Skessuhorn - 23.11.2016, Page 41
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016 41
fyrir sameiginlega hitaveitu Lund-
dælinga. „Maður nýtur allar stund-
ir þegar veðurskilyrðin eru góð til að
sjóða saman lögnina,” bætir hann við
en vonast er til að vatn fari að renna
um nýju lögnina á næstunni sem
muni tryggja Lunddælingum nægar
birgðir af heitu vatni í framtíðinni.
Langeygir eftir þriggja
fasa rafmagni
„Staðsetningin háir okkur ekki til
að sinna viðskiptavinum okkar en
við leynum því þó ekki að við erum
orðnir langeygir eftir þriggja fasa raf-
magni,” segir hann spurður um þá
stöðu að rekja járnsmiðju í dreifbýli.
Nú um stundir nær þriggja fasa raf-
magn aðeins að Skálpastöðum neðst
í Lundarreykjadal. „Það myndi koma
sér vel að lengja þriggja fasa streng-
inn ofar í dalinn. Með því gætum við
eflt tækjakostinn okkar og þannig
þróað smiðjuna okkar betur. Svo eru
samgöngurnar sífellt að batna. Þær
munu skapa fleiri tækifæri fyrir dal-
inn til framtíðar.”
Logi Sigurðsson og Lára
Lárusdóttir, Steinahlíð:
Líður best í sveitinni
Á nýbýlinu Steinahlíð standa Logi
Sigurðsson og Lára Lárusdóttir nú í
ströngu við að koma sér þaki yfir höf-
uðið. „Við ákváðum að byggja hér
fyrir ekki svo löngu síðan. Við erum
bæði uppalin í sveit og þar líður okk-
ur best,” segja þau.
Uppruni þeirra beggja er í hér-
aðinu. „Það má segja að ég sé úr Borg-
arfirði,” segir Logi. „Foreldrar mínir
fluttu í Borgarfjörðinn þegar ég var
sex ára. Árið 2006 keyptu þau nýbýlið
Steinahlíð og reistu nýtt íbúðarhús.
Við búum í því núna á meðan húsið
okkar er í byggingu. Ég lít algjörlega
á mig sem Borgfirðing, þó ég sé ekki
alveg innfæddur.”
Lára er aftur á móti fædd og upp-
alinn á Hvanneyri. „Við Logi erum
jafngömul og vorum í sama bekk í
Kleppjárnsreykjaskóla. Við byrjuðum
saman í 9. bekk og höfum verið sam-
an síðan,” segir hún en þau eru 24
ára gömul og eiga saman dótturina
Eik sem er eins árs gömul. „Við erum
mjög ánægð með að hún fái, eins og
við, að alast upp í sveit. Þá spillir ekki
fyrir að fleiri börn eru á nærliggjandi
bæjum.”
Íþróttafræði og
fósturtalningar
Bæði hafa þau Logi og Lára í nógu
að snúast þessa dagana, jafnt í námi
og starfi. „Ég byrjaði í Íþrótta- og
heilsufræði við Háskóla Íslands í
haust og keyri til Reykjavíkur í skól-
ann. Þetta er fimm ára nám en stefn-
an er sú að finna mér starf við skólana
hér í héraðinu þegar náminu lýkur,”
segir Lára.
„Ég er aftur á móti í búvísindanámi
í Landbúnaðarháskólanum á Hvann-
eyri milli þess að sinna búskapnum
hérna á bænum,” segir Logi. „Síð-
an tek ég törn í fósturtalningum upp
úr þorra í upphafi árs. Ég keypt mér
tæki til að sinna þessu fyrir tveimur
árum og vinn við svæðið frá Öræf-
um og alveg vestur á firði. Ég hitti
því marga fjárbændur í þessum ferð-
um og er gaman að kynnast viðhorf-
um bænda annars staðar.”
Allt í hæfilegri fjarlægð
Lára og Logi segja Lundarreykja-
dalinn góðan stað til að festa rætur í.
„Það er gaman að því hvað mikið af
ungu fólki er að flytja hingað. Þetta
hafði töluverð áhrif á ákvörðun okk-
ar um að byggja. Sjálf vorum við að
glíma við hátt leiguverð á Hvanneyri
og ákváðum því að nota tækifærið
og fara að byggja þegar færi bauðst,”
segja þau.
Góð staðsetning dalsins við vega-
kerfið er einnig mikill plús. „Mað-
ur þarf ekki að fara langt til að sækja
þjónustu. Það sést t.d. á því að að
skólarnir okkar eru í þægilegri fjar-
lægð frá okkur. Að auki fer Eik í leik-
skóla á Hvanneyri sem er rétt hjá. Ég
held að fleiri munu finna sér heimili í
sveitinni hér eða í næsta nágrenni út
af þessu.”
Vilja stækka
bústofninn
„Það er gott félagslíf í dalnum og nóg
um að vera í héraðinu. Sjálf höfum við
tekið þátt í leikuppfærslum á vegum
ungmennafélagsins Dagrenningar í
Brautartungu. Lékum meira að segja
á móti hvort öðru í Sölku Völku hér
um árið,” segja þau um lífið í daln-
um en Logi er þar fyrir utan virkur
í starfi Björgunarsveitarinnar Oks og
var nýbúinn að selja nokkra Neyðar-
kalla þegar blaðamaður Skessuhorns
tók þau tali.
