Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2017, Page 8

Skessuhorn - 15.03.2017, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 20178 Víða vart við loðnu MIÐIN: ,,Við erum bún- ir að elta þessa loðnu hing- að norður eftir og erum komnir með um 1.200 tonn í sjö köstum. Það var tölu- vert mikið að sjá á mælum eftir að það dimmdi í gær- kvöldi en í dag hafa þetta aðallega verið litlar peðr- ur og aflinn er í samræmi við það.“ Þetta sagði Albert Sveinsson skipstjóri á Vík- ingi AK á vef fyrirtækisins þegar rætt var við hann síð- degis á mánudaginn. Vík- ingur hefur undanfarna daga elt loðnugönguna frá Snæfellsnesi og norður út af Dýrafirði en þar var skip- ið statt, ásamt fleirum, er tal náðist af Alberti. Loðna virðist vera nokkuð víða við landið um þessar mundir en um helgina bárust frétt- ir af því að Jóna Eðvalds SF hefði lóðað á loðnu út af Norðurlandi. Í kjölfarið fór Ásgrímur Halldórsson SF á staðinn. ,,Þetta veiðisvæði er út af Fljótunum eða Siglufirði og mér skilst að ágæt veiði hafi fengist þar. Þarna hafa verið ein fjögur til fimm skip og mér skilst líka að loðnan þarna sé ekki eins langt gengin og sú hér fyrir vestan og hrognafyll- ingin sé því lægri,“ sagði Albert á vef HB Granda. -mm Greiðslumark í mjólk fyrir 4. apríl LANDIÐ: Matvælastofn- un hefur kynnt að skila- frestur umsókna um inn- lausn og kaup á greiðslu- marki í mjólk er 4. apríl næstkomandi. Fram kem- ur að kaupendur þurfa að skila greiðslu í síðasta lagi 20. apríl. Innlausnarverð á innleystu greiðslumarki er 138 krónur á lítra. „Mat- vælastofnun greiðir fyr- ir innleyst greiðslumark eigi síðar en 15. maí 2017. Ársgreiðsla fyrir greiðslu- mark er í dag 13,62 krón- ur á lítra. Aðrar stuðnings- greiðslur í nautgriparækt eru ekki tengdar greiðslu- marki. Greiðslumark fellur niður eftir fjögur ár sam- kvæmt núverandi búvöru- samningi, nema annað verði ákveðið við endurskoðun samnings. Greiðslumark- ið gildir þó sem viðmið fyrir greiðslur á greiðslu- mark, en þær fara lækkandi á næstu árum og falla nið- ur árið 2026. Innlausn fer fram í samræmi við reglu- gerð nr. 1150/2016 um stuðning við nautgripa- rækt.“ -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 4. - 10. mars Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 9 bátar. Heildarlöndun: 6.092.223 kg. Mestur afli: Víkingur AK: 3.978.998 kg í tveimur lönd- unum. Arnarstapi 2 bátar. Heildarlöndun: 20.822 kg. Mestur afli: Bárður SH: 18.024 kg í þremur löndun- um. Grundarfjörður 6 bátar. Heildarlöndun: 346.269 kg. Mestur afli: Geir ÞH: 99.043 kg í fimm löndunum. Ólafsvík 19 bátar. Heildarlöndun: 511.518 kg. Mestur afli: Steinunn SH: 71.948 kg í tveimur löndun- um. Rif 19 bátar. Heildarlöndun: 691.080 kg. Mestur afli: Örvar SH: 794.689 kg í einni löndun. Stykkishólmur 6 bátar. Heildarlöndun: 161.649 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 65.689 kg í þremur löndun- um. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Víkingur AK - AKR: 2.102.849 kg. 8. mars. 2. Venus NS - AKR: 2.072.258 kg. 6. mars. 3. Víkingur AK - AKR: 1.876.149 kg. 5. mars. 4. Örvar SH - RIF: 79.424 kg. 6. mars. 5. Tjaldur SH - RIF: 79.038 kg. 8. mars. -grþ Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. síðastliðinn föstudag var tekið fyr- ir erindi Akraneskaupstaðar þar sem óskað er eftir upplýsingum og gögnum vegna sölu lands Faxaflóa- hafna sf. í Geldinganesi og Gufu- nesi til Reykjavíkurborgar. Fyrir- spurnin er í raun framsending er- indis Libra lögmanna fyrir hönd Ingólfs Árnasonar, íbúa á Akra- nesi, sem sent var bæjaryfirvöldum á Akranesi um miðjan febrúar. Í er- indi Libra er spurt út í landsöluna út frá þeirri forsendu