Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 23.11.2016, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201624 t ht.is 7 VERSLANIR UM LAND ALLT OFURTILBOÐ Ultra HD 4K 3840 x 2160 upplausn. Pixel Precise Ultra HD myndvinnsla. Micro Dimming Pro baklýsing. 1800 Hz PPI. HDR Plus. Ambilight 3 – Þriggja hliða baklýsing. 20W RMS DTS Premium Sound hljóðkerfi. Android 5.1. (Lollipop). Innbyggður gervihnattamóttakari. ULTRA HD SNJALLSJÓNVÖRP Á ÓTRÚLEGU VERÐI49” 55” með Android Philips 55PUS6561 TILBOÐ VERÐ ÁÐUR 239.995 169.995 55” Philips 49PUS6561 TILBOÐ VERÐ ÁÐUR 199.995 134.995 49”ÞRIGGJA HLIÐA BAKLÝSING 2 GamePad stýripinnar að verðmæti 9.990 fylgja með. 12 MÁNAÐA VAXTALAUSAR GREIÐSLUR Snjó kyngdi niður í Borgarfirði undir lok síðustu viku líkt og víðar um land- ið. Þrátt fyrir það héldu verktakar áfram með framkvæmdir við stækk- un Fosshótels Reykholti. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessu- horns er búið að jarðvegsskipta fyrir stækkun hótelsins og þá verður einn- ig eldra hótelrými endurnýjað mik- ið. Hótelið er lokað af þessum sök- um fram á næsta ár. Á meðfylgjandi myndum er verið að dæla steypu frá Loftorku í grunn viðbyggingar við anddyri hótelsins. Frostið var lítið en engu að síður voru gerðar viðeigandi ráðstafanir, m.a. með heitu vatni til að verja steypuna. mm/ Ljósm. Guðlaugur Óskarsson. Steypt þrátt fyrir fyrsta snjóinn Neytendasamtökin hafa á síðustu dögum átt í viðræðum við banka- stofnanir, fjarskiptafyrirtæki og fyr- irtækið Auðkenni vegna gjaldtöku á rafrænum skilríkjum. „Að mati Neytendasamtakanna fellur óveru- legur kostnaður til hjá fjarskipta- fyrirtækjum vegna notkunar neyt- enda á rafrænum skilríkjum og eng- ar efnislegar forsendur standa til þess að láta neytendur greiða fyrir þá notkun. Notkun rafrænna skil- ríkja leiðir til verulegs hagræðis hjá fjármálastofnunum, opinberum að- ilum og fleiri fyrirtækjum, svo nem- ur gríðarlegum fjárhæðum og ekki kemur til greina að rukka neytendur fyrir notkun þeirra,“ segir í tilkynn- ingu frá Neytendasamtökunum. Þá segir að Síminn hafi tilkynnt að ekki standi til að hefja gjaldtöku vegna notkunar neytenda á rafræn- um skilríkjum og Vodafone hefur frestað gjaldtöku, sem fyrirhugað var að hefja um næstu mánaðamót. „Neytendasamtökin fagna þeirri ákvörðun og telja eðlilegt að fyrir- tækið falli með öllu frá fyrirhugaðri gjaldtöku. Eftir stendur að Nova hefur um skeið innheimt gjald af viðskiptavinum sínum vegna notk- unar rafrænna skilríkja og hyggst gera það áfram. Neytendasam- tökin telja, sem áður segir, eng- ar efnislegar forsendur vera fyr- ir þeirri gjaldtöku. Neytendasam- tökin leggja áherslu á að það hag- ræði og sparnaður sem verður til hjá fjármálafyrirtækjum og öðrum þeim fyrirtækjum og stofnunum vegna notkunar rafrænna skilríkja sé er margfaldur á við þann kostn- að sem til fellur og því er fráleitt að neytendur séu sérstaklega rukkaðir fyrir notkun þeirra. Neytendasamtökin fagna því að almennt virðist ríkja skilningur hjá hagsmunaaðilum að mikilvægt sé að tryggja gjaldfrelsi neytenda við notkun rafrænna skilríkja. Mikil- vægt er að nota tímann nú vel og finna lausn, sem tryggir til fram- búðar að rafræn skilríki verði neyt- endum að kostnaðarlausu. Neyt- endasamtökin munu beita sér í þeim efnum. Mikilvægt er að öll gjaldtaka af neytendum vegna notk- unar rafrænna skilríkja hætti,“ segir að endingu í tilkynningu. mm Vilja að hætt verði við gjaldtöku á rafrænum skilríkjum Ár hvert halda Lionsklúbbar kvenna á Snæfellsnesi samfund. Þetta eru Lkl. Harpa í Stykkishólmi, Lkl. Rán í Ólafsvík og Lkl. Þernan á Hellissandi. Í ár var fundurinn haldinn hjá Lions- klúbbnum Þernunni á Hellissandi 14. október síðastliðinn. Að sjálf- sögðu var bleikt þema og í tengslum við fundinn ákváðu Þernukonur að styrkja Bleiku slaufuna. Alltaf er kátt á hjalla á þessum fundum, og var vel við hæfi að tengja þessa gleði við Bleiku slaufuna. Með kveðju, Steinunn Júlíusdóttir, blaðafulltrúi Þernunnar. Þernan styrkti bleiku slaufuna Þjóðbraut 1 - Akranesi S: 431 3333
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.