Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 13
Aðalfundur
Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands verður haldinn á HVE Akranesi
laugardaginn 1. apríl kl. 11:00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf1.
Afhending tækja til HVE2.
Fyrirlestur: Speglunaraðgerðir á HVE Akranesi, 3.
Fritz H. Berndsen yfirlæknir á Handlækningadeild.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á súpu,brauð og kaffi.
Hvetjum félaga til að mæta á fundinn. Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
VIÐ HÖNNUM OG TEIKNUM FYRIR ÞIG
ÞITT ER VALIÐ
KR
EA
TI
V
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM, FRAMHLIÐUM,
KLÆÐNINGUM OG EININGUM
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
HÁGÆÐA DANSKAR
Opið:
Söngvarinn Aron Hannes Emilsson
úr Grundarfirði leit við í Grunda-
skóla á Akranesi að morgni síð-
asta miðvikudags. Hann komst sem
kunnugt er í úrslitaþátt Söngva-
keppni evrópskra sjónvarspsstöðva
sem sýnd var á RUV síðasta laug-
ardag. Þar sigraði Svala Björgvins-
dóttir með lagið Paper og keppir
fyrir Íslands hönd í Úkraínu.
Í keppninni á laugardaginn flutti
Aron Hannes lagið Nótt, eða Tonight
eins og það hefur verið nefnt upp á
enska tungu. Hann tók lagið fyrir
nemendur og starfsfólk Grundaskóla,
en sökum þess hve fjölmennur skólinn
er þurfti að skipta hópnum í tvennt.
Söng hann því fyrir 1.-3. bekk og 10.
bekk annars vegar og síðan 4.-8. bekk.
Sökum samræmdra prófa missti 9.
bekkur hins vegar af gleðinni.
Að sögn Sigurðs Arnars Sigurðs-
sonar skólastjóra var uppákoman
vel heppnuð og öll hin ánægjuleg-
asta. „Það er alltaf gaman að fá flotta
söngvara og listamenn í heimsókn.
Við fögnum öllum heimsóknum sem
þessum og hverju því sem vekur gleði
nemenda og starfsfólks,“ segir Sig-
urður. Þá má geta þess að höfundur
lagsins Nótt, eða Tonight, er Sveinn
Rúnar Sigurðsson, yfirlæknir heilsu-
gæslu á Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands á Akranesi. kgk
Aron Hannes tók
Eurovisionlagið
Það verður líf og fjör í
Laugardalshöllinni dag-
ana 16. – 18. mars en þá fer
fram í fjórða sinn Íslands-
mót iðn- og verkgreina.
Hátt í 200 ungmenni munu
keppa um að hljóta nafn-
bótina Íslandsmeistari í 25
iðngreinum. Sigurvegarar
eiga margir hverjir kost á
að keppa síðan við þá bestu
í sinni grein á Evrópu-
móti sem haldið verður í Búdapest
2018. Einnig verða þrjár iðngrein-
ar til viðbótar með sýningu á sínu
fagi.
25 skólar munu kynna fjöl-
breytt námsframboð á framhalds-
skólastigi. Er þetta í annað sinn
sem haldin er slík sameiginleg
námskynning þar sem nemend-
ur, kennarar og náms- og starfs-
ráðgjafar munu svara spurningum
um námsframboð, félagslíf, inn-
tökuskilyrði og annað sem gest-
ir vilja vita um nám og störf. Von
er á um 7000 grunnskólanemend-
um í Laugardalshöllina fyrstu tvo
dagana en þá munu nemendur í
9. og 10. bekk víðs vegar af land-
inu mæta til að fylgjast með þessu
unga fólki keppa og og fá að prófa
fjölbreytt verkefni undir hand-
leiðslu fagfólks. Má þar nefna að
líma upp flísar, nota air-brush á
bíl, prófa hljóðhraðaskynjara, setj-
ast upp í ýtuhermi og skipstjórnar-
hermi, prófa ýmis verkfæri, þvo og
flétta hár, baka, helluleggja,
sá kryddjurtum og fylgjast
með róbotum leysa ýmsar
þrautir.
Laugardaginn 18. mars
verður Fjölskyldudagur.
Frítt verður inn og fræðsla
og fjör í boði.
„Markmiðið með þessari
kynningu er m.a. að kynna
fyrir ungu fólki þau fjöl-
mörgu tækifæri sem felast
í iðn- og verknámi og auðvelda
þeim að kynna sér fjölbreytt náms-
framboð framhaldsskólanna með
það fyrir augum að fleiri taki upp-
lýsta ákvörðun um námsval sem
tekur mið af áhugasviði þeirra og
hæfni. Markvisst námsval dreg-
ur úr brotthvarfi úr námi sem er
stórt vandamál hér á landi,“ segir í
kynningu frá Verkiðn. mm
Íslandsmót iðn- og verkgreina
og framhaldsskólakynning