Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Side 14

Skessuhorn - 23.11.2016, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201614 Miðvikudaginn 16. nóvember síð- astliðinn var nemendum og starfs- fólki Fjölbrautaskóla Vesturlands boðið til viðburðar á sal skólans í tengslum við forvarnarfræðslu og heilsueflingu FVA. Fór þar fram formleg afhending á nýjum áfeng- ismæli sem Minningarsjóður Lo- vísu Hrundar færði skólanum af gjöf. Sigurður Már Gunnarsson afhenti mælinn fyrir hönd sjóðs- ins. Áfengismælirinn kemur til með að nýtast nemendafélagi skólans, sem hefur undanfarin ár haldið úti svokölluðum edrúpotti á dans- leikjum á vegum félagsins. Nem- endur eru þannig hvattir með já- kvæðum hætti til að skemmta sér án áfengis. Þeir sem kjósa að blása í áfengismæli við inngöngu á dans- leiki fara í happdrættispott og geta unnið til vinnings. Hefur þátttak- an aukist jafnt og þétt og um þess- ar mundir taka um 40% nemenda sem sækja viðburði á vegum nem- endafélagsins þátt í edrúpottinum. „Skólinn þakkar Minningarsjóði Lovísu Hrundar kærlega fyrir styrkinn,“ segir á heimasíðu FVA. Að afhendingu lokinni steig Krist- ín Edda Búadóttir, hjúkrunarfræð- ingur á fíknideild Landspítalans, í pontu og flutti erindi um ungt fólk og vímuefnaneyslu. kgk Sigurður Már Gunnarsson afhenti FVA nýjan áfengismæli fyrir hönd Minningar- sjóðs Lovísu Hrundar. Með honum á myndinni eru Kristín Edda Búadóttir for- varnafulltrúi (t.v.) og Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari (t.h.). Ljósm. fva.is. Minningarsjóður Lovísu Hrundar gaf FVA áfengismæli SK ES SU H O R N 2 01 5 Eftir áramót mun Háskólinn á Bif- röst fara af stað með nýtt meist- aranám í viðskiptalögfræði. Nám- ið hentar jafnt þeim sem lokið hafa grunngráðu í lögfræði svo og þeim sem hafa aðra grunnmenntun en vilja styrkja stöðu sína með MBL námi sem stendur fyrir Master in business law. „Nýmælið felst í því að bjóða upp á sérhæft meistaranám í viðskiptalögfræði sem ætlað er sérstaklega til að styrkja stöðu fólks sem hefur reynslu úr fyrirtækjaum- hverfinu og hentar ekki síður fyr- ir þá sem lokið hafa háskólaprófi af öðrum sviðum en lögfræði. Þann- ig erum við nú að opna lagadeildina og leggjum áherslu á breiða og hag- nýta menntun sem eflir stjórnend- ur í lykilgreinum viðskiptalögfræði en þær eru jafnframt lykilsvið við- skiptaumhverfis,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir forseti lagadeildar við Háskólann á Bif- röst. Hún bætir við að með þessu sé farið inn á svipaðar brautir í meist- aranámi og fólk þekkir úr viðskipt- um og stjórnsýslu, með gráðum á borð við MBA og MPA. Samhliða MBL náminu verður boðið upp á þrjár diplómur, sem eru styttri námsleiðir af afmörkuð- um sviðum viðskiptalögfræðinnar. Um er að ræða 30 eininga náms- leiðir, þ.e. diplóma í fyrirtækjalög- fræði, diplóma í samningatækni og sáttamiðlun og loks diplóma í skattarétti sem hefst næsta haust. Háskólinn á Bifröst var fyrst- ur íslenskra háskóla til að bjóða upp á þverfaglega námsgráðu í lög- fræði með BS námi í viðskiptalög- fræði. Námið hefur verið vinsælt og meistaranám á sama sviði því eðli- leg framvinda námsins. MBL nám í viðskiptalögfræði er 90 eininga nám án ritgerðar sem hægt er að ljúka á einu og hálfu ári eða á lengri tíma. Þá verður áfram í boði 120 eininga ML gráða í viðskiptalög- fræði fyrir þá sem lokið hafa grunn- námi í lögfræði og vilja ljúka fulln- aðarprófi í lögfræði með meistara- ritgerð. Námið verður kennt í fjar- námi en Háskólinn á Bifröst hefur áralanga reynslu af slíkri kennslu. Fyrirlestrar og kennsluefni í hverju námskeiði er aðgengilegt nemend- um á innri vef skólans. Nemendur geta þannig skipulagt hvenær þeir hlusta á fyrirlestra eftir hentugleika hverju sinni. mm Nýtt meistaranám í viðskipta- lögfræði í boði á Bifröst Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.