Skessuhorn - 23.11.2016, Page 32
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201632
Jólaseríur inni og úti - Yankee ilmkerti - Jólastjörnur
Gjafavörur- Eldiviður og svo margt margt fleira
Skagabraut 17 • Akranesi
Opnunartími:
Mánud. - föstud. 13 - 18
Laugardaga 10 - 14Tökum vel á móti þér SKES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Nú um stundir stýrir ungur maður
deild rafiðngreina í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi, en það er
Skagamaðurinn Þórður Eiríksson.
Þórður er 32 ára og hóf að kenna
vorið 2016 eftir að hafa starfað í
nokkur ár sem rafvirki. Hann er
ekki ókunnugur FVA því þar lærði
hann fagið og lauk stúdentsprófi á
sínum tíma. Að auki eru foreldr-
ar hans, Steinunn Eva Þórðardótt-
ir og Eiríkur Guðmundsson, kenn-
arar við skólann, en Eiríkur kennir
rafiðngreinar.
Þýskan beindi honum
í rafmagnið
Þórður segir þýsku hafa verið ör-
lagavald í því af hverju hann fór að
læra rafvirkjun. „Fyrstu þrjú árin í
FVA var ég á náttúrufræðabraut og
gekk ágætlega þangað til kom að
því að taka þýsku. Það fag átti illa
við mig og tók ég því u-beygju og
skráði mig í rafvirkjun til að komast
framhjá þýskunni,“ segir Þórður og
glottir þegar hann rifjar þetta upp.
„Reyndar hafði ég ekki fastmótaðar
hugmyndir um hvað ég vildi verða
þessi fyrstu þrjú árin í FVA. Raf-
magnið heillaði hins vegar og fann
ég fljótt að ég var kominn á rétta
hillu.“
Fjölbreytt fag
Ekki hefur verið skortur á verk-
efnum síðan Þórður útskrifaðist
sem rafvirki. „Ég hef unnið á ýms-
um stöðum, m.a. hjá Límtré-Vír-
neti í Borgarnesi og hjá vélafyrir-
tækinu Traust Þekking í Lækjarkoti
í Borgarfirði. Þá lauk ég BS námi
í hátækniverkfræði í Háskólanum
í Reykjavík fyrir fáeinum árum,“
segir Þórður sem segir nám í raf-
iðnum opna margar dyr. „Þetta fag
er gríðarlega fjölbreytt. Það er til
dæmis stuttur vegur milli rafmagns
og tölvutækninnar og því ætti sá
sem hefur grunn í rafvirkjun og er
skapandi einstaklingur að eðlisfari
að geta fundið sér farveg í rafmagn-
inu. Þar fyrir utan er mikil vöntun
á rafvirkjum og því eiga þeir sem
eru að ljúka námi kost á að komast
beint í starf á góðum kjörum.“
Nóg pláss í iðnnáminu
Að sögn Þórðar eru um 40 nem-
endur sem nú stunda rafiðnað-
arnám í FVA. „Það er einvala-
lið kennara hérna í deildinni með
mikla þekkingu og eru margir
hoknir af reynslu eftir margra ára
störf. Koma mín hingað lækkaði
meðalaldurinn hressilega og held
ég að starfsfélagar mínir hafi ver-
ið ánægðir með að sjá það gerast,“
segir Þórður.
Hann segir skólann geta tekið
við fleiri nemendum í rafiðnarðar-
nám og hvetur þá sem eru að hugsa
um framhaldsnám að íhuga að læra
rafiðn. „Þetta er á vissan hátt und-
arlegt ástand þar sem atvinnulífið
hefur verið að kalla eftir fleiri fag-
lærðum rafvirkjum í mörg ár. Ein-
hverra hluta vegna er hins veg-
ar fyrsta val langflestra nýnema að
fara í bóknám. Skýringarnar eru
vafalaust fjölbreyttar. Ég held til
dæmis að sú hugsun að iðnnám sé á
einhvern hátt á lægri virðingarstalli
en bóknám sé ansi inngróin í und-
irmeðvitund samfélagsins. Fyrsta
val margra, kannski ómeðvitað, er
því að fara í bóknám af því að það
er normið. Þessari hugsun þarf að
breyta,“ segir Þórður.
„Síðan mætti nefna aðrar skýring-
ar sem snerta FVA. Stofnun fram-
haldsskóla í Borgarnesi og Grund-
arfirði virðist hafa dregið úr aðsókn
í iðnnám hjá okkur. Þaðan koma
varla nemendur lengur til okkar.“
Þórður telur lausnina felast í því að
vekja meiri athygli á tækifærunum
sem bjóðast í greininni. „Ég held að
með því að gera þeim möguleikum
sem bjóðast í iðnnámi hærra und-
ir höfði þá átti fólk sig betur á því
hvað þetta er góð menntun. Það
byrjar með því að tala um mögu-
leikana.“
Sjálfur í rekstri
Þórður býr á Kleppjárnsreykjum
í Reykholtsdal ásamt eiginkonu
sinni Þóru Geirlaugu Bjartmars-
dóttur kennara og tveimur dætr-
um þeirra, Steinunni 4 ára og Kol-
brúnu 2 ára. Þau settust þar að fyr-
ir fáeinum árum þegar þau keyptu
gamla læknisbústaðinn á staðnum
og hófu að gera hann upp. „Við
erum komin langt með endurbæt-
urnar. Framkvæmdir hafa eðlilega
tekið dálítinn tíma og voru ýms-
ir sem sögðu við okkur þegar við
voru að spá í að kaupa húsið að
endurbætur væru næsta vonlaus-
ar. Annað hefur hins vegar kom-
ið á daginn,“ segir Þórður. „Ég er
svo með aðstöðu heima hjá mér á
Kleppjárnsreykjum, en þar sinni
ég eigin rekstri í hjáverkum,“ bæt-
ir hann við en meðal verkefna hef-
ur verið að hanna og koma fyrir
hitastýringarbúnaði í Krauma við
Deildartunguhver.
Á réttum stað
Þórður kveðst finna sig vel í kennsl-
unni og býst við að starfa við hana
á næstu árum. „Það er góður andi
hérna í deildinni og ánægjulegt að
fá tækifæri til að leiðbeina rafvirkj-
um framtíðarinnar. Síðan er raf-
magnsiðnaðurinn í sífelldri þróun
þannig að maður verður að fylgj-
ast vel með nýjungum í greininni ef
maður á að vera með á nótunum.
Ég tel að ég sé því á réttum stað.“
hlh
Á réttri hillu í rafmagninu
- rætt við Þórð Eiríksson rafvirkja og kennari við rafiðnaðardeild
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
Þórður Eiríksson í kennslustofunni í FVA á Akranesi.
Gjafakort fyrir tvo á
gamanleik eins og þeir
gerast bestir
Úti að aka
9.950 kr.
Miði fyrir tvo á þessa vinsælu
fjölskyldusýningu og
geisladiskur með tónlistinni
Blái hnötturinn
10.600 kr.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort fyrir tvo ásamt
gómsætri leikhúsmáltíð fyrir
sýningu eða í hléi
Gómsætt leikhúskvöld
12.950 kr.
Sérstök
jólatilboð
Gefðu töfrandi kvöldstund í jólagjöf!
Gjafakort
Borgarleikhússins