Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2016, Síða 54

Skessuhorn - 23.11.2016, Síða 54
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201654 Liðsmenn hljómsveitarinnar Eld- berg hyggja á útgáfu nýrrar plötu fyrir jólin. Um er að ræða tónleika- plötu, sem tekin var upp á útgáfu- tónleikum sem sveitin hélt í tilefni af útgáfu annarrar plötu sinnar, Þar er heimur hugans, í Tjarnarbíói 20. mars í fyrra. Þar var platan leikin í heild sinni í bland við eldra efni. Skessuhorn ræddi við trymbil sveit- arinnar, Jakob Grétar Sigurðsson. „Þetta er ófyrirsjáanlegur bransi, en við stefnum á að platan fari í loftið snemma í desember,“ segir hann, en platan verður eingöngu gefin út á netinu. „Með því viljum við reyna að höfða til unga fólksins. Internet- ið er það vinsælasta í dag,“ segir Jak- ob léttur í bragði. Platan verður til kaups á tónlist.is en einnig verð- ur hægt að hlusta á hana á Spotify. Þá segir Jakob að hljómsveitin hafi nú þegar birt nokkur myndbönd frá tónleikunum á Youtube rás sveitar- innar og von sé á fleirum. Eldberg skipa auk Jakobs, bróðir hans Ásmundur Svavar Sigurðsson bassaleikari, Heimir Klemenzson hljómborðs- og orgelleikari, Reynir Hauksson gítarleikari og söngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Á tón- leikunum í Tjarnarbíói naut sveitin auk þess liðsinnis Unnar Þorsteins- dóttur fiðluleikara og bakradda- söngkvennanna Ínu Valgerðar Pét- ursdóttur og Ölmu Rutar Kristjáns- dóttur. „Tímamótaútgáfa“ Á tónleikaplötunni væntanlegu verða níu lög af sitt hvorri plötu sveitarinnar, auk tveggja aukalaga sem tekin voru upp í stúdíói Ríkis- útvarpsins stuttu eftir hádegi dag- inn fyrir útgáfutónleikana. „Þannig að tvö lög eru tvisvar sinnum á plöt- unni,“ segir Jakob léttur í bragði. „Útgáfutónleikarnir voru sama dag og sólmyrkvinn en á plötunni Þar er heimur hugans er mikið fjallað um sól og mána, þannig að þetta var allt útpælt. Við vöknuðum fyr- ir allar aldir til að sjá sólmyrkvann og hófumst síðan handa við að hlaða dótinu í bílinn og koma því í bæ- inn. Við fórum beint í Tjarnarbíó og stilltum græjunum upp en að því loknu urðum við drífa okkur niður í útvarpshús í hljóðprufu og lékum síðan þrjú lög í beinni útsendingu í Popplandinu á Rás 2. Síðan tók við hljóðprufa í Tjarnarbíói og svo var æft alveg fram að tónleikum. Þannig að það var kannski farið að síga að- eins á menn þegar leið á tónleikana,“ segir Jakob og hlær en bætir við: „En tónleikarnir voru engu að síður alveg prýðilegir og hljómsveitin lík- lega aldrei verið í betra spilastandi. Enda hafa menn öðlast mikla spila- reynslu frá því hún kom síðast fram opinberlega árið 2012 í Háskóla- bíói. Reynir fór til dæmis á kost- um á þverflautuna í laginu Nætur- ljóði, nokkuð óvænt og Eyþór sýndi á sér nýjar hliðar þegar hann mund- aði þeremínið. Ég fullyrði að þetta er fyrsta íslenska tónleikaplatan þar sem leikið er á þeremín. Hér er því um tímamótaútgáfu að ræða,“ bæt- ir hann við. Aðspurður hvers vegna sveitin hafi ákveðið að senda frá sér þessa tónleikaplötu í netútgáfu segir Jakob ástæðuna einfalda. „Nú, til að reyna að selja hinar plöturnar okkar,“ seg- ir hann og brosir. „Plöturnar eru fá- anlegar á vínyl með niðurhalskóða í öllum betri plötubúðum í höfuð- borginni sem og í Ljómalind í Borg- arnesi, auk þess sem enn eru til örfá eintök af Þar er heimur hugans á geisladiski. Einnig er hægt að kaupa plöturnar beint af okkur,“ segir Jak- ob og bendir áhugasömum á að hafa samband í tölvupósti á eldberg1@ gmail.com eða í gegnum Facebo- ok-síðu sveitarinnar, www.facebook. com/eldbergmusic. Þar verður jafn- framt kunngjört hvenær nákvæm- lega væntanleg tónleikaplata kem- ur út. „Það er um að gera að hafa samband ef fólk vill kaupa plöturn- ar. Við sendum hvert á land sem er og jafnvel um heim allan,“ segir Jak- ob að endingu. kgk Von á tónleikaplötu frá Eldberg Tónleikaplata sveitarinnar ber einfaldlega heitið „Eldberg á tónleikum í Tjarnar- bíói.