Skessuhorn - 15.03.2017, Síða 46
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 201746
Ármann Smári Björnsson, fyrirliði
meistaraflokks karla hjá ÍA til margra
ára, hefur ákveðið að leggja skóna á
hilluna og mun ekki spila fyrir liðið
í sumar. Ármann Smári meiddist illa
undir lok síðustu leiktíðar þegar hann
sleit hásin í leik gegn KR. Hann var
staðráðinn í að snúa aftur á völlinn í
sumar, eins og fram kom í stuttu við-
tali við hann í Skessuhorni í vetur, en
hefur nú tekið þá ákvörðun um að
láta staðar numið.
Ármann Smári gekk til liðs við ÍA
fyrir leiktíðina 2012 þegar hann kom
til landsins eftir atvinnumennsku í
Noregi og Englandi og hefur staðið
vaktina í miðju varnarinnar í fimm
leiktíðir. Einnig hefur hann verið fyr-
irliði liðsins síðan sumarið 2014. Ár-
mann sem er 36 ára spilaði alls 169
leiki fyrir félagið og skoraði 11 mörk.
„Það hefur verið frábært að spila fyrir
ÍA. Það er eiginlega ótrúlegt og erf-
itt að lýsa því. Þetta er stórt félag og
bærinn snýst allur um þetta. Það eru
allir með,“ segir Ármann Smári um
ferilinn hjá ÍA.
„Ármann Smári hefur verið mik-
ilvægur hlekkur í liði Skagamanna
undanfarin ár og því er mikill missir
af honum á vellinum. Sem dæmi má
nefna að hann var valinn leikmað-
ur ársins 2016 hjá Morgunblaðinu
í Pepsideild karla í knattspyrnu en
einnig var hann valinn leikmaður árs-
ins af stuðningsmönnum liðsins eft-
ir síðustu leiktíð. Knattspyrnufélag
ÍA þakkar Ármanni fyrir ómetanlegt
framlag á spennandi tímum hjá fé-
laginu og óskar honum alls hins besta
í framtíðinni,“ segir í tilkynningu frá
Huldu Birnu Baldursdóttur, fram-
kvæmdastjóra KFÍA.
Iain Williamson
hættir einnig
Miðjumaðurinn Iain Williamson,
sem gekk til liðs við ÍA frá Víkingi
R. fyrir síðasta tímabil, hefur einnig
lagt skóna á hilluna, 29 ára að aldri.
Hann var mikilvægur hlekkur í liði
ÍA á síðasta sumri og að því loknu
samdi hann við félagið um að leika
með því út keppnistímabilið 2017.
Undanfarin ár hefur Iain glímt
við þrálát mjaðmameiðsli og hafa
þau nú knúið hann til að láta af
knattspyrnuiðkun. Mjðamameiðsli
Iains hafa ágerst undanfarið og er
ákvörðun hans um að leggja skóna
á hilluna tekin í samráði við lækni.
„Knattspyrnufélag ÍA þakkar Iain
Williamson fyrir sitt framlag á síð-
asta ári og óskar honum velfarnað-
ar í framtíðinni,“ segir á heimasíðu
KFÍA.
mm/kgk
Ármann Smári leggur skóna á hilluna
Ármann Smári í leik gegn Breiðabliki
2016, en það ár var hann kosinn leik-
maður ársins af Morgunblaðinu.
Iain Williamson ásamt Gunnlaugi Jóns-
syni þjálfara.
Við í SamVest erum afar stolt yfir því
að hafa sent lið til Bikarkeppni Frjáls-
íþróttasambands Íslands fyrir 15 ára
og yngri, sem fram fór sunnudag-
inn 12. mars í Laugardalshöllinni.
Bikarkeppnin er liðakeppni í frjáls-
um íþróttum, þar sem keppt er í sjö
greinum í piltaflokki og sjö greinum
í stúlknaflokki, auk boðhlaups. Kepp-
endur eru 15 ára og yngri, en not-
uð eru áhöld og viðmið eins og um
keppni 15 ára sé að ræða.
Bikarliðið okkar samanstóð af átta
einstaklingum, fjórum stelpum og
fjórum strákum. Keppendur komu
að þessu sinni frá HHF (Patreksfirði
og Tálknafirði), HSH með keppend-
ur úr Stykkishólmi og Grundarfirði,
UMSB og USK á Akranesi. Þjálf-
ari liðsins á mótinu var Ómar Ólafs-
son, sem nýlega hóf störf sem frjáls-
íþróttaþjálfari hjá USK á Akranesi.
