Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 62

Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 62
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201662 Aðventa í Kjósinni SK ES SU H O R N 2 01 7 Borgnesingurinn Gunnhildur Lind Hansdóttir flutti nýverið til Íslands á ný eftir fimm ára samfellda veru í Bandaríkjunum við nám og starf. Skessuhorn hitti Gunnhildi og máli og fékk að heyra af reynslu hennar ytra. „Ég fór reyndar fyrst út árið 2007 sem skiptinemi eftir eitt ár í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þá lenti ég hjá yndislegri fjölskyldu í Caddo, litlum smábæ í Oklahoma- fylki. Ég segi „lenti“ af því það er mjög handahófskennt hvar skipti- nemum er komið fyrir. Þar að auki fannst mér ég hafa „lent“ þar því ég skoðaði mynd frá staðnum þar sem var skilti sem stóð á „Velkomin til Caddo“ og bókstaflega ekkert í bakgrunni nema eyðimörkin,“ seg- ir Gunnhildur og brosir. Hún læt- ur afskaplega vel af landi og þjóð. „Ég elska Bandaríkin en ég á marga vini og ættingja sem skilja ekki af hverju. Þeir hafa sína upplifun af landinu í gegnum sjónvarp og skil- ur ekki af hverju mér þykir svona vænt um landið. En þetta er ekki eins og í fréttunum. Mín reynsla er sú að Bandaríkjamenn eru rosalega gott og vingjarnlegt fólk sem vill allt fyrir mann gera. Það var rosa- lega vel hugsað um mig þarna úti.“ Eftir tæpt ár í skiptinámi sneri Gunnhildur heim til Íslands á ný og lauk stúdentsprófi frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Hélt hún áfram góðu sambandi við fjölskylduna og vinina í Bandaríkjunum, fór í árlega heim- sókn þangað og hugurinn leitaði út á ný. Að loknu stúdentsprófi sótti Gunnhildur síðan um háskólanám í Southeastern Oklahoma Univer- sity og lék körfuknattleik með liði skólans. „Ég fór út með það mark- mið að komast í körfuboltaliðið og fá námsstyrk. Þegar ég mætti út ræddi ég við þjálfarann en þá var búið að skipa liðið og ég spilaði því ekkert fyrsta árið. Hann benti mér hins vegar á að mæta í prufur vorið eftir. Ég gerði það og lék með lið- inu næstu tvö árin og á skólastyrk,“ segir Gunnhildur. Stífar og markvissar æfingar Hún segir að álagið sem fylgir há- skólaboltanum hafi aðeins kom- ið henni á óvart. „Það fór mik- ill tími í þetta. Okkur var gert að mæta í íþróttahúsið að minnsta kosti hálftíma fyrir æfingar og þegar allt er talið voru þetta þrír til fjórir klukkutímar á hverjum degi,“ segir hún. „Álagið var mikið en þetta var mjög ánægjulegt. Við vorum með góðan og metnaðar- fullan þjálfara sem vissi nákvæm- lega hvað hann vildi og gerði okk- ur grein fyrir hverju hann byggist við af okkur,“ segir hún og bæt- ir því við að æfingarnar hafi ver- ið mjög markvissar. „Þjálfarinn var stöðugt að reyna að bæta eitthvað sem honum fannst vanta í leikn- um og hjá hverjum og einum leik- manni. Hann notaði tölfræði mik- ið og fékk okkur til að vera með- vitaðri um að nýta okkur tölfræð- ina í leik okkar,“ segir Gunnhild- ur og bætir því við að hann hafi einnig verið leikmönnum hvatn- ing utan vallar. „Hann einblíndi ekki aðeins á körfuboltann heldur hvatti hann okkur til að reyna að vera góðar persónur og