að Akranes- kaupstaður er eigandi 10,78% hlut- ar í Faxaflóahöfnum. Í erindinu er vísað til frétta frá júlí 2015 þar sem greint var frá sölu fyrrgreinds lands til Reykjavíkur- borgar. Heildarverð fyrir land- ið í Geldinganesi og Gufunesi var samkvæmt fréttum 346,3 milljónir króna. Um er að ræða lóð Áburð- arsverksmiðjunnar, land í Geld- inganesi og Eiðsvík, sem er víkin milli Viðeyjar, Gufuness og Geld- inganess. Spurt er um söluverð, að- ferð við verðmat landsins og bók- fært virði eignanna. Auk þess hvort eignirnar hafi verið boðnar til sölu í opnu ferli og ef ekki, hvers vegna það hafi ekki verið gert. Þá er spurt hverjir innan stjórnar Faxaflóahafna hafi tekið ákvörðun um söluna og hvort salan hafi verið kynnt í bæj- arstjórn Akraneskaupstaðar áður en hún var staðfest. Loks er spurt hvort fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn Faxaflóahafna hafi vikið af fundi þegar ákvörðun var tekin um framangreinda landsölu. Gísla Gíslasyni hafnarstjóra var falið að svara erindi Akraneskaup- staðar. mm Krefja Faxaflóahafnir um upplýsingar vegna landsölu Horft yfir land Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. Ljósm. reykjavik.is Leikritið um Ronju Ræningjadótt- ur eftir Astrid Lindgren var frum- sýnt fyrir fullu húsi í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 11. mars síðastliðinn. Það er leiklistarklúbb- ur Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands sem færir verkið á fjal- irnar. Með hlutverk Ronju fer Al- dís Eir Valgeirsdóttir, leikstjórn er í höndum Hallgríms Ólafssonar en alls koma milli 40 og 50 manns að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Sem fyrr segir var frumsýnt fyr- ir fullu húsi og heppnaðist hún eins og best verður á kosið. Að- sókn var sömuleiðis góð á sunnu- dagssýninguna, en þá var uppselt. Tíðindamaður Skessuhorns mætti einmitt á sýninguna á sunnudag og segir uppsetningu nemendafélags- ins vel heppnaða og góða skemmt- un fyrir alla fjölskylduna. Nú er sýnt á hverjum degi þar til laugar- daginn 18. mars næstkomandi, en þá eru tvær sýningar á dagskrá. kgk Kúabú á landinu í árslok voru 596 og hafði fækkað um 40 á árinu 2016. Það er meiri fækkun en samanlagt síðustu þrjú ár þar á undan. Frá 1980 hefur kúabúum fækkað um 75%. Þetta var meðal þess sem fram kom á aðalfundi Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) sem hald- inn var 9. mars síðastliðinn. Heild- arsala mjólkurafurða hvort sem lit- ið er á fitu- eða próteingrunn hefur ekki mælst meiri frá því að samtökin hófu að reikna sölu mjólkurafurða á fitu og próteingrunni árið 1993. SAM safnar og vinnur tölur um framleiðslu, sölu og birgðir mjólk- urafurða á Íslandi. Þar kemur einnig fram að milli áranna 2015 og 2016 varð 1,7% aukning í sölu mjólkur- vara. Sala nýmjólkur jókst á síð- asta ári sem og sala á skyri, smjöri, ostum og mjólkurdufti. Útflutn- ingur mjólkurafurða jókst um 53% frá árinu 2015 en þar af jókst hann um 77% á skyri og skyrdrykkjum. Innflutningur osta hefur aukist síð- ustu ár og jókst síðasta árið um 60 tonn, eða 23%. Birgðir mjólkurvara í landinu minnkuðu engu að síður árið 2016. Á aðalfundi SAM var kjörin ný stjórn. Hana skipa Jóhanna Hreins- dóttir bóndi Káraneskoti sem er formaður, varaformaður er Jóhann Nikulásson bóndi Stóru-Hildisey I, en aðrir í stjórn eru Árni Sigurðsson bóndi Marbæli og Egill Sigurðsson bóndi Berustöðum. mm Kúabúum heldur áfram að fækka Ronja Ræningjadóttir frumsýnd í Bíóhöllinni Svipmynd úr uppsetn- ingu leiklistarklúbbs NFFA á leikritinu um Ronju Ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren. Ljósm. Bíóhöllin.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.