Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 54
54 FÓKUS 29. nóvember
H
elena Reynisdóttir hefur
á skömmum tíma skap-
að sér nafn fyrir fallega
myndsköpun en hún hélt
sína fyrstu sýningu 17 ára göm-
ul. Sýninguna nefndi hún Ekki er
allt sem sýnist, og voru verkin af
mörgum þjóðþekktum íslensk-
um leikurum. Hugmyndina seg-
ir hún hafa verið þá að fólk leiki
gjarnan mörg hlutverk og sýni
ekki endilega alltaf sinn innri
mann. Ári síðar hélt Helena svo
aðra sýningu undir yfirskrift-
inni Umhverfa/Aroundness þar
sem hún skoðaði andlit frá ólík-
um sjónarhornum. Þriðja sýn-
ingin leit svo dagsins ljós ári síðar
á kaffihúsinu Energia og fékk hún
heitið Fersk fegurð en þar fjallaði
Helena um ferskleika og fegurð
vatnsins.
„Ég hélt stóra yfirlitssýningu á
verkum mínum í Safnahúsinu á
Akranesi sem fékk mikla athygli
en ég útskrifaðist af myndlist-
arbraut í Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ sama ár. Ég fór svo
beint í förðunarnám hjá Reykja-
vík Makeup School og útskrif-
aðist þaðan með hæstu einkunn
í beauty-förðun. Næsta ár fór svo
í mikið af förðunarverkefnum og
einstaka teiknipöntunum. Árið
2015 komst ég svo inn í drauma-
námið mitt í myndlistarskóla
í Stokkhólmi og flutti þangað.
Tveimur árum síðar útskrifaðist
ég úr náminu við Konstskolan
Basis og flutti í kjölfarið aftur
til Íslands þar sem ég hóf nám í
listfræði við Háskóla Íslands. Nú
í sumar komst ég svo í skiptinám
við Humboldt-háskólann í Berlín
og bý þar núna. Á sama tíma fékk
ég stærsta verkefni mitt til þessa
sem var að teikna stóra mynd í
raunsæisstílnum mínum fyrir
Hótel Geysi og hangir hún nú
þar í forsalnum á hótelinu. Þetta
verk efni var eitt það skemmtileg-
asta og mest gefandi verkefni sem
ég hef tekið að mér.
Forsagan er sú að í byrjun árs
fékk ég skilaboð frá eigendum
Hótel Geysis þar sem þeir sögðu
mér frá verkefninu og að þeir
vildu endilega fá mig til að taka
það að mér. Þau höfðu þá fylgst
með mínum listaferli í mörg ár
og fannst ég akkúrat vera sá lista-
maður sem þau höfðu í huga.
Þau buðu mér að koma og skoða
rýmið, en á þessum tíma stóð yfir
mikil endurbygging á hótelinu.
Ég samþykkti og byrjaði í kjölfarið
að plana og undirbúa mig. Verk-
ið tók þrjá mánuði í vinnslu enda
mjög stórt í sniðum eða um 1,7
metrar sinnum 1,5 metrar. Þetta
er mynd af eigendum hótelsins.
Ég eyddi miklum tíma í smáatriði
því mig langaði að fanga persónu-
einkennin eins vel og mögulegt
var. Í byrjun ágúst var verkið flutt
úr Reykjavík upp á Hótel Geysi og
hangir það nú í forsalnum, þegar
komið er í anddyri hótelsins.“
Alltaf verið ákveðin hugleiðsla
Helena segir myndirnar henn-
ar einkennast af raunsæjum stíl
og yfirleitt mjög stórar í sniðum.
„Þetta eru oftast portrait-teikn-
ingar í tveggja metra hæð. Ég legg
mikið upp úr því að ná tilfinningu
og persónueinkennum mann-
eskjunnar sem ég er að teikna,
þess vegna vil ég aldrei „fegra“
andlitin, ef svo er hægt að segja.
Þegar ég segi fegra á ég við að
ég vil ekki breyta neinu við and-
litið svo það passi inn í einhverja
samfélagslega fegurðarstaðla. Ef
manneskjan er með broslínur,
hrukkur eða ósimmetrískt and-
lit vil ég alls ekki breyta því enda
myndi maður þá tapa persónu-
einkennum, sem eru einmitt það
sem gerir manneskjurnar falleg-
astar.“
Helena teiknaði fyrstu teikn-
inguna sína í þessum raun-
veruleikastíl einungis tólf ára
gömul. Hún fann strax að stíll-
inn átti vel við hana enda er hún
enn við sömu iðju, þrettán árum
síðar. „Ég og vinkona mín byrjuð-
um á því að hittast eftir skóla til
að teikna og gerðum það tímun-
um saman. Það skemmtileg-
asta var að ég fann fljótt hvernig
teiknihæfileikar mínir þróuðust
og bættust við þetta. Þarna varð
ekki aftur snúið. Ég myndi segja
að ég hafi byrjað að teikna vegna
þess að ég fann strax hvað ég
hafði mikinn áhuga og hann hef-
ur haldist óbreyttur síðan. Teikn-
ingin er minn helsti miðill og
hefur í raun alltaf verið ákveðin
hugleiðsla fyrir mig.“
Spurð hvað sé framundan seg-
ist Helena alltaf hafa annan fót-
inn á Íslandi þótt auðvelt sé að
njóta lífsins í Berlín. „Berlín er al-
gjör draumur að búa í, sérstak-
lega fyrir listafólk. Ég stefni auð-
vitað að því að klára skiptinámið
mitt hér og sjá svo bara hvert líf-
ið leiðir mig næst. Ég reyni alltaf
að heimsækja Ísland reglulega og
kem auðvitað heim um jólin, en
ég er rosalega spennt að hitta fjöl-
skyldu og vini.“ n
Áhugasamir geta fylgst með
Helenu bæði á Facebook og
Instagram undir notendanafn-
inu, helenareynisart.
„Ófullkomleikinn það fallegasta“
n Listakonan Helena Reynisdóttir hélt fyrstu sýninguna 17 ára n Myndlistin ákveðin hugleiðsla
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
Teikning af Ingvari E.
Sigurðssyni, frá fyrstu
einkasýningu Helenu
„Ekki er allt sem sýnist“
árið 2011
Verk Helenu, Þetta er ekki Jón, hékk fyrir framan
Kringluna en það var valið af fyrstu einkasýningu
hennar árið 2013 fyrir götusýningu Arion banka.