Skessuhorn - 23.11.2016, Side 66
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 201666
Leiðbeinanda á leikskóla
Dag ur í lífi...
Nafn: Kristín Releena Jónas-
dóttir.
Fjölskylduhagir/búseta: Í
sambúð með Halldóri Arnar-
syni.
Starfsheiti/fyrirtæki: Leið-
beinandi í leikskólanum Garða-
seli á Akranesi.
Áhugamál: Bækur, innanhúss-
hönnun og jólin.
Vinnudagurinn: 21. nóvember
2016
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan
korter í sjö og snúsaði í níu mín-
útur. Fór svo á fætur og klæddi
mig í sloppinn.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Ég borðaði kornfleks í
morgunmat.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég labbaði í vinnuna í
Garðaseli klukkan hálf átta.
Fyrstu verk í vinnunni: Ég
opnaði deildina og gerði tilbúið
val fyrir börnin.
Hvað varstu að gera klukk-
an 10? Ég var í hópastarfi með
börnunum og við vorum að
rýma leikskólann. Það var rým-
ingaræfing.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Ég borðaði fiskibollur með
börnunum.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Þá var ég að keppa við 5 ára
stráka í fótbolta og tapaði fyr-
ir þeim 9-3. Þetta eru atvinnu-
menn framtíðarinnar. Keppnin
var stelpur á móti strákum.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni?
Ég var búin í vinnunni klukkan
korter í fjögur. Það síðasta sem
ég gerði var að vera í drekku-
tíma með börnunum.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Ég byrjaði að undirbúa jólin.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Það var pastaréttur og
Halldór eldaði.
Hvernig var kvöldið? Þetta var
mjög gott kósíkvöld yfir sjón-
varpinu.
Hvenær fórstu að sofa? Ég fór
að sofa í kringum ellefu.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Ég kláraði að horfa á
sjónvarpsþáttinn Hawaii 5-0.
Hvað stendur uppúr eftir
daginn? Klárlega fótboltaleik-
urinn við strákana. Stelpurnar
vinna næst.
Eitthvað að lokum?
Gleðileg jól!
Ljóðaskáldið Aðalsteinn Ásberg
og söngvaskáldið Svavar Knútur
heimsóttu allar þrjár starfsstöðv-
ar Grunnskóla Snæfellsbæjar í lið-
inni viku. Hitti vel á að heimsókn-
in kæmi að þessu sinni á Degi ís-
lenskrar tungu. Tilefnið var bók-
menntaverkefnið Skáld í skólum
sem starfrækt hefur verið undan-
farin tíu ár á vegum Höfundamið-
stöðvar og Skáld í skólum. Á þeim
tíma hafa ýmsir listamenn komið
og heimsótt skólann undir merkj-
um þessa verkefnis og frætt og
skemmt nemendum með umfjöll-
un um ýmsa höfunda með fjöl-
breyttri dagskrá. „Skrópað í skóla
lífsins“ var yfirskrift dagskrárinnar
að þessu sinni og fjölluðu þeir fé-
lagar um Líf Tómasar Guðmunds-
sonar í tali og tónum. Fluttu þeir
ljóð hans og sungu sönglög sem
samin hafa verið við texta hans við
góðar undirtektir nemenda á öllum
starfsstöðvum.
þa
Yfirskrift dagskrárinnar
var Skrópað í skóla lífsins
Á Laugaveginum í Reykjavík má
finna nokkrar rótgrónar herrafata-
verslanir. Ein af þeim er verslunin
Karlmenn, sem er í eigu Grundfirð-
ingsins Sigurþórs Þórólfssonar. Sig-
urþór, eða Bóbó eins og hann er jafn-
an kallaður, er borinn og barnfæddur
í Grundarfirði. Á unglingsárum hélt
hann mikið til í Ólafsvík, þar sem
hann spilaði knattspyrnu með Vík-
ingi í nokkur ár. Bóbó segist ungur
hafa fengið áhuga á fatnaði. „Það var
bara þegar ég var ungur pjakkur. Það
er til ein skemmtileg saga af því. Við
erum fimm systkinin og þrír bræður
elstir fæddir með árs millibili. Þeg-
ar við vorum heima í Grundarfirði
vorum við alltaf klæddir í spariföt-
in á sunnudögum, í sunnudagafötin
eins og sagt var. Svo þegar ég kom
til Reykjavíkur á virkum degi, þá um
sjö ára gamall, fer ég að spá í fatn-
aði karlmannanna og spurði mömmu
hvort það væri sunnudagur í Reykja-
vík. Það voru allir svo fínir,“ segir
Bóbó og hlær.
Byrjaði ungur í
bransanum
Bóbó var rúmlega tvítugur þeg-
ar hann hóf störf í bransanum, þá í
Herragarðinum. Hann segist upp-
haflega hafa flækst inn í þetta þeg-
ar hann fluttist til Reykjavíkur og
fór að spila fótbolta með FH fyr-
ir tilstilli Inga Björns Albertssonar.
