Skessuhorn - 30.05.2018, Qupperneq 60
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 201860
Laugardaginn 26. maí síðastliðinn
voru rétt 50 ár liðin frá því hægri
umferð var tekin upp hér á landi.
Allt frá upphafi bílaaldar á Íslandi
var ekið á vinstra helmingi vegar-
ins og lengi fram eftir 20. öldinni
voru fluttir inn bílar með stýrinu
hægra megin, þó að það væri ekki
regla. Ísland var hins vegar í mikl-
um minnihluta þjóða þar sem ekið
var á vinstri vegarhelmingi enda
fól það í sér ýmis vandamál. Bara
til að nefna dæmi þá var viðkvæð-
ið ef þurfti að aka fram úr bíl, þá
spurði ökumaðurinn farþegann
gjarnan; „er einhver að koma á
móti,“ hann sá það betur en öku-
maðurinn. Í kringum stríð var farið
að ræða um að breyta yfir í hægri
umferð, en frá því horfið þar sem
Bretar voru fyrirferðarmiklir í um-
ferðinni þá og kunnu ekkert ann-
að en aka vinstra megin. Á sjötta
áratugnum var farið að ræða um
þetta af mikilli alvöru að fara yfir
á hægri vegarhelming til að verða
í takt við flestar aðrar þjóðir. Hér-
lend stjórnvöld voru engu að síð-
ur frekar tortryggin á að þetta væri
hægt þar sem landinn væri orðinn
svo vanur vinstri umferðinni að
breyting í þá veru yrði bókstaflega
stórhættuleg. Þar að auki yrði afar
kostnaðarsamt að færa allar merk-
ingar og breyta t.d. gatnamótum.
Þannig má segja að íhaldssemi og
ákveðin hræðsla hafi fælt menn frá
breytingum, sem síðar kom í ljós
að var ástæðulaus ótti.
Byggðu á reynslu Svía
Ári áður en Íslendingar létu vaða
í breytinguna höfðu Svíar gert hið
sama. Þeir höfðu líkt og Íslend-
ingar haft vinstri umferð í áratugi
og reyndist það þeim sérlega rugl-
ingslegt einkum þegar þeir óku yfir
landamærin til Noregs eða Finn-
lands og urðu þá að snarbeygja yfir
á hægri vegarhelming og skipta svo
yfir á þann vinstri þegar komið var
heim. Einnig hafði þetta áhrif á
þá sem hugðu á ferðir til Svíþjóð-
ar því akstur á vinstri vegarhelm-
ingi fældi þá frá ferðum þangað og
hafði því beinlínis áhrif á ferða-
þjónustuna. Breytingin í Svíþjóð
gekk vel og horfðu hérlend stjórn-
völd til þess.
Stýrið hvort eða er
vinstra megin
Alþingi Íslendinga samþykkti að
hér á landi yrði tekin upp hægri
umferð 26. maí 1968. Áður hafði
ríkisstjórnin fengið valinkunna
menn til að semja frumvarp að
lögum um þessa breytingu. And-
stæðingar þessarar breytingar
héldu því fram að slysatíðni myndi
aukast mjög a.m.k. fyrstu árin en
reynsla þeirra sem þegar höfðu
breytt frá vinstri til hægri sýndi
að svo var ekki, ef farið yrði var-
lega og áróður yrði markviss. Fyr-
ir lágu skýrslur frá ýmsum lönd-
um, sem gert höfðu sambærilega
breytingu, sem sýndu að færslan
var mun auðveldari en talið var
fyrirfram. Allstaðar hafði þó ver-
ið rekinn mikill áróður fyrir breyt-
ingunni og sífellt hamrað á hægri
umferð, löngu áður en hún var
innleidd. Þá auðveldaði það breyt-
inguna hér á landi að langflestar
bifreiðar á Íslandi voru með stýrið
vinstra megin, þ.e.a.s. eins og ætl-
ast er til í hægri umferð.
Með undanþágu frá
sýslumanni í
glugganum
Mikill undirbúningur var hjá lög-
reglumönnum og ýmsum sem
tengdust þessum breytingum og
dagana fyrir H-daginn unnu flestir
tvöfaldan vinnudag. Sigvaldi Ara-
son í Borgarnesi var þá farinn að
reka vörubíl í Borgarnesi en síð-
ar stofnaði hann Borgarverk sem
í dag er eitt öflugasta fyrirtækið
á sínu sviði hér á landi. Sigvaldi
rifjar það upp í samtali við blaða-
mann að hafa unnið við undirbún-
ing breytingar til hægri umferð-
ar í hálfan mánuð. Fékk hann það
hlutverk að fara um þjóðveginn
frá Borgarnesi, upp hjá Ferjukoti
og alla leið suður í Kjós og und-
irbúa að fljótlegt yrði að færa öll
umferðarskilti og merkingar yfir.
