Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 6
6 29. nóvemberFRÉTTIR
Leðurverkstæðið reykjavík býður upp á handunnin og
kLæðskeraskorin karLmannsbeLti úr hágæða Leðri.
Þá bjóðum við upp á mikið úrvaL af axLaböndum.
síðumúLa 33 / 108 reykjavík / sími: 551 6659 / www.Lvr.is
Leðurverkstæðið reykjavík á
sér Langa sögu en upphaf Þess
má rekja aLLt aftur tiL áranna
fyrir seinna stríð. árið 1937
hóf Það starfsemi sína að
víðimeL í reykjavík en í dag er
Það tiL húsa með versLun og
verkstæði að síðumúLa 33.
AXLARBÖND FRÁ
4.990 KR.
BELTI FRÁ
5.990 KR.
„Óþægileg og niðurlægjandi upplifun“
E
ftir að hafa melt þetta atvik, þá sé ég
að það er ekkert saklaust við þetta.
Þetta er ein af fjölmörgum birtingar
myndum þessa heimsfaraldurs sem
ofbeldi og mismunun gegn konum er og
vangetu manna til að viðurkenna konur
sem jafningja en ekki hluti sem þeir eiga
tilkall til. Það á ekki að normalisera svona
hegðun eða draga úr alvarleika henn
ar, það leyfir henni aðeins að viðgangast,“
segir Sandra Mjöll Markúsdóttir, lögfræði
nemi við Háskólann í Ósló, en á dögunum
gengu tveir ókunnugir karlmenn um stúd
entaþorpið og áreittu fjölda kvenna, með
al annars Söndru Mjöll. Hún segir rekstrar
aðila stúdentaþorpsins hafa brugðist
fagmannlega við.
Sandra Mjöll stundar nám í lögfræði og
er í skiptinámi við Háskólann í Ósló. Með
an á náminu stendur býr hún á stúdenta
görðunum í Kringsjå.
„Ég hafði ekki hugsað mér að pósta
þessu, einfaldlega því mér fannst þetta
atvik sem ég lenti í ekki neitt sérstaklega
alvarlegt og ekkert til að vekja athygli á,
enda virðist þetta saklaust í stóra sam
henginu. Ég skipti þó um skoðun og ákvað
að deila þessu,“ segir Sandra Mjöll í færslu
á Facebooksíðu sinni en mennirnir tveir
áreittu hana á stúdentabarnum Union 864
nú á dögunum.
„Í síðustu viku gengu tveir óþekktir
menn um stúdentaþorpið mitt og áreittu
stelpur, meðal annars mig. Mennirn-
ir löbbuðu upp að mér þar sem ég sat og
var að spila með tveimur vinum mín-
um. Mennirnir horfðu á þá, á meðan þeir
bentu á mig, og spurðu þá hvort að ég væri
vinkona eða kærasta, því jú, þeir þurftu
að fá staðfestingu frá karlkyns vinum mín-
um hvort það væri í lagi að áreita mig
eða ekki. Þeir heimtuðu svo símanúmer-
ið mitt og eftir að ég neitaði þeim staðfast-
lega nokkrum sinnum þá tók annar þeirra
upp á því að ota peningum að mér í þeirri
von að ég segði já. Í tilviki annarrar stelpu
brugðust þeir við með því að kalla hana
tík og eltu hana eftir að hún neitaði að gefa
þeim símanúmerið sitt. Dæmin eru fleiri.“
Sandra ræðir einnig um atvikið við stúd
entablað Háskólans í Ósló og stúdentablað
OsloMetháskólans. Í samtali við blaðið
segir Sandra að þessi upplifun hafi verið
óþægileg og niðurlægjandi og sömuleiðis
gífurleg vanvirðing við hana sjálfa, og allar
konur.
Fram kemur að daginn eftir atvikið hafi
Sandra lesið færslu inni á Facebookhópi
fyrir skiptinema í skólanum þar sem önn
ur stúlka sagðist hafa orðið fyrir áreitni af
hálfu tveggja ókunnugra manna á svæðinu
þennan dag. Sagðist hún hafa horft upp á
mennina áreita fjölda annarra kvenna.
Í kjölfarið stigu fjölmargar konur fram
og sögðust einnig hafa orðið fyrir áreitni af
hálfu mannanna tveggja þennan dag.
Fram kemur að í kjölfar atviksins hafi
öryggisreglur verið hertar á svæðinu og
sömuleiðis lögreglu gert viðvart. Það hefur
þó enn ekki tekist að hafa uppi á mönnun
um tveimur.
Sandra Mjöll segist vera ánægð með
að málinu sé fylgt eftir. Mikilvægt sé að
þolendur kynferðisáreitni upplifi að á þá sé
hlustað, og fái viðeigandi stuðning, hvort
sem um er að ræða óviðeigandi snertingu
eða orðbragð. n
n Áreitt af tveimur mönnum í stúdentaþorpi n Birtingarmynd heimsfaraldurs sem ofbeldi er„Það á ekki að normalisera svona hegð-
un eða draga úr alvarleika hennar, það
leyfir henni aðeins að viðgangast.
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Sandra Mjöll Markúsdóttir.
LJÓSMYND/SKJÁSKOT AF VEF UNIVERSITAS.