Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 70
70 FÓKUS 29. nóvember YFIRHEYRSLAN Heiðar Sumarliðason Hvert var þitt fyrsta starf? Ég byrjaði að bera út DV þegar ég var 10 eða 11 ára gamall. Það hafði í för með sér að ég átti alltaf vasapeninga, gat því keypt mér snúð og kók á hverjum degi, enda var ég orðinn vel spikaður þrettán ára. Ég náði því af mér tveimur árum síðar og hef vart borðað sætindi síðan. Þetta var nota bene áður en offitufar- aldurinn reið yfir börnin okkar, það voru kannski bara fjórir feitir í árganginum. Hef því átt betri ár en 8. og 9. bekk. Hvar líður þér best? Heima í faðmi fjölskyldunnar. Vil helst ekki fara út úr húsi eftir klukkan fjögur. Hvað óttastu mest? Að missa fjölskylduna. Hvert er þitt mesta afrek? Að hafa fengið konuna mína til að giftast mér. Ef þú hefðir spurt mig þegar ég var sem feitastur árið 1993, þá hefði ég giskað á að ég yrði hreinn sveinn að eilífu. Hver er leiðinlegasta hljómsveit í heimi? Ég skipti alltaf um stöð þegar eitthvað með Muse fer í loftið. Svo þoli ég ekki næntís harð- lífishljómsveitir á borð við Creed. Hver er frægasti einstaklingurinn í síma- skránni þinni? Það hlýtur að vera Jóhannes Haukur Jóhannesson. Ég er svona skáumboðsmaður fyrir hann, eða ráð- gjafi. Við erum með samning, ég held honum niðri á jörðinni og hann reynir að hífa mig upp. Besta ráð sem þú hefur fengið? Man ekki eftir neinu í svipinn. Hins vegar hef ég tekið eftir að fólk sem er sífellt að skipta sér að öðrum og „ráðleggja“ er oft fólkið sem minnst hefur efni á því. Taki það til sín sem við á. Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Ég er ótrúlega liðtækur í húsverkunum, þarf að vera það, því ekki þéna ég vel. En það er þó eitt sem ég þoli ekki tengt húsverkum og það er að fara með dót í Sorpu. Það er fátt sem mig hryllir jafn mikið við. Hver er fyrirmynd þín í lífinu? David Brent. Besta bíómynd allra tíma? Pulp Fiction eða Empire Strikes Back. Get ekki gert upp á milli þeirra. En sú versta? Ég man hvað The Matrix-„framhöldin“ ollu mér miklum vonbrigð- um. Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Þegar Bragi Árnason, vinur minn, svarar mér með „mmm“ á Messenger. Hvað þýðir það?! Ég svara honum núna alltaf bara með „aaa.“ Krókur á móti bragði. Hverjir eru mannkostir þínir? Óbilandi réttlætiskennd. En lestir? Óbilandi réttlætiskennd. Hann Snæbjörn, meðstjórnandi minn í útvarpsþættinum Eldi og brennisteini, sagði eitt sinn við mig: „Heiðar, þú værir búinn að ná miklu lengra í lífinu ef þú bara kynnir að halda kjafti.“ Það er auðvitað eitthvað til í því, en svo er aftur á móti spurning hvað maður er tilbúinn að láta bjóða sér upp. Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Hugarró. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Að gerast leikskáld og leikstjóri. Það er að mestu niðurlægjandi og auðmýkjandi, en þegar það skemmtilegt er það svo frábært að maður verður að fá meira. Þetta er eins konar fíkn. Hvað er á döfinni hjá þér? Ég er að skrifa barnaleikritið Tréð í samstarfi við Söru Marti Guð- mundsdóttur og Agnesi Wild sem verður frumsýnt á Listahátíð Reykjavíkur í vor. Síðan eru ýmis önnur leikhús-, kvikmynda- og sjónvarpsverkefni á mismunandi stigum þróunar. Heiðar Sumarliðason er handritshöfundur, framleiðandi og leikstjóri sem hefur verið áberandi síðastliðið ár á útvarpsstöðinni X-ið með af- þreyingarþáttinn Stjörnubíó. Nú um helgina fer Heiðar af stað með nýjan útvarpsþátt, Eldur og brennisteinn, ásamt Snæbirni Brynjarssyni en þó heldur Heiðar sínu fyrra hólfi með framannefndum þætti. Heiðar er tekinn í yfirheyrslu DV. Tómas Valgeirsson tomas@dv.is M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.