Skessuhorn


Skessuhorn - 30.05.2018, Síða 55

Skessuhorn - 30.05.2018, Síða 55
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2018 55 Kynningarfundur um skipulagsmál Sementsstrompurinn Almennur íbúafundur verður haldinn í bæjarþing- salnum, þriðju hæð að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 5. júní n.k. og hefst hann kl. 18:00. Kynnt verður breyting á deiliskipulagi Sementsreits. Breyting felst í því að heimilt verður að fella niður sementsstrompinn. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar. SK ES SU H O R N 2 01 8 Síðastliðinn föstudag var boðað til samkomu í sal Félags eldri borgara á Akranesi. Tilefnið var að skrifað var undir samning milli Akranes- kaupstaðar og Leigufélagsins Bestla ehf. um byggingu nýrrar þjónustu- miðstöðvar sem verður á neðstu hæð fjölbýlishúss sem reist verður á Dalbrautarreitnum á lóð núm- er 4. Bestla var eina fyrirtækið sem bauð í byggingarrétt á lóðinni í út- boði Akraneskaupstaðar sem fram fór í vetur. Ekki var boðið í bygg- ingarrétt á öðrum þremur lóðum á reitnum. Félagsmiðstöðin verð- ur í um 1270 fermetra rými á jarð- hæð, bílastæðahús verður í kjallara og íbúðir á efri hæðum þess. Ekki er búið að skipuleggja hvernig þetta rými verður innréttað með þarf- ir félagsstarfs eldri borgara í huga. Við þessi tímamót sér fyrir endan á margra ára baráttu Félags eldri borgara fyrir bættri félagsaðstöðu í bæjarfélaginu. Núverandi salur við Kirkjubraut 40 er fyrir margt löngu sprunginn utan af starfsemi félags- ins, en alla jafnan er um 10% bæj- arbúa í Félagi eldri borgara, eða ríf- lega 700 manns. Viðar Einarsson formaður FEB- AN bauð gesti velkomna og fagn- aði þeim áfanga í sögu félagsins sem framundan er. Sævar Freyr Þráins- son bæjarstjóri fór yfir verkefnið sem og Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs. Vilborg Þórunn Guð- bjartsdóttir formaður velferðar- og mannréttindanefndar fór því næst yfir niðurstöður íbúaþings í haust þar sem málefni eldra fólks voru til umræðu. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulagssviðs hjá Akra- neskaupstað kynnti þvínæst fyrir- hugaða framkvæmd. Byggingin við Dalbraut 4 verður fyrsta af fjórum stórhýsum sem skipulagið gerir ráð fyrir á Dalbrautarreitnum. Hún mun rísa sunnan við verslanamið- stöðina, við Dalbraut gegnt Krón- unni. Búist er við að jarðvegsfram- kvæmdir geti hafist í haust og áætl- að að húsið verði ríflega fokhelt í árslok 2019. mm Þjónustumiðstöð eldri borgara mun rísa við Dalbraut 4 Að lokinni undirskrift. F.v. Jón Ágúst Garðarsson framkvæmdastjóri Bestla, Guð- jón Helgi Guðmundsson verkefnisstjóri, Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Viðar Einarsson formaður stjórnar FEBAN. Tillaga að útliti hússins við Dalbraut 4. Þjónustumiðstöðin verður á jarðhæð hússins á um 1270 fm en íbúðir á efri hæðunum. Í kjallara verða bílastæði fyrir íbúa hússins. Fram kom að hluti bílastæða vegna starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar verður að hluta til austan við verslanamiðstöðina. Skrifað undir samning um byggingu þjónusturýmis fyrir eldri borgara á Dalbraut 4. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Jón Ágúst Garðarsson framkvæmdastjóri Bestla rituðu undir samninginn. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.