SSFblaðið - des. 2015, Blaðsíða 28

SSFblaðið - des. 2015, Blaðsíða 28
28 þéTTur hópur Þegar SSF kom í heimsókn í maí sl. voru engin sameiningateikn á lofti. Afslappað og gott andrúmsloft einkenndi vinnustaðinn og auðsýnilegt að mikið var lagt upp með góðan móral, gott starfsumhverfi og samheldni starfsmanna. Aðspurður hver lykillinn að þessu væri sagði Jónas Pétursson, útibússtjóri, að hann teldi þetta eflaust rétt mat varðandi starfsandann, „þessi hópur er samheldinn og búinn að starfa saman í mörg ár bæði í blíðu og stríðu, þannig að við þekkjum orðið hvert annað nokkuð vel og vitum hvernig við eigum að akta gagnvart hverjum og einum.“ Hann sagðist þó ekki gera sér grein fyrir því hver lykillinn að þessu væri en eflaust væri skýringuna að finna í góðu starfsliði. Í útibúinu starfa sjö starfsmenn, þau Auður Arna Eiríksdóttir, Bryndís Björnsdóttir, Guðný R. Sverrisdóttir, Guðrún M. Haraldsdóttir, Guðríður Ólafsdóttir, Jónas Pétursson og Kolbrún Gunnarsdóttir. Þegar starfsaldur þeirra er lagður saman myndar hann um 110 – 120 ár sem gefur ákveðna mynd af því hve góður vinnustaðurinn er. samvera uTan vinnu Við ræddum við þær Guðrúnu Maríu og Kolbrúnu varðandi vinnustaðinn og hvað það væri sem gerði þennan vinnustað svona einstakan. „Markmið okkar á hverjum degi er að viðskiptavinir okkar fari brosandi og ánægðir heim. Svo að sjálfsögðu  reynum við að styðja við bakið hvert á öðru enda þekkjum við hvert annað mjög vel“ sögðu þær og tóku fram að lykilforsendan að því að senda viðskiptavini brosandi heim væri fólgin í því að það væri brosandi starfsfólk sem tæki á móti þeim. „Við reynum að gera eitthvað saman í hverjum mánuði t.d. að fara á kaffihús bæjarins, í bíó, leikhús eða borða saman“ sögðu vinkonurnar. Vinnustaðurinn hefur unnið til verðlauna í átakinu „Hjólað í vinnuna“. Þá hafa þau tekið þátt í og sett svip sinn á Bandýmót sem haldin hafa verið í Ólafsfirði og unnu þar m.a. til verðlauna fyrir glæsilegasta markið. Reglulega gerir vinnsutaðurinn eitthvað saman utan vinnu. „Við höfum farið í óvissuferðir og heimsótt kollega okkar, t.d. á Grenivík sem tóku afspyrnuvel á móti okkur. Í lok ágúst sl. skipulögðum við MÓRALLINN SKIPTIR ÖLLU MÁLI í maí síðasTliðnum heimsóTTum við vinnusTaði Félagsmanna um land allT. á meðal þeirra vinnusTaða var hress og skemmTilegur hópur sTarFsmanna sparisjóðs norðurlands á dalvík. þegar ssF bar þar að garði haFði sparisjóðurinn ekki sameinasT landsbankanum eins og nÚ er orðin raunin. við seTTumsT niður og ræddum við sTarFsFólkið bæði Fyrir og eFTir sameiningu. Bryndís Björnsdóttir og Guðríður Ólafsdóttir koma út frá Bjarna og Hrafnhildi á Völlum í Svarfaðardal í einni af óvissuferðum vinnustaðarins.

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.