Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 42
Bækur og menning 29. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
Ástarsögudrottingin er ennþá með
ódýrustu jólabækurnar eftir 35 ár
Sumir lenda í ævintýri á hverju götuhorni og Rósa hjá Rauðu seríunni er klárlega ein af þeim
manneskjum. „Þetta er búið að vera
ótrúlegt ævintýri og hófst fyrir hart-
nær 35 árum af því að okkur vantaði
vinnu í prentsmiðjuna Ásprent, sem
við Kári maðurinn minn áttum á
þeim tíma. Það skemmtilega er að
gamla prentsmiðjan mín, Ásprent
á Akureyri, prentar ennþá allar
bækurnar fyrir mig í dag og gengur
frá öllum áskrifendum. Þau standa
sig með mikilli prýði og í mínum huga
vil ég frekar láta prenta bækurnar
mínar hér á landi heldur en erlendis,“
segir Rósa Vestfjörð Guðmundsdóttir.
„Ég væri löngu farin á hausinn“
Sagan af upphafi Rauðu seríunnar
og því hvernig Rósa náði samn-
ingi við bandaríska útgefandann
Harlequin Enterprises um útgáfu á
bókum frá Mills & Boon á íslensku
er æsileg og jafnvel efni í heila bók.
„Ég vissi það ekki þá, en samn-
ingamaðurinn sem kom með mér
á bókamessu í Frankfurt og átti að
aðstoða mig við að ná samningi
við útgefanda sagnanna, var þurr
alki. Hann datt svona hressilega í
það á leiðinni út – og ég var nánast
mállaus, kunni litla sem enga ensku,
bara með gagnfræðaskólapróf.“ Eftir
rútuferð frá Lúxemborg til Frankfurt
var farangurinn týndur, samferða-
maðurinn ofurölvi og Rósa vissi
ekkert hvar hótelið var eða hvernig
kaupin gerðust á eyrinni. „Ég fór án
karlsins á messuna að reyna að fá
samningana beint – og það tókst.
Þau frá Harlequin hlógu reyndar að
mér. Þeim fannst svo ruglað að láta
sér detta í hug að halda að þetta
gengi á Íslandi, en samþykktu. En
svona eru örlögin. Ef karlinn hefði
ekki verið svona fullur hefði hann
haft milligöngu um samningana og
kannski fengið 20 prósent af sölunni
í öll þessi ár – þá væri ég löngu farin
á hausinn,“ segir hún og hlær.
„Frá upphafi, árið 1985, höfum við
hjá Rauðu seríunni gefið út alls 2.714
bækur. Af þeim eru 407 Ástarsögur,
en þær voru fyrstar til að koma út,
399 Ástar- og afbrotasögur, 381
Sjúkrasaga, 368 Örlagasögur. Ást
og óvissa, 318. Ást og undirferli, 70.
Samtals eru þetta hátt í tvö þús-
und prentaðar bækur. Ofan á þetta
koma svo allar 743 rafbækurnar og
28 hljóðbækur!“
Fjórða kynslóðin kynnist Rauðu
seríunni
Það finnst varla sá sumarbústaður á
Íslandi þar sem ekki má finna nokkr-
ar út úr lesnar kiljur í sterkum litum
og með dramatískum uppsettum
kápumyndum af kúrekum og fögrum
fljóðum, og titlum á borð við Leikur
ástarinnar, Tilboð Luke eða Leyndar-
mál hennar. Kynslóð eftir kynslóð
hefur fengið að kynnast þessum
stórskemmtilegu, þýddu ævintýrum
og nú er svo komið að fjórða kyn-
slóðin er að taka við.
