Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201616
Að venju verður Lionsklúbbur
Akraness með útleigu á ljósakross-
um í kirkjugarðinum nú í byrjun að-
ventunnar. Afgreiðslutímar að þessu
sinni verða laugardaginn 26. nóvem-
ber frá kl. 11.00. – 16.00, sunnudag-
inn 27. nóvember frá kl. 11.00. –
16.00. og laugardaginn 3. desember
frá kl. 13.00. – 16.00.
Lionsklúbbur Akraness hefur
frá árinu 1958 styrkt Sjúkrahúsið
á Akranesi, nú Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Akranesi, með tækja-
gjöfum. Lionsklúbburinn mun halda
áfram að leggja sitt af mörkum til
stuðnings Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands. Meðal annars hefur klúbb-
urinn gefið rausnarlega til söfnunar
Hollvinasamtakanna á nýju sneið-
myndatæki og gjörgæslutæki að
andvirði tvær milljónir. Upplýsing-
ar um útleigu krossanna gefa Valdi-
mar Þorvaldsson í síma 897-9755 og
Ólafur G. Ólafsson í síma 844-2362.
Gjaldið að þessu sinni er óbreytt
frá fyrra ári, eða 6.500 krónur fyrir
krossinn. Þá má panta krossa á net-
fangið olafurg@sjova.is og valdith@
aknet.is Um leið og við Lionsmenn
þökkum kærlega fyrir frábæran
stuðning undanfarin ár vonumst við
til þess að sá stuðningur haldi áfram.
Fréttatilkynning frá Lionsklúbbi
Akraness
Lions með ljósakrossa líkt og síðari ár
Friðrik Vignir Stefánsson, sem
þjónaði sem organisti í Grundar-
fjarðarkirkju um langt tímabil, hélt
nýverið kynningu fyrir nemend-
ur grunnskóla Grundarfjarðar og
Snæfellsbæjar í Grundarfjarðar-
kirkju. Kynningin bar yfirskriftina
„Bach fyrir börnin“ en þar kynnti
Friðrik orgelið og raddir þess fyr-
ir nemendum skólanna ásamt því
að kynna verk tónskáldsins Johann
Sebastian Bach. Það var margt for-
vitnilegt að sjá fyrir áhugasama
og gaman að skyggnast inn í heim
organista. Það var Listvinafélag
Grundarfjarðarkirkju sem stóð fyr-
ir þessum viðburði.
tfk
Bach fyrir börnin í Grundarfirði
Friðrik Vignir þenur orgelið af mikilli snilld.
Stjórn Lands-
sambands fisk-
eldisstöðva sam-
þykkti samhljóða
á fundi sínum
í liðinni viku
að leggja til við
aukaaðalfund LF
að Einar Krist-
inn Guðfinnsson
verði kjörinn í
stjórn sambands-
ins og taki þar
við formennsku
í stjórn þess.
Aukaaðalfundur-
inn verður hald-
inn á morgun,
24. nóvember. Einar Kristinn hef-
ur lengi bundið vonir við að fisk-
eldi geti svarað ákalli byggðarlaga
sem hafa átt undir högg að sækja í
atvinnumálum og hefur í málflutn-
ingi sínum sem þingmaður sýnt
fiskeldi áhuga og skilning og stutt
dyggilega við uppbyggingu þess.
„Stjórn Landssambands fiskeldis-
stöðva mat það svo að fengur yrði
af því fyrir atvinnugreinina féllist
Einar á að ganga til liðs við lands-
sambandið, nú að lokinni þing-
mennsku. Ákvað stjórn LF því að
leita til hans um þátttöku í stjórn
sambandsins sem stjórnarformað-
ur. Á það hefur Einar fallist,“ segir í
tilkynningu frá LF.
Í máli Einars Kristins á stjórn-
arfundi LF, sem haldinn var í síð-
ustu viku, kom fram að honum
þætti spennandi að fá tækifæri til
að hafa bein áhrif á þróun þessar-
ar mikilvægu atvinnugreinar, sem
þegar hefur valdið straumhvörfum
á einstökum landssvæðum, eins og
kunnugt er og getur orðið burð-
arás í atvinnulífi fleiri byggðarlaga
sem staðið hafa höllum fæti. „Ég
hef ávallt litið á mig sem erindreka
fjölþættra atvinnutækifæra í lands-
byggðunum og sem stjórnarfor-
maður LF fæ ég kærkomið tæki-
færi til þess að halda þeirri veg-
ferð áfram. Ég er sannfærður um
að hægt sé að vinna að uppbygg-
ingu fiskeldis í sátt við umhverfi
og lífríki náttúrunnar og hef skynj-
að mikinn metnað hjá fiskeldisfólki
á því sviði. Fiskeldi á Íslandi er á
ákveðnum tímamótum. Þegar hafa
verið lagðir miklir fjármunir í upp-
byggingu þess með góðum árangri.
Framundan er frekari uppbygging
til hagsbóta fyrir þjóðarbúið allt.
Það er áhugavert að þessi uppbygg-
ing fer að lang mestu leyti fram á
landsbyggðinni og þá ekki hvað síst
í byggðarlögum sem hafa háð erf-
iða varnarbaráttu undanfarin ár,“
sagði Einar.
mm
Einar Kristinn tekur við
formennsku í LF
Ný sending af JBS herra
náttbxum og dömu
náttfötum og kjólum
Ilmandi
gjafapakkningar
Maskaraöskjur með kaupaukum.
Mörg girnileg jólatilboð þar sem
þú borgar fyrir ilminn, kremið
eða snyrtivöruna og færð flotta
kaupauka með.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÞÚ FINNUR OKKUR Á FACEBOOK
Minnum á flottu gjafabréfin
JÓLAFÖTIN OG ALLT Í JÓLAPAKKANN
HJÁ OKKUR Í BJARGI
Vandaðar
íslenskar vörur
Unnar úr ekta refa-, úlfa-,
lamba- og kanínuskinnum.
Kragar – treflar – leður og
mokka hanskar, lúffur og
margt fleira.
Frábærar regnkápur
verð kr. 11.990,-
Til í gulu, bláu, svörtu, grænu
og vínrauðu.
Úrval í öðrum yfirhöfnum fyrir
dömur og herra.