Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 39
Bækur og menning 29. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is HORMÓNAJÓGA - Leið til að endurvekja hormónabúskap þinn Bókin Hormónajóga – leið til að endurvekja hormónabúskap þinn, eftir Dinah Rodrigues í þýðingu Rakelar Fleckenstein Björns- dóttur, kom út í vor og hefur fengið frábærar viðtökur. Bókin er fáanleg í öllum bókaverslunum, á bókasöfnum og í vel völdum jógaverslunum og jógastöðvum. Hvað er hormónajóga? Hormónajóga er náttúruleg og heildræn meðferð sem örvar þau líffæri og þá kirtla sem sjá um framleiðslu kynhormóna með því að nudda líffærin innan frá (stöður og öndunaræfingar), stýra lífs- orkunni (prana og svipar til Qigong lífsorkuæfinganna) og beita jóga nidra sem hefur huglæg áhrif. Sú tegund af hormónajóga sem hér er kynnt til sögunnar samanstendur af sérstakri æfingaröð fyrir konur, 35+, sem tekur rúman hálftíma að gera. Æfingarnar eru ekki flóknar en það er nauðsynlegt að gera þær reglu- lega, allavegana til að byrja með og til þess þarf þolgæði. Upphafskona hormónajóga er Dinah Rodrigues frá Brasilíu. Þessi 92 ára gamla kona er besta aug- lýsingin fyrir árangurinn af æf- ingunum. Dinah byggir æfingarnar á áratugareynslu af jógaiðkun, kennslu og rannsóknum tengdum lífeðlisfræði. Rakel nam fræðin hjá Dinah í Þýskalandi og er fyrsti, og eini kennarinn hér á landi, sem hefur réttindi til að kenna aðferða- fræði hennar. Dinah hefur þróað þrenns konar hormónajóga: fyrir konur, eins og það sem kynnt er í bókinni, fyrir karla (streitulosandi) og fyrir sykursjúka. Kemur í veg fyrir eða dregur úr einkennum Regluleg ástundun æfinganna kemur í veg fyrir eða dregur úr margvís- legum einkennum sem gjarnan eru fylgifiskar breytingaskeiðisins. Einkennin eru mun fleiri en okk- ur grunar en þekktust eru hitakóf, þurrkur í leggöngum, þreyta, pirring- ur, svefntruflanir og minni kynhvöt. Í kringum fertugt fer að draga úr virkni eggjastokkanna og fram- leiðsla estrógens og prógesteróns minnkar. Fram að tíðahvörfum sér estrógen kynhormónið í líkamanum um að vernda konur en við tíðahvörf er hætta á að þessi vernd hverfi að mestu þegar magn estrógens minnkar. Þess vegna er svo mikilvægt að við viðhöldum eða endurvekjum hormónaframleiðsluna og best er að gera það á náttúrulegan hátt. Hvaða konur ættu að stunda hormónajóga? Hormónajóga er himnasending til kvenna á breytingaskeiði en það hefur líka reynst konum á snemm- búnu eða ótímabæru breytinga- skeiði vel. Einnig konum sem eru með óreglulegar blæðingar, engar eða of miklar blæðingar, sársaukafull- ar blæðingar, vægt legslímuflakk, fjölblöðruheilkenni (PCOS), fyrir- tíðaspennu og húðvandamál svo eitthvað sé nefnt. Síðast en ekki síst hefur fjölmörgum konum tekist að verða barnshafandi með aðstoð hormónajóga. Rakel vill hvetja þær konur sem eru að huga að barneignum, sem virð- ast ekki ætla að ganga eins og vonir stóðu til, að skoða hormónajóga. Reynslan sýnir að fjölmargar kon- ur hafa orðið þungaðar með því að stunda hormónajóga reglulega og er Dinah Rodrigues stolt af því að „eiga“ jógabörn úti um allan heim. Í horm- ónajóga gerum við líka streitulosandi æfingar og allt hjálpar þetta til. Til að halda utan um útgáfu bókarinnar var fyrirtækið Yoga Natura ehf. stofnað en það er í eigu Rakelar Fleckenstein Björnsdóttur, hormónajóga- og hathajógakennara, og Thomasar Fleckenstein ljósmyndara. Auk þess að gefa út bækur er Rakel með námskeið, bæði fyrir byrj- endur og lengra komna í hormóna- jóga, en námskeiðin hafa verið kennd í Ljósheimum frá upphafi. Fyrirtækið heldur einnig utan um sýningar á myndum Thomasar og er hugmyndin að næsta verkefni Yoga Natura ehf. verði að gefa út bók með ljósmynd- um eftir hann. Nánar má fræðast um hormónajóga á facebook.com/hormonajoga og á netfanginu yoganatura@simnet.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.