Í Bikarkeppninni geta liðin mann-
að greinar með að hámarki tveimur
greinum á hvern keppanda auk boð-
hlaups. Við vorum með fámennan
hóp sem lagði mikið á sig, en öll hin
liðin höfðu fleiri keppendum á að
skipa í keppnisgreinarnar.
Af þessum 14 greinum voru kepp-
endur í fjórum greinum að keppa
í þeim í fyrsta sinn. Í fimm grein-
um voru þátttakendur að bæta pers-
ónulegan árangur sinn. Við fengum
fyrsta sæti í einni grein og annað sæti
í annarri. Í stigakeppni liðanna lenti
piltaliðið okkar í 5. sæti af átta liðum,
og stúlknaliðið í 7. sæti af átta liðum.
Það er mikil vinna að setja saman
lið, finna krakka til að taka þátt og
fyrir þau að koma sér, af Vestfjörð-
um, Snæfellsnesi og víðar - til keppni
í Laugardalshöll.
Við erum afar stolt af þessum
krökkum, sem stóðu sig mjög vel og
voru samböndum sínum til mikils
sóma.
Björg Ágústsdóttir.
SamVest sendi lið til keppni
á Bikarmóti FSÍ
Keppendur ásamta Ómari Ólafssyni þjálfara, sem er lengst til hægri.
Badmintonspilarar frá Akranesi
gerðu það gott á Íslandsmóti ung-
linga sem haldið var í húsnæði Tenn-
is- og badmintonfélags Reykjavíkur
um helgina. Alls tóku 138 spilarar
frá tíu félögum þátt í mótinu. Skaga-
stúlkan María Rún Ellertsdóttir
náði þeim merka áfanga á mótinu
að verða þrefaldur Íslandsmeistari.
Hún spilaði í U13 ára flokki og varð
Íslandsmeistari í einliðaleik, tvíliða-
leik ásamt Hildi Marín Gísladóttur
úr Umf. Samherja og í tvenndarleik
þar sem hún spilaði með Gabríel
Inga Helgasyni úr BH.
Skagapilturinn Máni Berg Ell-
ertsson fagnaði tveimur Íslands-
meistaratitlum í U11 ára flokki;
í einliðaleik og sömuleiðis í tví-
liðaleik, en þar spilaði hann ásamt
Höllu Stellu Sveinbjörnsdóttur úr
BH.
Harpa Kristný Sturlaugsdótt-
ir hafnaði í öðru sæti í tvíliðaleik
U17 ára ásamt Ingibjörgu Rósu
Jónsdóttur úr UMFS og Brynjar
Már Ellertsson hafnaði í öðru sæti
í tvenndarleik í sama aldursflokki,
en hann lék einnig með Ingibjörgu
Rósu.
Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir
hafnaði í öðru sæti í einliðaleik U19
ára stúlkna og sömuleiðis í öðru
sæti í tvíliðaleik U19 ára stúlkna,
þar sem hún lék með Margréti
Dís Stefánsdóttur úr TBR. Tóm-
as Andri Jörgensson hafnaði í öðru
sæti í tvíliðaleik U19 ára pilta ásamt
Kristni Breka Haukssyni úr BH.
Þá ber að geta þess að rétt eins og
Skagastúlkan María Rún varð Dav-
íð Bjarni Björnsson úr BH einnig
þrefaldur Íslandsmeistari, en hann
spilaði í flokki U19 ára. kgk
ÍA eignaðist þrefaldan og tvöfaldan Íslandsmeistara
María Rún Ellertsdóttir úr ÍA varð
þrefaldur Íslandsmeistari í U13 ára
flokki. Hér tekur hún við verðlaunum
fyrir einliðaleik. Með henni á verð-
launapallinum er Margrét Guangbing
Hu Hamri, sem hafnaði í öðru sæti.
Máni Berg Ellertsson úr ÍA varð
tvöfaldur Íslandsmeistar. Hér tekur
hann við verðlaunum fyrir einliðaleik
snáða U11. Við hlið hans er Theódór
Ingi Óskarsson úr TBR sem hafnaði í
öðru sæti.
WOW Bikarmótið í hópfimleik-
um fór fram um helgina í Ásgarði í
Garðabæ. Var umsjón þess í hönd-
um fimleikadeildar Stjörnunnar. Á
mótinu er keppt í 2. flokki, 1. flokki
og meistaraflokki og taldi það til stiga
í GK deildarkeppninni. Mótið náði
hápunkti þegar öll bestu lið Fimleika-
sambandsins mættu til leiks á sunnu-
daginn. Fimleikafélag Akraness sendi
tvo hópa til keppni á mótinu. Stelp-
urnar í fyrsta flokki gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu í sinni deild.
mm/ Ljósm. FIMA.
Félagar í FIMA
sigruðu í fyrsta flokki
Um liðna helgi fór fram forkeppni á
Íslandsmóti einstaklinga í keilu með
forgjöf í Egilshöll í Reykjavík. Fjögur
Íslandsmet voru sett í mótinu á laug-
ardaginn. Matthías Leó Sigurðsson
úr ÍA spilaði fjóra leiki þennan dag
og setti Íslandsmet í einum, tveimur,
þremur og fjórum leikjum. Íslands-
metin eru sett í 5. flokki en í þeim eru
leikmenn 10 ára og yngri. Eftir seinni
dag forkeppninnar var Matthías Leó í
fimmta sæti karla.
Eftir sunnudaginn eru efst í
kvennaflokki þær Helga Ósk Freys-
dóttir KFR með 1616 pinna, Elva Rós
Hannesdóttir ÍR er í 2. sæti með 1582
og Berglind Scheving ÍR í 3. sæti með
1563.
Hjá körlunum var Jóhann Ársæll
Atlason ÍA í 1. sæti með 1646 stig,
Jóhann Á Jóhannsson ÍR er í 2. sæti
með 1641 og í 3. sæti er Þorleifur Jón
Hreiðarsson KR með 1618. mm
Matthías setti fjögur ný Íslandsmet
Íslandsmót unglinga í keilu fór fram
helgina 4.-5. mars. Til leiks mættu
37 ungmenni frá fjórum keilufélög-
um; Keilufélagi Akraness, Keilu-
félagi Reykjavíkur, Þór og ÍR. Fyrir-
komulagið er þannig að keppt er til
úrslita í 1.-3. flokki ef fleiri en fjórir
eru skráðir til leiks. Ekki er keppt til
úrslita í yngri flokkum heldur raðast
þeir eftir skori í átta leikjum. Að lok-
um er kepppt í opnum flokki, en þar
keppa innbyrðis þeir þrír spilarar sem
hafa hæsta meðaltal í flokki pilta ann-
ars vegar og stúlkna hins vegar.
Spilarar frá Keilufélagi Akraness
náðu góðum árangri á mótinu. Arnar
Daði Sigurðsson vann tvöfalt. Fyrst
hampaði hann Íslandsmeistaratitlin-
um í 2. flokki pilta eftir æsispennandi
úrslitaviðureign. Síðan bætti hann um
betur og tryggði sér sömuleiðis Ís-
landsmeistaratitilinn í opnum flokki.
Ásgeir Darri Gunnarsson varð í
öðru sæti í 1. flokki pilta og Harpa
Ósk Svansdóttir varð í öðru sæti í 3.
flokki stúlkna.
Í 4. flokki pilta sópuðu spilarar af
Akranesi til sín verðlaununum. Ró-
bert Leó Gíslason hampaði Íslands-
meistaratitlinum, Hrannar Þór Svans-
son varð í öðru sæti og Ólafur Hjalti
Haraldsson í því þriðja. Allir leika
þeir fyrir KFA.
Í 5. flokki pilta og stúlkna er ekki
keppt um sæti og allir fá verðlaun. Frá
KFA keppti Matthías Leó Sigurðs-
son. kgk
Keiluspilarar af Akranesi
gerðu það gott á Íslandsmóti
Matthías Leó Sigurðsson ÍA. Ljósm. kli.is
Þau unnu tvöfalt á Íslandsmóti unglinga. Arnar Daði Sigurðsson úr KFA varð Íslands-
meistari í 2. flokki pilta og opnum flokki. Elva Rós Hannesdóttir úr ÍR varð Íslands-
meistari í 2. flokki stúlkna og opnum flokki. Ljósm. KLÍ.