Fyrsta íslenska útgáfan
„Þegar ég horfi til baka hafa orðið
ótrúlegar breytingar á þessum 35
árum. Samt erum við alltaf að leita
að því sama. Það er gleði og ham-
ingja. Ástin breytist aldrei og hún
eldist ekki heldur. Við viljum öll að
börnin okkar fái allt það besta, góða
heilsu og frábæra framtíð.“ Þetta
endurspegla bækur Rauðu seríunn-
ar. „Bækurnar byggjast á spennu og
gleði og þær enda allar vel þannig
að lesandinn situr ekki eftir með
hugann í uppnámi. Þær uppfylla
það sem lesandinn leitar eftir þegar
hann sest niður til að lesa bók. Sam-
kvæmt nýjustu tölum eru Íslendingar
duglegir að lesa spennusögur, en
fjórar af hverjum sex bókum Rauðu
seríunnar eru spennusögur. En ég
gef líka út mýkri sögur eins og Ást-
arsögur og Sjúkrahússögur fyrir þá
sem vilja lesa þannig sögur. Bók-
menntaelítan þrjóskast enn við að
telja þetta til bókmennta og Kiljan
hefur t.d. aldrei fjallað um eina ein-
ustu bók frá okkur. Mér finnst þetta
móðgun, ekki bara fyrir mig heldur
fyrir alla mína lesendur sem skipta
þúsundum á hverjum mánuði og
mínar bækur eru yfirleitt lesnar að
meðaltali 5–7 sinnum hver bók. Ef
svo vel lesnar bækur teljast ekki til
bókmennta, hvað gerir það þá?“
„Ertu viss um að þetta geti gengið?“
„Þetta byrjaði allt af rælni í mér.
Við Kári vorum að keyra til Reykja-
víkur. Ég var að lesa dagblaðið og
var með áhyggjur yfir því að okkur
vantaði meiri vinnu. „Við skulum fara
að prenta kiljur,“ sagði ég og braut
blaðið saman eftir endilöngu, „við
prentum bara tvær bækur í einu og
fáum Dagsprent til að prenta þær
fyrir okkur á meðan við erum að
kaupa stærri prentvél, þá þurfum
við bara að kaupa kápusetningar-
vél.“ Kári horfði á mig. „Ertu viss um
að þetta geti gengið,“ sagði þessi
skynsami maður. „Já, ég er viss um
að þetta gengur ef að þær eru nógu
ódýrar,“ sagði ég og hló við.“
Ódýri netpakkinn – frábær jólagjöf
„Það var eins þegar ég byrjaði með
rafbókabúðina fyrir tíu árum. Þá
sögðu allir að ég gæti ekki verið með
mína eigin rafbókabúð því stærri út-
gáfa yrði að vera með hana. Í dag er
ég komin með 743 rafbækur og 28
hljóðbækur og hefur þetta gengið
ljómandi vel þó að ég sjái um hana
ein. Það er alveg nýr lesendahópur
sem kaupir rafbækur. Margir brott-
fluttir Íslendingar vilja lesa á íslensku.
Svo er eldra fólkið sem hefur alltaf
lesið bækurnar, en sér illa. En það
getur lesið á spjaldtölvu. Ég sendi
þeim bækurnar í Word-skjali svo
þau þurfi ekki að hala þeim niður af
netinu. Það er mjög vinsælt að gefa
spjaldtölvu með áskrift að bókum í
jólagjöf,“ segir Rósa. Rauða serían er
ennþá með „Ódýrustu jólabækurn-
ar“ og nú bjóðum við 1.000 króna
afslátt fyrir þá sem fara í áskrift að
„Ódýra netpakkanum“ í rafbókunum
á vefsíðunni.“ Rósa bætir við að til
standi að bæta við fleiri hljóðbókum í
framtíðinni. „Þá ætla ég að reyna að
vera með eina til tvær á mánuði. Eg
hef alltaf verið bjartsýn og ætla ekki
að hætta því á gamals aldri.“
Samvinnan er fyrir öllu
„Ég vil færa Stefnu á Akureyri sér-
stakar þakkir. Þeir hjálpuðu mér með
vefsíðuna fyrir raf- og hljóðbækurn-
ar og hafa reynst mér frábærlega
vel. Ég hefði ekki getað þetta án
þeirra aðstoðar. Og svo er annað
sem er ómissandi. Við Kári höfum
alltaf unnið saman í þessu og ég
gæti ekki gert það sem að ég er búin
að gera án hans. Við sjáum um að
dreifa bókunum sjálf, en það tek-
ur um þrjá daga að dreifa þeim á
suðvesturhorn landsins. Sjálf sé ég
svo um að setja inn á vefsíðuna, en
rafbækurnar þurfa að koma inn á
vefsíðuna á sama tíma og bækurnar
í búðirnar, þetta heitir samvinna.“
Bækurnar frá Ásútgáfunni má
finna í öllum bestu bókabúðum
landsins sem og fjölmörgum mat-
vöruverslunum.
Nánari upplýsingar má nálgast á
asutgafan.is
Myndir:
Eyþór
Árnason