Heimsmynd - 01.12.1993, Side 29

Heimsmynd - 01.12.1993, Side 29
ganga yfir sig að láta þetta gerast. Því glæpurinn verður ekki bara ráðamanna. Glæpurinn verður okkar. Ég hef reyndar ekki verið á landinu nema með annan fótinn að undanfömu en mér hefur þótt ótrúlega lítið um viðbrögð. Auðvitað eru menn allsstaðar nöldrandi, það er hinn íslenski háttur á að bregðast við, að hnýta í Sighvat eða Guðmund Áma. En auðvitað er þjóðin að láta þetta ganga yfir sig. f útlöndum hafa menn staðið frammi fyrir samskonar vanda og við en þeir hafa í flestum tilfellum reynt að bregðast við áður en hann hefur skollið á með fullum þunga. Án þess að ég haldi því fram að nefndir séu einhver allsherjarlausn þá er sá háttur oft hafður á í nágrannalöndum okkar að setja á fót þverfaglega starfshópa sem móta einhverjar línur í þeim vanda sem er fyrirsjáanlegur. Glæpur okkar íslendinga er ekki einstakur atburður heldur felst hann í umræðuleysinu eða viðmiðannaleysinu. í því hvernig við leysum ekki okkar vandamál. Og tilskipanastíll ráðamanna hérna er líka vandi í sjálfu sér. Menn eru varla fyrr komnir í embætti en þeir skipa fyrir um hitt og þetta og leggja niður heilu stofnanirnar eins og ekkert sé. Og þeir virðast komast upp með það og það er vandi þjóð-arinnar.“ Það sem þú segir bendir óneitanlega til þess að íslenska ríkið sé veikburða. Getur verið að smæðinni sé um að kenna? „Ég hafði lengi haldið að smæðin væri styrkur fyrir lýðræðið og að héma væru alveg kjömar aðstæður til að halda uppi lýðræðissamfélagi einmitt vegna smæðarinnar. Nú er ég orðinn sannfærður um hið gagnstæða það er að segja að smæðin hér leiði til þess að lýðræðisríki með almennum reglum og grundvallarlögum geti ekki orðið sterkt því að kunningjasamfélagið verði ekki brotið á bak aftur. Afsökunarhugsunar-hátturinn, „allir menn eru breiskir“ og skilningurinn á því að öllum geti orðið á og að öllum sé fyrirgefið er ríkjandi viðhorf. Þannig að það eru aldrei neinar almennar reglur um að menn þurfi að standa reikningsskil gerða sinna, til dæmis með því að segja af sér sem ráðherrar. Ég held að þetta tengist smæðinni. Við virðumst ekki geta komið okkur upp sterku ríki í þeim skilningi að við mótum samfélagið á lýðræðislegan og réttlátan hátt. Nú virðist gífurleg óánægja í landinu og menn eru nöldrandi á hverri einustu kaffistofu en menn taka sig ekki saman, né heldur eflist nokkur umræða með rökum og tilvísunum í grundvallarreglur og hugsjónir lýðræðis og réttlætis." Getur verið að ástæðan fyrir þessu sé skortur á heimspekihetð? „Já, en það er um leið skortur á borgaralegu samfélagi. Við misstum mjög mikið úr með því að fara úr hefðbundnu veiðimanna- og bændasamfélagi í einu heljarstökki inn í hálfiðnvætt tæknisamfélag. Við áttum aldrei neitt borgaralegt samfélag með öllu sem því fylgir. Þess vegna varð ekki „upplýsing" hér að neinu marki. Það voru aldrei aðstæður sem kölluðu á slíkt. Þess vegna er heimspekileg umræða svo sérstök hér. Þú bentir á það hvað siðfræðileg umræða væri áberandi hér. Ég held að það sé m.a. vegna þessarar lausungar, að við þurfum að byggja upp og treysta ákveðna hluti sem eru löngu orðnir sjálfsagðir í öðrum löndum. “ Þýðir þetta að við eigum að forðast að hrófla við stoðum samfélagsins á borð við heilbrigðiskerfið? „Ég er ekkert hræddur við að ræða að það þurfi að móta nýja heilbrigðisstefnu. Ég er ekkert að segja að við þurfum að hafa allt óbreytt. Aðalatriðið er að umræðan lúti bæði faglegum og siðfræðilegum viðmiðum og sé ekki bara byggð á einhverjum tilskipunum." Sumstaðar erlendis hafa verið búnir til listar yfir hagkvæmni „viðgerða“ á fólki. Getur verið að við stefnum í þessa átt án þess að hafa skilgreint markmiðið? „Jú, menn hafa ekki lagt það skipulega niður fyrir sér hvað eigi að ganga fyrir og með hvaða rökum. Það er það sem er svo hættulegt. Þá verður til einskonar dulin skömmtun. Þess vegna er svo mikilvægt að mótuð sé heilbrigðisstefna sem öllum er ljós og röksemdinar séu alveg skýrar hvers vegna þetta sé gert. Það sé leitað þjóðarsáttar um málið með opinni og lýðræðislegri umræðu. Við verjum ekki heilbrigðiskerfið best með því að skírskota í óbreytanlega sögulega þjóðarsátt, heldur með því að móta hana á nýjan leik í ljósi breyttra aðstæðna með réttlæti að leiðarljósi." ■
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.