SSFblaðið - dec. 2015, Side 12

SSFblaðið - dec. 2015, Side 12
12 minnum á heimasíðuna Hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar á heimasíðunni s.s. um orlofsmál, upplýsingar um sjóði, launareiknivél, niðurstöður kannana félagsins, hægt er að skoða útgáfumál félagsins, upplýsingar um trúnaðarmenn og margt fleira. Allar ábendingar og athugasemdir um það sem betur má fara á síðunni eru vel þegnar á ssf@ssf.is. skáldsins Tagore vera táknræn fyrir afstöðu þorra almennings til kvenna: „Það mætti líkja manninum við tré, það þarf að hafa nóg rými, loft, regn og allt mögulegt annað. Séu rætur þess rifnar burt, visnar það. Svo er með manninn. Séu rætur hans rifnar hlýtur það að valda honum þjáningum. Konan er aftur á móti eins og vafningsviður, sem getur nærst af því einu að hringa sig utan um tréð.“ Gefið í Landhelgissjóð Landhelgi Íslands var færð í 50 mílur árið 1972 og af því tilefni ákvað stjórn SÍB að gefa 50.000 kr. í Landhelgissjóð. Þakkarbréf barst frá forsætisráðuneytinu um hæl, undirritað af Ólafi Jóhannessyni. Þar segir m.a.: „Jafnframt því að þakka þessa myndarlegu gjöf minnist ráðuneytið þess, að Samband íslenskra bankamanna varð fyrst íslenskra séttarsamtaka til þess að heita fjárframlagi til Landhelgissjóðs og sýndi með því lofsvert fordæmi.“ Ötull og ósérhlífinn ritstjóri Í byrjun árs 1972 var tekin upp sú nýbreytni að fela skrifstofu SÍB umsjón með útgáfu Bankablaðsins og var það í samræmi við ákvörðun sambandþings árið áður. Tók starfsmaður Sambandsins, Sigurður Guttormsson við ritstjórn en áður hafði Bjarni G. Magnússon haft það verk með höndum allar götur frá árinu 1944. Mun hann aldrei hafa þegið greiðslur fyrir störf sín í þágu bankamanna en litið á þau sem hugsjónastarf. Bjarni sá ekki aðeins um skrif og efnisútvegun heldur og um auglýsingasöfnun og fjárreiður allar – allt í sjálfboðavinnu í 28 ár! Reiknistofa með 148 K! Reiknistofa bankanna hóf starfsemi haustið 1973 og var Einar Pálsson ráðinn forstjóri. Strax var gerður leigusamningur við IBM um tækjakaup og var aðaltölva stofnunarinnar með 148 kílóbæta minni. Fimm árum síðar var tölvukosturinn kominn upp í 246 kílóbæt en það þætti ekki öflug einmenningstölva nú. Þess má geta að í dag er tölvukostur Reiknistofunnar mældur í hundruðum gígabæta. Samið fyrir sparisjóðafólk Samband íslenskra sparisjóða var stofnað 27. apríl 1967. Eftir að SÍB hafði öðlast samningsrétt með lögunum frá árinu 1977 fór þetta samband sparisjóðanna með samningsumboð fyrir hönd einstakra sjóða gagnvart starfsfólki þeirra. Eftir að lögum þess var breytt hinn 13. nóvember 1982 hefur það farið með samningsumboð gagnvart öllu starfsfólki sjóðanna og átt aðild að samninganefndum bankanna. Þess má geta að Lánastofnun sparisjóðanna var stofnuð árið 1986 og hóf hún starfsemi í febrúar árið eftir. Henni var ætlað það hlutverk að vera viðskiptabanki sparisjóðanna og bakjarl þeirra hvað varðar lánafyrirgreiðslu, gjaldeyrismál o.fl. Þessi stofnun breyttist í Sparisjóðabanka Íslands hf. 1. janúar 1994. Þar með varð fjórði viðskiptabankinn í landinu til – en þó án beinna samskipta við viðskiptamennina, sem eins og áður, skipta við sinn sparisjóð í héraði. „Vonandi ekki hrapað að neinu“ Árið 1974 kom fram frumvarp á Alþingi um sameiningu Búnaðarbankans og Útvegsbankans. Bankamenn brugðust ókvæða við og töldu rök sameiningarsinna haldlítil. Er bent á það í Bankablaðinu að eftir áratuga útþenslu íslensk bankakerfisins sé skyndilega lagt til að sveigt skuli af þeirri braut án nokkurs fyrirvara. Í ómerktri grein í 1.-2. tbl. 1974 eru lokaorðin þessi: „Hér er því margs að gæta og vonandi verður ekki hrapað að neinu.“ Má segja að þessi orð hafi reynst spádómsorð því langur tími átti eftir að líða þar til verulegur skriður komst á sameingarmál bankanna. Bankamenn sýndu hug sinn til landhelgisbaráttunnar í verki.

x

SSFblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.