Skessuhorn - 30.05.2018, Blaðsíða 58
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 201858
lín, Jón Grétar Breiðfjörð Álfgeirs-
son og Sigurberg Óskar Rúnason.
Með viðbótarnám til stúdentsprófs
brautskráðist Birkir Freyr Björg-
vinsson. Af starfsbraut brautskráð-
ust Andrea Ýr Kristinsdóttir og Jó-
hann Steinn Gunnarsson.
Athöfnin hófst á því að Hrafn-
hildur Hallvarðsdóttir skólameist-
ari Fjölbrautaskóla Snæfellinga,
brautskráði nemendur og flutti
ávarp. Sólrún Guðjónsdóttir að-
stoðarskólameistari afhenti síðan
nemendum viðurkenningar fyrir
góðan námsárangur. Sveitarfélögin
sem standa að skólanum gáfu við-
urkenningarnar ásamt Háskóla Ís-
lands, Háskólanum í Reykjavík, Ís-
lenska stærðfræðifélaginu, Hugvís-
indadeild Háskóla Íslands, danska
sendiráðinu, Arion banka og Lands-
bankanum.
Ísól Lilja Róbertsdóttir hlaut
hæstu einkunn á stúdentsprófi og
var meðaleinkunn hennar 9,8 sem
er hæsta meðaleinkunn í sögu skól-
ans. Fékk hún veglega bókagjöf frá
sveitarfélögunum og peningagjöf
frá Landsbankanum. Ísól fékk einn-
ig viðurkenningu frá Arion banka
og Íslenska stærðfræðifélaginu fyrir
góðan árangur í stærðfræði, verð-
laun fyrir góðan árangur í íslensku,
ensku, spænsku, líffræði og eðl-
is- og efnafræði. Hún hlaut einnig
Menntaverðlaun Háskóla Íslands
og Raungreinaverðlaun Háskólans
í Reykjavík. Henni býðst því niður-
felling skólagjalda fyrstu önnina í
HR og fyrsta árið í HÍ kjósi hún að
stunda þar nám.
Svana Björk Steinarsdóttir hlaut
viðurkenningu fyrir góðan árang-
ur í stærðfræði frá Arion banka og
íslenska stærðfræðifélaginu. Hún
fékk einnig verðlaun fyrir góðan ár-
angur í eðlis- og efnafræði, íslensku
og líffræði. Karítas Bríet Ólafsdótt-
ir fékk verðlaun fyrir góðan árang-
ur í þýsku. Aron Freyr Ragnarsson
fékk viðurkenningu fyrir góðan ár-
angur í ensku. Jón Grétar Breið-
fjörð Álfgeirsson hlaut viðurkenn-
ingu fyrir góðan árangur í ensku
og sögu. Guðbjörg Helga Hall-
dórsdóttir fékk viðurkenningu fyr-
ir góðan árangur í líffræði. Fanney
O. Gunnarsdóttir fékk viðurkenn-
ingu fyrir góðan árangur í íslensku.
Anna Soffía Lárusdóttir fékk verð-
laun fyrir góðan árangur í sálfræði
og Haukur Páll Kristinsson fékk
viðurkenningu fyrir störf í þágu
nemendafélagsins.
Stórsveit Snæfellsness spilaði
stórt hlutverk í athöfnin eins og svo
oft áður enda stolt skólans. Sveitin
er skipuð nemendum Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga og er jafnan feng-
in til þess að koma fram við hátíð-
leg tækifæri. Að þessu sinni voru
níu útskriftarnemar í stórsveitinni.
Fluttu tvö þeirra einnig einleik en
það voru þau Ísól Lilja Róberts-
dóttir og Jón Grétar Breiðfjörð Álf-
geirsson. Loftur Árni Björgvinsson
flutti kveðjuræðu kennara og starfs-
fólks og Hildur Björg Kjartans-
dóttir flutti ræðu fyrir hönd fimm
ára stúdenta. Nýstúdentinn Hauk-
ur Páll Kristinsson hélt kveðjuræðu
nýstúdenta þar sem hann kvaddi
skólann og starfsfólk hans og þakk-
aði fyrir veru sína í skólanum. Að
lokum sleit skólameistari skólanum
í 14. sinn og bauð gestum í kaffi og
kökur. fsn/mm
Ísól Lilja Róbertsdóttir lauk stúd-
entsprófi frá Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga á föstudaginn með hæstu
einkunn á lokaprófi frá upphafi
skólans, eða 9,8. Ísól Lilja segir í
samtali við blaðamann að lykill-
inn að góðum námsárangri sé fyrst
og fremst að vanda sig í verkefna-
vinnu. „Það skiptir máli að gera vel
í öllum verkefnum sem maður skil-
ar af sér og til að gera vel er mikil-
vægt að lesa verkefnalýsingar vel og
vera nákvæmur í allri vinnu. Ég hef
alveg orðið vör við að það er auð-
velt að fá mínus í verkefni bara fyr-
ir að hafa ekki lesið verkefnalýsingu
nógu vel. Við búum líka svo vel í
Fjölbrautaskóla Snæfellinga að hafa
góðan aðgang að kennurum því
skólinn er ekki svo stór. Ég nýtti
mér það mikið og hikaði ekki við
að spyrja kennarana ef ég var í vafa
með eitthvað,“ segir hún og bætir
því við að skipulag og góð nýting á
tíma sé líka stór partur af því að ná
svona góðum árangri í námi.
Stefnir í lýðháskóla
í Danmörku
Samhliða námi hefur Ísól Lilja
einnig verið í tónlistarnámi að læra
á bæði saxafón og píanó. Hún seg-
ir ekki mikinn tíma hafa verið fyrir
annað en þannig vilji hún líka hafa
það. Nú tekur við vinna í Norska
húsinu í Stykkishólmi í sumar en
hún á eftir að finna sér vinnu fyr-
ir haustið. „Ég ætla líka að vinna
í haust til að safna pening en ég
stefni á að fara í lýðháskóla í Dan-
mörku í janúar á næsta ári,“ segir
hún. Hvað kemur eftir lýðháskól-
ann segist hún ekki vera búin að
ákveða. „Ég stefni á nám við Há-
skóla Íslands haustið 2019. Ég er
ekki alveg ákveðin hvað mig langar
að læra, það er svo margt spennandi
í boði,“ segir hún og heldur áfram.
„Eins og er langar mig mest að læra
eðlisfræði með áherslu á stjarnvís-
indi en það er svona mitt áhuga-
svið.“ arg
Hlaut hæstu einkunn
frá upphafi skólans
Ísól Lilja Róbertsdóttir dúxaði með
meðaleinkunn upp á 9,8 sem er sú
hæsta í sögu skólans. Ljósm. tfk.
Föstudaginn 25. maí brautskráðust
29 nemendur frá Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Af fé-
lags- og hugvísindabraut braut-
skráðust Almar Njáll Hinriksson,
Álfheiður Inga Ólafsdóttir, Birna
Björk Benediktsdóttir, Lísbet Rós
Ketilbjarnardóttir, Rebekka Dögg
Guðjónsdóttir, Selma Marín Hjart-
ardóttir, Sævar Þór Reynisson
og Þorgeir Árnason. Af náttúru-
og raunvísindabraut brautskráð-
ust Aron Freyr Ragnarsson, Fann-
ey O. Gunnarsdóttir, Guðbjörg
Helga Halldórsdóttir, Haukur Páll
Kristinsson, Ísól Lilja Róbertsdótt-
ir, Karítas Bríet Ólafsdóttir, Krist-
björg Ásta Viðarsdóttir, Nadezda
Geraimova, Sigurjón Kristinsson,
Svana Björk Steinarsdóttir og Sæ-
rún Ósk Diego Arnarsdóttir. Af
opinni braut brautskráðust Anna
Soffía Lárusdóttir, Björg Brimr-
ún Sigurðardóttir, Elís Orri Rún-
arsson, Guðrún Bergmann Agn-
arsdóttir, Jóhanna Kristín Hjalta-
Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Sungið og spilað við útskriftina. Ljósm. tfk.
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósm. tfk.