Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 70

Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 70
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201670 Sundfólk úr Sundfélagi Akraness gerði gott mót á Íslandsmeistara- mótinu í 25 metra laug sem fram fór um helgina. Alls kepptu níu sund- menn frá félaginu á mótinu og sneru þrír þeirra heim með verðlaunapen- inga. Ágúst Júlíusson varð Íslandsmeist- ari í bæði 50 og 100 metra flugsundi. Hann setti nýtt Akranesmet og var undir lágmarkinu sem þarf til að öðlast þátttökurétt á Norðurlanda- mótinu sem fram fer í Danmörku 8.-12. desember næstkomandi. Þá vann hann silfurverðlaun í 50 m skriðsundi, einnig á nýju Akranes- meti og undir NM lágmarkinu. Sævar Berg Sigurðsson hreppti silfurverðlaun í 200 m bringusundi og var aðeins 0,02 sekúndum á eft- ir sigurvegaranum. Þá vann hann til bronsverðlauna í 100 m bringu- sundi. Brynhildur Traustadóttir átti mjög góða helgi. Hún bætti sinn besta ár- angur í 400 m skriðsundi um heilar 14 sekúndur og vann til bronsverð- launa. Þá féllu einnig á mótinu tvö Akra- nesmet í boðsundi; í 4x100 m fjór- sundi blandaðra sveita og í 4x100 m skriðsundi blandaðra sveita. „Allir okkar níu sundmenn sem voru á mótinu áttu margar góðar bætingar. Þau héldu stolt uppi merki ÍA og voru okkur öllum til sóma á bakkanum,“ segir í tilkynningu frá sundfélaginu. Ítarlegri úrslit má sjá á www.ia.is. kgk/ Ljósm. ia.is. Ágúst Júlíusson tvöfaldur Íslandsmeistari Ágúst Júlíusson, nýkrýndur Íslandsmeistari í 50 og 100 m flugsundi í 25 metra laug. Verðlaunahafar Sundfélags Akraness á mótinu. F.v. Sævar Berg Sigurðsson, Brynhildur Traustadóttir og Ágúst Júlíusson. Sundkonan Inga Elín Cryer frá Akra- nesi keppti á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug um síðustu helgi. Hún keppti í 50 m skriðsundi þar sem hún varð í fjórða sæti, hlaut silfurverðlaun í 100 m skriðsundi og 100 m flug- sundi. Þá vann hún bronsverðlaun í 50m flugsundi og 100 m fjórsundi. Einnig var hún í boðsundssveitum og þar vann sveit Ægis þrenn gullverð- laun og ein silfurverðlaun en í 4x100 m fjórsundi náði sveitin glæsilegum árangri og setti nýtt Íslandsmet en þær bættu metið um þrjár sekúndur. Inga Elín náði lágmarki inn á Norðurlandamótið sem haldið verð- ur í Danmörku í byrjun desemb- er. Hún keppti ekki í sínum sterk- ustu greinum; 200 m flugsundi og 200 m skriðsundi, vegna þess að hún náði einungis að æfa í þrjár vikur fyrir þetta mót sökum veikinda og formið því ekki nógu gott fyrir þær greinar. „Inga Elín greindist með slæman rist- il í september, sem kominn var niður í rót og hún var orðin mjög veik áður en það uppgötvaðist,“ segir Sigurlaug Karen Guðmundsdóttir móðir Ingu Elínar. Hún segir lækna hafa talið að hún væri með brjósklos en sem bet- ur fer hafi ekki svo verið. „Hún er nú öll að styrkjast og við vonum að hún komist sem fyrst í sitt besta form. Fólk var farið að spyrja okkur hvort hún væri hætt að synda því hún hefur ekki verið mjög áberandi það sem af er ári. En þetta er sem sagt ástæðan og svo tognaði hún einnig mjög illa á ökkla í febrúar og þar með var ÓL draum- urinn úti. En allt lítur þetta betur út núna og vonandi verður hún komin í sitt gamla form á nýju ári.