Hann starfaði í Herragarðinum í
nokkuð mörg ár en opnaði svo sína
eigin verslun við Laugaveg 74, fyrir
um tveimur áratugum. „Hún hét þá
Íslenskir karlmenn en við breyttum
því í Karlmenn, því útlendingarnir
vildu versla hjá okkur líka.“ Versl-
unin hefur undanfarin ár verið við
Laugaveg 7, en þar hefur undan-
farna daga verið rýmingarsala. Um
næstu helgi verður verslunin opn-
uð á nýjum stað við Laugaveg 77.
„Rýmingarsalan verður áfram til
jóla en í nýju versluninni verða ein-
ungis nýjar vörur og ný merki bæt-
ast við, “segir Bóbó. Hann er ekki
eini Vestlendingurinn í versluninni
en hjá honum starfar Logi Úlf-
ljótsson frá Ólafsvík. Þá er eigin-
kona Bóbós, Rut Aðalsteinsdóttir,
frá Hellissandi. „Við kynntumst nú
samt í Reykjavík þrátt fyrir að vera
bæði af Snæfellsnesinu. Við rekum
þetta saman, hún sér um bókhald-
ið og er með í versluninni. Einn-
ig hafa synir okkar þrír allir mik-
ið tekið þátt í rekstrinum í gegnum
árin og má segja að þetta sé sann-
kallað fjölskyldufyrirtæki.“
Má ekki gleyma
Íslendingnum
Margir af viðskiptavinum verslunar-
innar eru fastakúnnar en hann seg-
ir Íslendinga vera aðalmarkhópinn.
Um 30% veltunnar komi þó frá er-
lendum ferðamönnum. „Það mun-
ar alveg um það og gott að hafa það
líka en það þarf að hugsa um Íslend-
inginn. Hann á það til að gleym-
ast í þessu túristaæði,“ segir Bóbó.
Hann segir aukningu ferðamanna
hafa bitnað örlítið á þeim verslun-
um við Laugaveginn sem ekki eru
í þeim geira. „Að því leytinu til að
leiguverð hefur rokið upp og lokan-
ir fyrir bílaumferð hafa verið meiri
en við myndum vilja sjá.“ Hann seg-
ir fatnaðinn í Karlmönnum henta
fyrir breiðan aldurshóp. „Við förum
kannski ekki alveg niður í ferming-
araldurinn en erum mikið í kring-
um útskriftir og svo bara upp úr. Við
erum aðallega með svona fínni fatn-
að, bæði til hversdagsnota og spari.
Við seljum gallabuxur og allt svoleið-
is en erum með mikið af fínni föt-
um líka, svo sem jakkafötum og jökk-
um. Einnig seljum við hágæða kjól-
föt og fylgihluti og erum atkvæða-
miklir á þeim markaði.“ Bóbó segir
verslunina vera klassíska en fatnað-
urinn kemur allur frá Evrópu, mest
frá Þýskalandi, Ítalíu, Danmörku og
Svíþjóð. „Við leggjum mikið upp úr
vönduðum fatnaði og vörum á hag-
stæðu verði. Ég veit fyrir víst að vör-
urnar sem við seljum eru á betra eða
sambærilegu verði og erlendis.“
Karlmenn
mismeðvitaðir
Bóbó segir sérstöðu verslunarinnar
einna helst vera þá persónulegu þjón-
ustu sem boðið er upp á. „Við keyr-
um á persónulegri þjónustu. Hér er
ekki sjálfsafgreiðslufyrirkomulag að
ræða, heldur veitum við þjónustu og
hjálpum fólki að taka ákvarðanir. Við
viljum helst veita þannig þjónustu
að fólk komi aftur. Það er svo mikil-
vægt að leiðbeina rétt þannig að fólk
sé ánægt,“ segir hann. Þá komi sér
vel að vera reynslumikill í geiranum.
„Ég held að í dag sé ég einn reynslu-
mesti Íslendingurinn í herrafatnaði.
Ég er jafnvel að hugsa um að setja
upp blogg þar sem ég get miðlað
því sem ég veit og kann og langar að
koma á framfæri, að leiðbeina með
fatnað.“ Hann bætir því við að hann
leggi einnig upp úr því að vera fersk-
ur í fataúrvali þó að minni sveiflur
séu í karlatískunni en í kvenmanns-
fatnaði. „Það eru helst breytingar á
sniði á buxum og þess háttar, mun
minni öfgar eins og maður segir. Svo
eru karlmenn mjög mismeðvitaðir og
sumir vilja í raun bara láta mata sig.
Konur eru líklega aðeins öðruvísi og
hafa margar sterkari skoðanir á fatn-
aði. Við tökum nýjungum opnum
höndum og þar hjálpa synir okkar til.
Þeir fylgjast vel með, eru meðvitað-
ir og pressa á okkur. Þeir eru alveg
með lúkkið á hreinu,“ segir Grund-
firðingurinn Sigurþór Þórólfsson að
endingu. grþ
Hefur rekið herrafata-
verslun í tuttugu ár
Spurðu móður sína hvort það væri
sunnudagur í Reykjavík
Nú er unnið hörðum höndum að því að gera nýju verslunina klára en hún verður
opnuð um næstu helgi.
Sigurþór Þórólfsson frá Grundarfirði er einn reynslumesti Íslendingurinn í
herrafatnaði.