Sjálfa nóttina áður en hægri um-
ferðin tók gildi fór hann svo um
þessa sömu vegi, skrúfaði niður
skiltin í flýti og kom þeim fyrir á
réttum vegkanti. Fékk hann sér-
stakt undanþágumerki til að hafa
í bílglugganum á Bens vörubíln-
um, M-144, enda var almenn um-
ferð stranglega bönnuð nóttina
fyrir hægri umferðina, nema fyrir
sjúkrabíla, slökkvilið og lögreglu.
„Menn voru skíthræddir um að
þessi breyting frá vinstri til hægri
leiddi af sér slys. Að fólk gleymdi
sér og keyrði hvert á annað,“ rifj-
ar Sigvaldi upp. „Blátt bann var
lagt við því að aka um vegina frá
klukkan 3 til 7 aðfararnótt H-
dagsins. Þá var Borgarfjarðarbrú-
in ekki komin og áttu ég og Björn
Bragi Jóhannsson verkstjóri að sjá
um færslu allra umferðarmerkja
frá Borgarnesi, upp hjá Eskiholti,
um Ferjukotssíkin og þaðan suð-
ur í Hvalfjörð. Svo þegar klukk-
an var nákvæmlega 5:50 um morg-
uninn var öllum stranglega bann-
að að aka nokkurn skapaðan hlut.
Líka okkur sem unnum við þetta.
Það var eins og að skapa þyrfti sér-
stakt andrými áður en formlega
var tilkynnt að hægri umferð væri
hafin.“
Einungis kostir
Sigvaldi segir að breytingin yfir
í hægri umferð hafi svo gengið
prýðilega þegar til kom, enda var
búið að innprenta breytinguna
í huga flestra og allir reyndu að
fara varlega. Fá slys og óhöpp
hafi því orðið. „Einhver strákur á
hjóli gleymdi sér og hjólaði fyrir
bíl í Reykjavík, en hann slasaðist
ekki alvarlega og tórir enn, líkt og
ég,“ segir Sigvaldi. Í alla staði seg-
ir hann að þessi breyting hafi orð-
ið til framfara. „Til dæmis heyrði
ég einhvern tímann að vinstri um-
ferðin hefði verið sérlega óheppi-
leg fyrir konur sem riðu um í söðli.
Þær hafi einfaldlega snúið vit-
laust miðað við umferðina. Ég sel
það hins vegar ekki dýrara en ég
keypti það. Hins vegar voru fyrir
þennan tíma ekki framrúðutrygg-
ingar komnar og þurftu menn að
leita upp ökumann bíls sem spýtti
gróti og braut rúðu til að fá hana
bætta. Slíkt skapaði ómælda hættu.
Það voru bara ókostir sem fylgdu
vinstri umferðinni og þetta var því
mikið til bóta,“ segir Sigvaldi Ara-
son forstjóri Borgarverks og verk-
taki um það leiti sem hægri um-
ferðin var tekin upp.
Nýtti tækifærið
Til gamans látum við hér fylgja
sögu sem tengist breytingunni
yfir í hægri umferð. Akureyringur
einn var sérlega lofthræddur mað-
ur. Hann hafði ekki þorað fyrir sitt
litla líf að aka landveginn frá Akur-
eyri til Ólafsfjarðar sökum þess að
á heimleiðinni þurfti hann að aka
sjómeginn eftir veginum. Maður-
inn fagnaði þessum merku tíma-
mótum 26. maí 1968 með því að
fara daginn áður til Ólafsfjarðar,
meðan vinstri umferðin var enn í
gildi, en aka svo heim daginn eft-
ir þegar hægri umferðin hófst. Í
bæði skiptin fjallmegin á veginum,
að sjálfsögðu.
mm
www.skessuhorn.is
Fimmtíu ár frá því hægri umferð var tekin upp
Vinstri umferðin var sérlega bagaleg fyrir konur sem riðu um í söðli!
H-merkið sem sett var í alla bíla til að minna ökumenn á hægri umferð.
Sigvaldi Arason með sérstaka undanþágu sýslumanns, skilti sem hann hafði í bílglugganum hjá sér og gaf honum sérlegt
leyfi til aksturs nóttina fyrir H-daginn.