“ Sigurlaug Karen segir það því hafa verið gleði- tíðindi að Inga Elín náði að keppa á ÍM 25 og var það framar öllum von- um að ná lágmarkinu inn á Norður- landamótið. Uppskera Ingu Elínar á Íslandsmeistaramótinu var því þrenn gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun. grþ Inga Elín náði lágmarki inn á Norðurlandamótið Veikindi hafa sett strik í reikninginn hjá Ingu Elín Cryer það sem af er ári en hún náði engu að síður góðum árangri á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug. Annað mót vetrarins, þar sem þátt- takendur frá Klifurfélagi Akra- ness tóku þátt, var haldið í Klifur- húsinu í Reykjavík á sunnudaginn. Fjölmargir ungir klifrarar mættu til þátttöku og voru að um 90 klifrar- ar sem tóku þátt. Nálægt 20 klifrar- ar frá ÍA á aldrinum 6-16 ára mættu til leiks og var gaman að sjá svona mörg ÍA merki í húsinu. Krakkarn- ir stóðu sig mjög vel og tókust á við erfiðar leiðir af áhuga og krafti. Í unglingaflokki kepptu þær Brimrún Eir og Ástrós Elísabet. Brimrún Eir landaði öðru sæti á mótinu en Ástrós Elísabet hafnaði í því fjórða. Eftir tvö mót er Brimrún Eir í öðru sæti í baráttunni um Ís- landsmeistaratitilinn og því spenn- andi seinni helmingur mótaraðar- innar framundan á næsta ári. Íslandsmeistaramót unglinga í línuklifri verður haldið í Björk- inni í Hafnarfirði 2. desember og ÍA sendi sínar stelpur til þátttöku í fyrsta skipti á slíkt mót. Það eru því stífar æfingar framundan fyrir þær og óskum við þeim góðs gengis. þs Metþátttaka á öðru klifurmóti vetrarins Strákarnir í Snæfellsnessamstarfinu í 2. flokki karla í fótbolta hafa heldur betur staðið sig vel undanfarið. Þeir taka þátt í Faxaflóamótinu og spila í A-deild B liða. Hafa þeir nú þegar spilað þrjá leiki. Unnu þeir Hauka á Ásvöllum 1-4 og Selfoss/Hamar/ Ægi/Árborg á Selfossi 0-1 og síð- asta laugardag unnu þeir FH 3-1 en sá leikur var heimaleikur Snæfells- ness en spilaður á Bessastaðavelli. Þetta er flottur árangur hjá þessum ungu strákum en 2. flokkur saman- stendur af strákum bæði úr 3. og 2. flokki. Eiga þeir eftir einn leik fyr- ir jól en hann verður þann 3. des- ember í Fífunni í Kópavogi á móti Breiðablik. Sameinað lið ÍA og Kára leikur einnig í A deild B liða í Faxaflóa- mótinu en báðum leikjum liðsins sem ráðgerðir hafa verið hingað til hefur verið frestað. Því er útlit fyr- ir að ÍA/Kári leiki sinn fyrsta leik 3. desember þegar liðið tekur á móti Keflavík í Akraneshöllinni. þa/kgk/ Ljósm. þa Liði Snæfellsness gengur vel í Faxaflóamótinu Fyrri umferð í Íslandsmeistara- mótinu í Futsal fór fram í Íþrótta- húsi Snæfellsbæjar síðastliðinn laugardag. Víkingur Ólafsvík keppir í D-riðli en þeir urðu Íslandsmeist- arar á síðasta ári. Með Víkingi í D- riðli eru Stál-Úlfur, Augnablik og Snæfell. Víkingur er í efsta sæti rið- ilsins með níu stig eftir umferð- ina. Unnu þeir alla sína leiki, skor- uðu 16 mörk og feng fjögur mörk á sig. Seinni umferðin verður spiluð sunnudaginn 11. desember í Kórn- um í Kópavogi. þa Víkingur á toppi riðilsins í Futsal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.