Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Qupperneq 45

Skessuhorn - 23.11.2016, Qupperneq 45
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016 45 Félagsmálamenn er víða að finna á Vesturlandi, líka meðal yngri kyn- slóðarinnar. Steinþór Logi Arnars- son frá Stórholti í Saurbæ í Dölum er einn þeirra. Þessi 17 ára Dala- maður hefur frá því í fyrra verið formaður Nemendafélags Mennta- skóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og haft á þeim tíma í mörg horn að líta. Góð skipulagning leysir hlutina „Ég tók við formennsku í NMB rétt fyrir jól í fyrra. Datt reyndar í þetta embætti svo að segja. Síðan þá hef ég haldið utan um starfið ásamt fé- lögum mínum í stjórninni. Það eru auðvitað ýmis verkefni sem þarf að huga að þegar maður stýrir nem- endafélagi en með góðri skipu- lagningu þá nær maður að leysa allt sem kemur upp. Formennskan felst þó aðallega í því að halda utan um félagsstarfið og vera nefndum og hópum til aðstoðar,“ segir Steinþór. „Helstu verkefni NMB eru m.a. að setja leikrit á svið í Hjálmakletti á vegum leikfélagsins okkar SV1. Æf- ingar eru að fara af stað núna en við ætlum að sýna Línu langsokk í leik- stjórn Geirs Konráðs Theódórs- sonar. Leikritið verður frumsýnt eftir áramót. Síðan má nefna útgáfu skólablaðsins Eglu en sérstök rit- stjórn sér um vinnslu blaðsins sem kemur út í vor. Svo eru ýmis verk- efni á döfinni hjá okkur sem við í stjórninni sjáum um að skipuleggja. Nýlega sáum við um að halda West- side sem er keppni á milli nemenda- félaga framhaldsskólanna á Vestur- landi. Það var mikið fjör þennan dag sem endaði með balli í Hjálma- kletti,“ segir Steinþór. Fjölskyldan í félagsmálum Steinþór kveðst vera sveitamað- ur í húð og hár sem hafi fengið að kynnast félagsmálum snemma. „Það má segja að ég sé kominn af félags- málafólki. Foreldrar mínir hafa ver- ið virkir í starfi ýmissa félagasam- taka í Dölum og mamma mín, Ing- veldur Guðmundsdóttir, situr einn- ig í sveitarstjórn Dalabyggðar. Sjálf- ur var ég í stjórn nemendafélagsins í Auðarskóla í Búðardal um tíma. Fjölskyldan mín hefur síðan tekið þátt í starfi Ólafsdalsfélagsins,“ seg- ir Steinþór sem hefur fundist gaman að leggja hönd á plóg þar. „Mér finnst Ólafsdalur magnaður staður og ótrúlegt að hugsa til þess hversu mikil vinna var lögð í rækt- un og uppbygginu í dalnum þegar búnaðarskólinn var þarna í kringum aldamótin 1900. Allt var þetta gert með höndunum því engar dráttar- vélar voru til staðar á þeim tíma.“ Frjálsar, tónlist og ljósmyndun Steinþór hefur einnig verið með annan fótinn í frjálsum íþróttum og þá hefur hann stundað tónlist- arnám og fengist við ljósmynd- un. „Langstökk og spretthlaup eru mínar greinar. Ég hef æft í Sam- Vest samstarfinu og hefur ver- ið gaman að taka þátt í því. Ég fór m.a. með félaga mínum úr UDN og krökkum úr UMSB að keppa á móti í Gautaborg í Svíþjóð sumarið 2015 sem var eftirminnilegt,“ seg- ir hann. „Svo er það tónlistin. Ég hef spilað á píanó frá því í byrjun grunnskóla. Það er misjafnt hversu mikið ég er að spila hverju sinni en tek oft þátt í allskonar verkefnum til dæmis að spila í messum í Reyk- hólaprestakalli. Ég á það til að setj- ast við flygilinn hérna í Hjálm- akletti þegar stund er á milli stríða í stússinu í nemendafélaginu. Ég spila reyndar á harmóniku líka og hef leikið með harmónikufélaginu Nikkolínu í Dölum ásamt bróður mínum Kristjáni Inga,” segir Stein- þór sem segir þá bræðurna líklega hafa tosað meðalaldurinn aðeins niður í félaginu. Ljósmyndunin er aftur á móti annað áhugasvið og hefur Stein- þór helst tekið landslagsmynd- ir. „Ég á mörg uppáhalds sjónar- horn heima til að taka myndir frá. Líklega er einn besti staðurinn til að taka mynd frá Bersatungu nið- ur Hvolsdalinn yfir Saurbæinn. Þar er góðan ramma að finna,“ segir Steinþór. Þrusugóð reynsla Steinþór stefnir á að ljúka stúdents- prófi af náttúrufræðabraut í árslok 2017, en hann þjófstartaði mennta- skólanum með því að taka nokkra áfanga með 10. bekk í dreifnáms- deild MB í Búðardal. „Næstu skref eru óráðin hjá mér. Ég hef verið að spá í að fara í kjötiðnaðarnám í Menntaskólanum í Kópavogi og þá sé ég einnig fyrir mér nám í Land- búnaðarháskólanum á Hvanneyri. Ég bý þar hjá Sigurjóni Einarssyni frænda mínum meðan ég stunda nám í MB og líkar vel að vera þar. Þetta á þó allt eftir að koma í ljós.“ Hann metur reynsluna af félags- málavafstrinu mikils og mun hann búa að því til framtíðar. „Það er þrusugóð reynsla sem felst í því að vasast í þessu öllu. Maður lærir að skipuleggja viðburði og að eiga í samskiptum við fólk vegna allskyns erinda. Ég viðurkenni að stundum reynir á skipulagningu hjá mér, en þetta reddast alltaf,“ segir hann um ástæðuna fyrir þátttökunni. En hef- ur hann tíma fyrir allt þetta? „Býr maður ekki alltaf til tíma,“ svarar hann á móti léttur í bragði að lok- um. hlh „Býr maður ekki alltaf til tíma?“ -spyr Dalamaðurinn Steinþór Logi Arnarsson formaður NMB í Borgarnesi Steinþór Logi Arnarson við litríka vegginn í Hjálmakletti. Horft yfir Hvolsdal í Saurbæ frá Bersatungu 2011. Eitt uppáhalds sjónarhorn Stein- þórs til myndatöku en myndina tók hann sjálfur. Kertaljós og kossar - Njótum aðventunnar Friðar- og kærleiksjól í Blómasetrinu Blóm og falleg gjafavara
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.