Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201612 Mikið tjón varð í bruna í fisk- þurrkuninni á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi síðastliðinn mánudagsmorgun. Það var öku- maður flutningabíls um Snæfells- nesveg sem fyrstur varð eldsins var og hringdi í Neyðarlínuna. Allt til- tækt slökkvilið frá sveitarfélögun- um á Snæfellsnesi, Borgarbyggð og Akranesi var kallað út klukk- an 4:50 um morguninn. Auk þess var sendur búnaður frá Brunavörn- um Suðurnesja. Viðbúnaður var mikill enda strax ljóst að um stór- bruna væri að ræða. Tvö stór verk- smiðjuhús brunnu en eldvarnar- veggur, gott veður og snör handtök slökkviliðsmanna kom í veg fyrir að eldur næði að læsa sig í stærsta húsið í þyrpingunni og það nýjasta. Lögð var áhersla á að verja það en eldri húsum var ekki bjargað enda alelda þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn. Það tók slökkvilið milli þrjá og fjóra tíma að ráða niður- lögum eldsins og tryggja svæðið. Fljótlega var byrjað að rífa ónýtar byggingar til að verja þær sem eftir stóðu. Byggingar voru bæði marg- ar og flóknar, eins og sést á með- fylgjandi mynd, og því var um erfitt slökkvistarf að ræða. Slökkvistarf gekk engu að síð- ur vel miðað við aðstæður, að sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar slökkvi- liðsstjóra í Borgarbyggð, sem stýrði aðgerðum. Hann segir tjónið gríð- arlegt á mannvirkjum. Eldsupptök eru ókunn en lögregla hóf strax á mánudaginn rannsókn á upptökum eldsins. Tjónið metið Ljóst er að bruninn á Miðhrauni er stærsti eldsvoði á Vesturlandi í seinni tíð. Á Miðhrauni hefur ver- ið starfrækt fiskþurrkun, aðallega hausaþurrkun, í tæpa tvo áratugi og hefur fyrirtækið verið langstærsti vinnuveitandinn í Eyja- og Mikla- holtshreppi um árabil. Tjónið fyrir fyrirtækið er mikið og ákveðið áfall sem samfélagið verður fyrir við slíkan atburð. Þrátt fyrir áfallið var hugur í Sigurði Hreinssyni á Mið- hrauni þegar blaðamaður Skessu- horns ræddi við hann í gærmorg- un. Sigurður hefur ásamt Bryndísi Guðmundsdóttur eiginkonu sinni byggt upp stórfyrirtæki í sveitinni og veitir það stórum hluta íbúa at- vinnu og er m.a. grunnstoð undir rekstur skóla í sveitarfélaginu. Sig- urður og Bryndís voru í gær að taka á móti fulltrúum tryggingafélagsins til að fara yfir tryggingamálin og meta stöðuna. Hann segir þau hjón ákveðin í að byggja upp að nýju. „Samfélagsleg ábyrgð okkar er mikil“ Sigurður á Miðhrauni er afar þakk- látur slökkviliðsmönnum fyrir vask- lega framgöngu á vettvangi brunans. „Þeir stóðu sig eins og hetjur og vil ég koma á framfæri kæru þakklæti til allra slökkviliðsmanna og ann- arra sem komu að aðstoð við okk- ur. Þrátt fyrir að mikið hafi brunnið af mannvirkjum voru engu að síður lukkudísir með í för. Til dæmis var veður með besta móti, logn mestan þann tíma sem eldurinn logaði. Þá hjálpaði mikið að bæði rafmagns- inntakið og vatnsinntaksmannvirki sluppu, nánast á einhvern óútskýr- anlegan hátt. Ef rafmagnsinntak hefði brunnið væri allt enn erfiðara en raun ber vitni og við án rafmagns í marga daga. Einnig var ammoní- akið í þeim hluta bygginganna sem sluppu. Þá er mikið lán að nýjasta verksmiðjuhúsið slapp og eldvegg- ur milli bygginga hélt. Ef nýja hús- ið hefði brunnið líka, hefði orð- ið um altjón að ræða bæði á bygg- ingum og tækjum. Loks var einnig mikið lán hversu mikið vatn kemur hér undan hrauninu. Það hjálpaði verulega að slökkviliðsmenn höfðu nóg af því,“ segir Sigurður. Hann viðurkennir að auðvitað séu þau hjón og aðrir starfsmenn í ákveðnu sjokki og voru þau enn að melta það sem gerst hafði þegar blaðamaður ræddi við Sigurð í gærmorgun. Engu að síð- ur var ekki annað að heyra á honum en uppbygging færi á fullt, þegar búið verður að meta tjónið og átta sig betur á aðstæðum. „Það er ekki einvörðungu nauðsynlegt að hugsa þetta út frá búinu og fyrirtækinu okkar, heldur finnum við vel fyr- ir þeirri samfélagslegu ábyrgð sem við gegnum hér í hreppnum. Það er mikið undir að við höldum starfi okkar áfram. Hjá okkur er fólk sem búið er að starfa hjá okkur í tíu, fimmtán ár, og framtíð skólans og viðgangur samfélagsins byggist á því að við leggjum ekki árar í bát, þrátt fyrir þetta áfall,“ sagði Sig- urður Hreinsson að endingu. mm/ Ljósm. Tómas Freyr Krist- jánsson og Alfons Finnsson. Gríðarlegt tjón þegar fiskþurrkunin á Miðhrauni brann Byggingarnar kældar. Skömmu síðar var byrjað að rífa húsin til að verja mannvirkin sem eftir stóðu. Ljósm. tfk. Veggir kældir, en húsið nánast hrunið. Ljósm. af. Þannig var aðkoman þegar slökkviliðsmenn mættu. Hluti húsanna alelda. Ljósm. tfk. Miðað við aðstæður gekk slökkvistarf vel. Ljósm. tfk. Skömmu eftir féll stafn þessa húss. Ljósm. af. Svona var umhorfs á svæðinu í sama mund og fyrstu geislar sólar sáust. Ljósm. tfk. Hreinsun í rústunum skömmu eftir að slökkt var í síðustu glæð- unum. Ljósm. tfk. Svanur Tómason slökkviliðsstjóri í Snæfellsbæ í „aktion“. Ljósm. tfk. Eftir að slökkvistarfi lauk á mánudaginn blasti mikil eyðilegging við. Ljósm. tfk. Ljósmynd af húsakosti á Miðhrauni fyrir brunann. Til vinstri eru byggingarnar sem brunnu, en nýja húsið til hægri slapp. Ljósm. fengin af vef Félagsbúsins á Miðhrauni. Loftmynd tekin í gær sem sýnir vel brunarústir tveggja húsa en neðst er húsið sem slapp. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.