Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201622
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Bráðum koma blessuð jólin...
Mikið úrval af allskyns gjafavöru
Apótek Vesturlands verður með fjölbreytt
úrval af allskyns gjafavöru fyrir jólin.
Mikið úrval af bað- og ilmvöru auk ýmissa
annarra góðra kosta.
Komdu og kannaðu úrvalið.
Afgreiðslu
tími:
Virka da
ga
9–18
Laugar
daga
10–14
Sunnud
aga
12–14
Íslendingar auka eldvarnir á heim-
ilum sínum jafnt og þétt sam-
kvæmt rannsóknum sem Gallup
hefur gert fyrir Landssamband
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna og Eldvarnabandalagið á
undanförnum tíu árum. Nýjasta
rannsókn Gallup sýnir að nú eru
allt í senn reykskynjarar, eldvarna-
teppi og slökkvitæki á yfir helm-
ingi íslenskra heimila í fyrsta sinn
frá því mælingar hófust. Heimil-
um sem eiga eldvarnateppi fjölg-
aði um fimm prósentustig frá 2014
og alls um ríflega átta prósentustig
síðan 2006. Slökkvitæki var á ríf-
lega 61% heimila 2006 en rúmlega
72% nú. Þá fjölgar sífellt heimilum
með þrjá reykskynjara eða fleiri.
„Þótt eldvörnum sé sannar-
lega verulega ábótavant hjá mörg-
um er þetta afar ánægjuleg þróun
og jákvætt að fá svona niðurstöðu
nú þegar við erum að hefja árlegt
Eldvarnaátak slökkviliðsmanna í
grunnskólum um allt land. Þetta
styrkir okkur bara í þeirri trú að
eldvarnafræðsla okkar, Eldvarna-
bandalagsins og fleiri skili ár-
angri,“ segir Valdimar Leó Frið-
riksson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna (LSS). Nýjasta
rannsókn Gallup var gerð fyrir
LSS og Eldvarnabandalagið í sept-
ember og október síðastliðnum en
Gallup hefur kannað ástand eld-
varna á heimilum fyrir þessa aðila
á tveggja ára fresti frá 2006. Þátt-
takendur nú voru 1.418 og þátt-
tökuhlutfallið 59,1%.
mm
Íslensk heimili efla
varnir gegn eldsvoðum
Slökkvitæki eru nú á 72% heimila. Myndin er frá slökkviliðsæfingu á Akranesi
2014 þegar kveikt var í gömlu húsi í Gámu.
Flestir geirar íslenskrar verslunar
njóta góðs af auknum kaupmætti og
vaxandi einkaneyslu. Jafnframt er ljóst
að aukinn straumur erlendra ferða-
manna hefur talsverð áhrif á versl-
un. Í október síðastliðnum var heild-
argreiðslukortavelta erlendra ferða-
manna 17,5 milljarðar króna sem er
67,1% hærri upphæð en í október í
fyrra. En þessara áhrifa gætir ekki á
öllum sviðum. Samkvæmt nýrri sam-
antekt Rannsóknamiðstöðvar versl-
unarinnar dróst velta í fata- og skó-
verslun hér á landi saman í október
síðastliðnum frá sama mánuði í fyrra.
Þetta gerist jafnvel þótt verð á fötum
hafi verið 5,9% lægra en fyrir ári. „Ef
borin er saman velta í fataverslun síð-
ustu þrjá mánuði við sömu þrjá mán-
uði í fyrra sést að nánast engin breyt-
ing var á veltunni á milli ára.“ Þá er
tekið fram að um síðustu áramót voru
felldir niður tollar af fötum sem hvati
til aukinnar sölu á fötum hér innan-
lands. Þannig var ætlunin að sporna
gegn þeirri þróun að Íslendingar
sem ferðist til annarra landa kaupi í
miklu magni föt í útlöndum og fata-
verslunin flyttist heim í staðinn. „Á
þessu ári hefur gengi íslensku krón-
unnar styrkst verulega og þar með
er hagstæðara fyrir landsmenn að
versla erlendis núna en í fyrra. Enda
var greiðslukortavelta Íslendinga er-
lendis í október síðastliðnum 19%
meiri en í október í fyrra, sem gefur
vísbendingu um að aukning hafi ver-
ið í innkaupum landsmanna erlendis.
Líklega eru fatakaup þar innifalin,“
segir í samantekt Rannsóknamið-
stöðvarinnar.
Áframhaldandi aukning var í sölu
annarra vöruflokka í október. Þannig
jókst sala í dagvöruverslun um 4,3%
frá október í fyrra. Sala dagvöru síð-
astliðna þrjá mánuði var 7,3% meiri
en á sama tímabili í fyrra. Í október
jókst sala húsgagna um 19,2% frá
sama mánuði og í fyrra. Þar af jókst
velta sérverslana með rúm um 23,5%
frá því í fyrra. Þegar borin er saman
velta húsgagna síðustu þriggja mán-
aða við sömu mánuði í fyrra jókst
veltan um 26%. Stór heimilistæki,
líkt og kæliskápar og þvottavélar,
njóta einnig aukinna vinsælda í að-
draganda jóla. Sala á slíkum tækjum
jókst um 13,5% frá október í fyrra.
mm
Fataverslun nýtur ekki góðs
af vaxandi einkaneyslu
Það gekk mikið á í anddyri Arion
banka í Grundarfirði síðastliðinn
miðvikudag þegar skipt var um hrað-
banka í útibúinu. Gamli hraðbank-
inn var kominn til ára sinna og farinn
að vera til vandræða. Nýi hraðbank-
inn er mun fullkomnari en þar verð-
ur bæði hægt að taka út og leggja inn
sé þess óskað. Mun þetta vera fyrsti
slíki hraðbankinn á Snæfellsnesi en
þeir eru þó komnir víða um land.
Verktakar á vegum bankans stóðu í
ströngu þegar ljósmyndari átti leið
hjá en þá var búið að rífa niður veggi
innan byggingarinnar til að koma
nýja hraðbankanum fyrir. tfk
Nýr hraðbanki í Grundarfirði