Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 72
Á eftir bolta kemur barn
Í heimi íþróttanna sér völvan engin stórfeng-
leg afrek, frekar hneykslismál ef eitthvað er.
„Margir fræknir, íslenskir íþróttamenn
gera garðinn frægan á árinu. Landsliðið
okkar í knattspyrnu nær langt. Þar kemur
ung upprennandi stjarna sterk inn. Þessi
stjarna fær stuðning frá sér eldri liðsfélög-
um sem vita að tími þeirra er að verða búinn.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar ágætri velgengni
innan vallar en enn meiri utan. Hann tilkynnir það
snemma á árinu að hann og eiginkona hans, Alex-
andra Helga, eigi von á barni. Vissulega gleðifregn-
ir. Aron Einar Gunnarsson og hans eiginkona ein-
beita sér meira að fyrirtækjarekstri og nýta auðinn
úr knattspyrnunni vel. Kári Árnason opnar sig upp
á gátt í hlaðvarpsviðtali og lýsir ýmsu misjöfnu sem
hefur gengið á í gegnum tíðina í landsliðinu. Það
gerir fólk kjaftstopp.
Handboltalandsliðið nær líka
langt, en þar verður lykilmað-
ur fyrir slæmum meiðslum
á ögurstundu, þannig að
landslagið breytist til hins
verra hjá þeim.
Gunnar Nelson vinn-
ur eftirsóttan titil á árinu.
Sveinn Arnór McKee verður á
fljúgandi sundsiglingu allt árið.
Í crossfit kemur upp leiðindamál
sem skaðar íþróttina varanlega. Um
er að ræða skæra, íslenska stjörnu sem verður gripin
glóðvolg í steranotkun og alls kyns vitleysu. Einnig
kemur upp leiðindamál er varðar Hafþór Júlíus
Björnsson sem gengur frá hans ferli. Hann og eigin-
kona hans hafa átt við frjósemisvandamál að stríða,
en um mitt nýtt ár verður von á litlum gleðigjafa.“
72 27. desember 2019Völvuspá 2020
„Það gerir fólk
kjaftstopp
„Bestu
mánuðir
ársins fyrir þjóð-
ina í heild eru apríl ,
ágúst og desember.
Landsliðið í handbolta
MYND: PEXELS
MYND: DV/HANNA ANDRÉSDSÓTTIR
Margir falla frá
Nú er völvan að verða búin með bensínið, gasið á kveikjaranum og sígaretturnar. „Ég
get ekki haldið áfram mikið lengur,“ segir hún móð, en ritstjórinn er einnig orðinn
ansi lúinn í fingrunum.
„Margir þjóðþekktir Íslendingar falla frá á árinu. Að flestum þeirra er sjónarsviptir
þótt margir séu komnir vel á efri ár,“ segir völvan en vill ekki nefna nein nöfn. Ritstjór-
inn sér samt að hún veit hverjir það eru sem kveðja þennan heim.
„Við skulum vera bjartsýn en raunsæ á árinu 2020,“ segir hún snögglega til að
breyta um umræðuefni. „Bestu mánuðir ársins fyrir þjóðina í heild eru apríl , ágúst
og desember. Í lok ársins 2020 hafa orðið talsverðar breytingar til batnaðar í þjóðfé-
laginu. Verkalýðshreyfingin er þó á heljarþröm, þar sem forsvarsmenn ráða ekki við
sinn hlut. Heilbrigðiskerfið hefur aðeins rétt úr kútnum og menntamálin hlotið tals-
verða umfjöllun. Mér sýnist stefna í ágætis uppstokkun í grunnskólanum, en fram-
haldsskólinn situr eftir. Við huggum okkur við að betra er að byrja á grunninum og
byggja síðan ofan á.“
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða