undir eins árs samning.
kgk/ Ljósm. Snæfell.
Snæfell semur við tvo leikmenn