“ Ljósmyndina sem prýðir albúmið tók Margrét Elfa Ólafsdóttir. Skagamaðurinn Logi Breiðfjörð hefur vakið athygli á Akranesi fyr- ir teikningar sínar og listsköpun en hann sýndi verk sín á Vöku- dögum í haust á sýningunni „Um- breyting - Eitthvað verður annað“. Logi er 16 ára gamall og er borinn og barnfæddur Akurnesingur sem stundar nám á náttúrufræðibraut við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Teiknar mest fyrir sjálfan sig „Það er mikil teiknimenning í fjölskyldunni,“ segir Logi þegar Skessuhorn settist niður með hon- um á dögunum og fræddist um list- sköpunina. „Ég byrjaði að teikna með afa mínum heitnum og nafna, Loga Sævari Jóhannssyni, sem rak málningarbúð á Kirkjubrautinni í mörg ár. Afi hafði mikinn áhuga á list og fékk mig til að teikna með sér þegar ég var lítill. Við teiknuð- um til dæmis fiska og báta og ým- islegt tengt sjónum sem var mjög eftirminnilegt,“ segir Logi en amma hans Jóhanna Einarsdótt- ir Vestmann hefur líka fengist við listmálun. „Ég hef ekki mikið verið að koma á framfæri því sem ég hef verið að teikna og hef mest verið að teikna fyrir sjálfan mig. Verkin mín hafa þó verið til sýnis á sýn- ingum í Grundaskóla og svo ný- lega á sýningunni á Vökudögum. Fjölskyldan mín hefur einnig ver- ið dugleg við að setja eina og eina mynd inn á Facebook,“ bætir hann við. „Ég hef meira að segja náð að selja eina og eina mynd sem var nokkuð skemmtilegt.” Bob Dylan og Pink Floyd Teikningar eiga hug og hjarta Loga og skipar tónlist þar stóran þátt. „Ég teikna mikið eftir hendinni og kemur bara það á blað sem kemur úr pennanum hverju sinni. Í verk- um mínum fara saman teikningar og tónlist en ég spila sjálfur á gít- ar og er í hljómsveit. Það eru helst myndir af þekktum tónlistarmönn- um og hljómsveitum sem ég er að hlusta á hverju sinni sem komast á blað hjá mér. Þar eru framarlega Bob Dylan og hljómsveitin Pink Floyd, en hún er í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Logi. „Pink Floyd á sérstakan stað hjá mér. Þeir voru svo frjóir í listsköp- un og er margt myndrænt tengt verkum þeirra sem gaman er að teikna,“ segir hann og nefnir tón- verkið The Wall sem dæmi. Spurð- ur um uppáhaldsplötuna með Pink Floyd segir hann það vera Dark side of the moon. „Hún er eigin- lega búin að vera á lagalistanum mínum undanfarin ár.“ Lifir á hvatningunni frá afa sínum Logi segir að áhugi á gítarleik hafi kviknað í vali í Grundaskóla. „Það var sett saman hljómsveit í valinu og vantaði bassaleikara til að mynda bandið. Ég var eiginlega settur í það hlutverk að spila á bassann og hóf að prófa mig áfram á honum. Síðar fór ég að leika á gítar. Afi minn minn var líka áhrifavaldur í þessu eins og teikningunni. Hann hvatti mig áfram til að æfa mig á gítar sem gerði það að verkum að ég fór að eyða meiri tíma í gítar- leik. Hann tók sig meira að segja til og keypti gítar handa mér svo ég gæti æft mig betur,“ segir Logi. „Ég og afi náðum mjög vel sam- an. Hann lést í fyrra og á ég hon- um mikið að þakka fyrir að hafa kveikt hjá mér áhuga fyrir listinni. Ég mun lifa lengi á hvatningunni frá honum.“ Logi undirbýr nú góðgerðartón- leika ásamt hópi tónlistarfólks á Akranesi og fara þeir fram í Akra- neskirkju 9. desember næstkom- andi. „Ég og félagar mínir mun- um leika þar, m.a. með söngkon- unni Margréti Eir. Ég vona að sem flestir mæti og leggi góðu málefni lið, en tónleikarnir eru til styrktar Barnaspítala Hringsins.” Vill verða arkitekt eða skipstjóri Logi kveðst ætla að sinna listinni eins og hann getur í framtíðinni. Spurður um framtíðarplön í námi er hann með sterkar skoðanir á því. „Ég stefni á að verða annað hvort arkitekt eða skipstjóri. Það er mikil hefð fyrir sjómennsku í fjölskyldunni og langar mig svo- lítið til að fara þá leið. Arkitektúr- inn er aftur á móti tengdur teikni- áhuganum. Þetta fer þó allt eft- ir því hvernig lífið þróast hjá mér. Eitt er þó víst að það að teikna og spila er orðinn sterkur hluti af kar- akternum mínum,” segir Logi að lokum. hlh Listsköpunin orðinn hluti af karakternum -rætt við Loga Breiðfjörð, 16 ára listamann á Akranesi Logi Breiðfjörð ásamt heimsklukkunum. Hljómsveitin Pink Floyd er uppáhalds sveitin hans Loga. Hér birtist sveitin ljóslif- andi á teikningu Loga. Tónlistarmaðurinn og verðandi Nóbelsverðlaunahafi Bob Dylan, teiknaður af Loga.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.