Skessuhorn - 15.03.2017, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 201736
Hjónin Hrefna Daníelsdóttir og
Páll Gísli Jónsson festu nýverið
kaup á einbýlishúsi á tveimur hæð-
um við Heiðarbraut á Akranesi.
Undanfarna daga og vikur hafa þau
staðið í ströngu við að undirbúa
flutning fjölskyldunnar. Eins og
gengur og gerist þegar fólk kaup-
ir fasteign vill það gjarnan breyta
einhverju eftir eigin höfði. Hrefna
og Palli eru þar engin undantekn-
ing og hafa leyft hverjum sem vill
að fylgjast með í gegnum Insta-
gram, blogg Hrefnu á Trendnet
og ekki síst Snapchataðgang henn-
ar. „Ég hef nú bara verið að sýna
frá þessu á mínum persónulega að-
gangi en það má segja að þar hafi
orðið sprenging. Ég held það hafi
milli 18 og 19 hundruð manns
bæst við bara á síðustu tveimur
vikum,“ segir Hrefna. Þarf kannski
ekki að undra, enda hafa Íslend-
ingar sýnt heimili og hönnun vax-
andi áhuga undanfarin ár. Til að
mynda telur Facebookhópurinn
Skreytum hús tæplega 40 þúsund
manns, eða um 12% þjóðarinn-
ar. Þar skiptist fólk á hugmyndum
og deilir reynslu sinni af hverju
því sem prýða kann hús og híbýli,
fyrst og fremst innanstokks. „Það
hafa margir áhuga á þessu og þetta
spurðist fljótt út. Fólk alls staðar af
landinu og meira að segja nokkr-
ir erlendis fylgjast með okkur og
virðist hafa áhuga á því sem við
erum að gera. Mér finnst það fyrst
og fremst skemmtilegt en upp-
lifi það líka sem ákveðna hvatn-
ingu. Fyrst margir eru að fylgjast
með þá er eins gott að vanda sig
og láta þetta ganga,“ segir Hrefna
og brosir. „Ég er búinn að lenda
nokkrum sinnum í því úti í búð að
vera spurður: „Hvað ertu að gera
hérna? Af hverju ertu ekki uppi í
húsi að vinna?“,“ segir Palli létt-
ur í bragði. „Ótrúlegasta fólk, ekki
bara vinir og kunningjar, eru að
forvitnast hvernig gengur í hús-
inu,“ bætir hann við.
Margt hægt með
málningu
Áður en þau keyptu húsið á Heið-
arbraut bjuggu hjónin ásamt börn-
unum þremur í íbúð í nýlegu fjöl-
býlishúsi í Flatahverfinu á Akra-
nesi. Sú íbúð var einfaldlega orð-
in of lítil fyrir fjölskylduna og
því horfði hún til þess að stækka
við sig. Fengu þau nýja húsið af-
hent fyrir bráðum mánuði síð-
an og hafa staðið í ströngu við að
endurinnrétta. Þó töluvert öðru-
vísi sé um að litast innanstokks
en áður en þau hófust handa segj-
ast Hrefna og Palli ekki hafa ver-
ið stórtæk í framkvæmdum. „Við
gerum þetta fyrst og fremst af því
okkur finnst þetta gaman og vilj-
um fá okkar fílíng í húsið. En við
viljum samt halda í það gamla sem
einkennir húsið. Eins og til dæm-
is steyptu loftlistana í stofunni,
sem eru mjög flottir og svo sett-
um við svona gamaldags rósettur
í loftið bæði á neðri og efri hæð-
inni,“ segir Hrefna. „Mesta vinn-
an hefur verið við að mála. Það er
svo margt hægt að gera með máln-
ingu, að draga fram alls konar hluti
sem var kannski ekki lögð áhersla á
áður,“ bætir hún við.
Ódýrar lausnir
Við endurinnréttingu hússin segj-
ast þau hafa einbeitt sér að ódýr-
um lausnum og reynt að gera sem
mest sjálf. „Í stað þess að skipta um
eldhússinnréttingu nýttum við þá
gömlu, enda allt í lagi með hana.
En okkur langaði að breyta útlitinu
þannig að við filmuðum framhlið-
ina, með aðstoð Eyþórs Óla [Frí-
mannssonar] og eldhúsið lítur út
eins og nýtt,“ segir Hrefna. „Við
keyptum nýja borðplötu, filmurn-
ar og málninguna og gerðum þetta
sjálf. Fyrir vikið erum við komin
með eldhús eins og nýtt fyrir nokkra
tugi þúsunda en ekki fleiri hundruð
þúsund, eins og ný innrétting hefði
líklega kostað,“ bætir Palli við. Þá
var farin ódýr en óhefðbundin leið
Halda í sál hússins en lífga
upp á það sem fyrir var
Hrefna Daníelsdóttir og Páll Gísli Jónsson.
Eldhúsið fyrir breytingar frá öðru sjónarhorni. Búið að leggja parket yfir flísarnar sem áður voru í
eldhúsinu og koma fyrir húsgögnum.
Hluti eldhússins fyrir breytingar. Búið að fjarlægja nokkra eldhússkápa, setja upp
hillur og filma innréttinguna.
Stofan eins og hún var þegar Hrefna og Palli
fengu húsið afhent.
Stofan eftir breytingar.