„Okkur líður vel hér og hlökkum
til að flytja inn í nýja heimilið okk-
ar sem verður klárt á næsta ári. Við
lukum nýlega við að reisa fjárhús á
jöraðinni og erum með um 120 fjár
á fóðrum. Stefnan er svo að stækka
bústofninn eins og aðstæður leyfa.
Við eigum ekki stórt land en okkur
dreymir um að stækka við okkur þeg-
ar fram líða stundir.”
Jónmundur og Ragnhild-
ur í Arnþórsholti:
Þarf að fara að bóka
jólasveinana
Á bænum Arnþórsholti búa Jónmund-
ur Magnús Guðmundson og Ragn-
hildur Eva Jónsdóttir ásamt tveim-
ur börnum sínum, þeim Jóni 4 ára
og Ellý Stefaníu 2 ára. Þar búa þau í
nýju íbúðarhúsi sem lokið var við að
byggja síðastliðið vor. Ragnhildur er
25 ára og á Jónmundur nokkrar vik-
ur í að fylla aldarfjórðunginn til jafns
við eiginkonu sína því þau eru fædd
sama ár.
„Það hafði mikil áhrif á ákvörð-
un okkar um að flytja hingað í dal-
inn að annað fólk á okkar aldri var að
flytja hingað líka,” segja þau en þau
hafa búið í Arnþórsholti síðan fram-
kvæmdir við nýja húsið hófust árið
2015. „Áður vorum við í 101 Reykja-
vík. Það átti ekki við okkur,” bæta þau
við. „Við yngra fólkið í dalnum erum
í góðum tengslum og hefur myndast
góð vinátta á milli okkar. Þetta er sam-
heldinn hópur og það hjálpar til. Inn-
an hópsins er til dæmis bæði sauma-
klúbbur og briddsklúbbur,” segja þau
og nefna einnig að eldri Lunddæling-
ar hafa tekið þeim einstaklega vel.
Þau segja dýrmætt fyrir börnin
þeirra að fleiri börn séu að vaxa úr
grasi í dalnum. „Okkar börn eru nú á
leikskólaaldri, en það má geta þess að
fimm börn úr Lundarreykjadal fara
nú í leikskóla á Hvanneyri. Þar fyr-
ir utan eru tvö börn á leikskólaaldri
heima á Snartarstöðum. Við höfum
stundum rætt um að það væri hægt
að sameinast í bíla til að aka börnun-
um í leikskóla. Síðan hefur verið rætt
um að halda aftur jólaball í Braut-
artungu fyrir krakkana, en það eru
orðin nokkur ár síðan það var gert.
Þá þarf að fara bóka jólasveinana í
Skarðsheiðinni.”
Vill stækka bústofninn
Jónmundur er fæddur og uppalinn
í Arnþórsholti og viðurkennir fús-
lega að það sé best að vera í sveit-
inni. „Hér eru um 150 kindur á fóðr-
um í vetur. Ég stefni á að stækka bú-
stofninn með tímanum. Aðalstarf-
ið mitt er þó að vinna við smíðar en
ég er húsasmiður og stúdent frá Fjöl-
brautaskólanum á Akranesi. Að auki
er ég BS í búvísindum frá Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri,” segir
Jónmundur sem vinnur fyrir Sigurð
Árna Magnússon húsasmíðameist-
ara í Reykholtsdal. „Það vantar ekki
verkefnin í smíðunum. Þar er nóg að
gera og verður vonandi áfram.”
Stefnir á að ljúka
lögfræðinni
Ragnhildur starfar á sýsluskrifstof-
unni í Borgarnesi en hún er BS í lög-
fræði frá Háskólanum í Reykjavík.
„Ég starfa sem þinglýsingafulltrúi á
sýsluskrifstofunni. Ég var mjög fegin
að fá vinnuna því þetta er góð og mik-
ilvæg reynsla fyrir ungan lögfræðing.
Ég er að vísu í afleysingum en er að
vonast til að geta fengið fleiri verk-
efni þegar ráðningartímabilinu lýk-
ur,” segir Ragnhildur sem stefnir á
að ljúka embættisprófi í lögfræðinni
um leið og tækifæri gefst til.
Ragnhildur er frá Selfossi og kveðst
hafa kynnst Jónmundi þar þegar hann
bjó í bænum og var í smíðavinnu. „Þá
leigði hann með Orra Jónssyni sem
er frá Lundi hérna í dalnum en Orri
var þá í námi í Fjölbrautaskólanum
á Selfossi,” segir hún og brosir að
þeirri staðreynd að lunddælsku teng-
ingarnar er ansi víða að finna.
Dalurinn í þjóðbraut
Um kosti þess að búa í dalnum segja
þau að það skipti máli að hæfilega
langt sé í alla þjónustu. „Það er ekki
langt að keyra héðan í Borgarnes eða
til Reykjavíkur og eru samgöngur
mjög góðar. Síðan er ekki langt heim
á Selfoss, en við förum nær alltaf um
Uxahryggi og Þingvallaveg þegar við
förum þangað,” segir Ragnhildur
sem líst ákaflega vel á þær vegabæt-
ur sem hafa orðið og eru fyrirhug-
aðar á Uxahryggjarvegi. „Þá verður
Lundarreykjadalurinn nánast kom-
inn í þjóðbraut.”
hlh
Þorvaldur járnsmiður á Skarði með heimabæ sinn í bakgrunni.
Lára og Logi ásamt Eik dóttur sinni, nýju ábúendirnir í Steinahlíð.
Ragnhildur og Jónmundur Magnús í nýja heimili þeirra í Arnþórsholti.