stytta sér ekki leið í lífinu. Breyta rétt og láta gott af okkur leiða hvort sem er fyrir allra augum eða fyrir luktum dyrum. Ég hugsa oft um þetta enn í dag,“ segir hún. En hvað varðar framfarir á körfuknattleiksvellin- um létu þær ekki á sér standa. „Þó ég hafi reyndar ekki fengið að spila neitt rosalega mikið fannst mér ég bæta mig meira á fyrsta árinu en ég hefði getað gert á fimm árum hér heima,“ segir Gunnhildur. „En þegar upp er staðið þá er það auðvitað undir hverjum og ein- um komið hversu góður hann vill verða. Þjálfarar geta bara gert svo og svo mikið, restin er undir þér komin.“ Langar að læra ljósmyndun og ferðast Í háskólanum í Oklahoma lagði Gunnhildur stund á nám sem upp á íslensku mætti e.t.v. kalla fjarskipti með áherslu á sjónvarpsútsending- ar. Þar lærði hún öll helstu undir- stöðuatriði fjölmiðlunar og dag- skrárgerðar, en mest þó á bókina. „Þetta var ekki eins mikið verklegt og ég hefði helst viljað. En þeir tímar sem þó voru verklegir voru mjög skemmtilegir, t.d. mynd- bandagerð og fleira,“ segir hún. Að námi loknu komst fór hún að vinna á sjónvarpsstöð úti í Bandaríkjun- um en sneri heim í júlí síðastliðn- um og flutti í Borgarnes. „Það er smá millibilsástand hjá mér núna. Ég flutti aftur inn til mömmu og pabba,“ segir hún og brosir. „Ég vinn á Egils Guesthouse. Það er rosalega fínt en ég sé það kannski ekki fyrir mér sem framtíðarstarf,“ bætir hún við. „Einnig er ég að vinna hjá 365 miðlum. Ég lýsi leikj- um Skallagríms í beinni á Twitter og tek viðtöl eftir leiki sem síðan eru sýnd í þættinum Körfubolta- kvöldi á Stöð 2 sport og stund- um í beinni, ef um sjónvarpsleik er að ræða. Síðan skrifa ég viðtöl- in niður fyrir Vísi.is,“ segir Gunn- hildur. Hefur það starf ákveðinn samhljóm við nám hennar og að- spurð kveðst hún jafnvel hafa hug á að starfa við fjölmiðlun í framtíð- inni. „Ég hef mjög gaman af þessu og gæti hugsað alveg hugsað mér að vinna við þetta. En ég held ég myndi njóta mín betur í einhvers konar dagskrárgerð, eða á setti við kvikmyndatökur. Ég vil helst geta lagt eitthvað til verkefnisins og hafa eitthvað um það að segja,“ segir hún. En hvað er næst á dagskrá hjá Gunnhildi? „Það er rosalega margt sem er hægt að gera og erfitt að velja. Ég er búin að spá mikið í ljósmyndun undanfarið, langar að læra betur að taka myndir og það eru miklar líkur á að ég reyni að ég reyni að komast í eitthvað þannig nám á næstunni,“ segir hún. „En mig langar líka að ferðast, helst til einhverra fjarlægra og framandi landa. Það færi einmitt mjög vel saman við að æfa sig að taka ljós- myndir. Það er aldrei að vita nema ég kýli bara á það,“ segir Gunn- hildur og brosir. kgk „Bandaríkjamenn eru rosalega gott og vingjarnlegt fólk“ GLEÐIFUNDUR UNGMENNAFÉLAGS REYKDÆLA 26. NÓVEMBER 2016 Logalandi Hefðbundin Gleðifundarstörf Gamanmál og gleði Dansleikur Verð: 2500 kr. fyrir félaga í Ungmennafélagi Reykdæla, 2800 kr. fyrir aðra Húsið opnar kl. 20:30 Dagskrá hefst kl. 21:30 Meginstreymi leikur fyrir dansi Aldurstakmark 16 ár á dansleikinn Gleðifundarnefnd Ungmennafélags Reykdæla SK ES SU H O R N 2 01 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.