Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201610
Hátíðarmatseðillinn á Búðum í ár er
undir áhrifum íslenskrar villibráðar.
Ómótstæðilegar „delikatesser“ á
heimsmælikvarða á óviðjafnanlegum og
rómantískum stað. Hafðu samband og bókaðu
ógleymanlega ferð á Búðir.
Hátíð á Búðum
HÁTÍÐAR-
TILBOÐ Á BÚÐUM
Í NÓVEMBER OG
DESEMBER
39.900 kr.
Gisting fyrir tvo,
fimm rétta hátíðar-
matseðill ásamt
morgunverði.
Gisting fyrir tvo í tveggja
manna herbergi og fimm
rétta hátíðarmatseðill og
morgunverður
GJAFABRÉF
39.900 KR.
hotelbudir.is HotelBudir
hotelbudir budir@budir.is
+354 435 6700
Um liðna helgi héldu sjö listakonur
í Borgarbyggð athyglisverða sýn-
ingu í brugghúsinu Steðja í Flóka-
dal. Þar fór saman list og hand-
verk og stemningin sérstök þar sem
keimur bruggmeistaranna lá einn-
ig í lofinu. Listakonurnar voru þær
Cristina Cotofana, Josefína Mor-
ell, Kara Jóhannesdóttir, Kristrún
Snorradóttir, Michelle Bird, Signý
Óskarsdóttir og Steinunn Steinars-
dóttir.
Guðlaugur Óskarsson, einn sýn-
ingargesta komst svo að orði, þeg-
ar hann varpaði á veraldarvefinn
nokkrum myndum af viðburðin-
um: „...sumir hafa lyst á öli og aðrir
eru hneigðir fyrir list í margbreyti-
legu formi. Í brugghúsinu að Steðja
buðu nokkrar listakonur gestum og
gangandi að njóta málverka á striga,
stein og tré auk ýmissa fagurra nyt-
jamuna úr garni og tré. Það gladdi
margt auga og önd.“
mm/ Ljósm.
Guðlaugur Óskarsson og fleiri.
List í brugghúsi