Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 28
28 FÓKUS - VIÐTAL 29. nóvember
alltaf í rauðu! Það hjálpar, fólk tal-
ar um það. Ég er líka þekkt fyr-
ir að vera mjög ákveðin þegar ég
veiti ráðgjöf: ég er ekkert að sykur-
húða hlutina. Það hefur fallið vel í
kramið hjá til dæmis þýskumæl-
andi kúnnum,“ segir hún og brosir.
Vigdís ruddi brautina
Það er álit Sigrúnar að til að
ná jafnrétti þá þurfi konur að
búa til eigin peninga. Og vera
fyrirmyndir. Hún minnist á Vig-
dísi Finnbogadóttur; einstæðu
móðurina sem braut glerþakið
og gerðist þjóðhöfðingi Íslands í
upphafi níunda áratugarins.
„Vigdís kenndi konum og
stelpum að það er allt hægt. Þú
getur orðið forseti, þú þarft ekki
einu sinni að vera gift manni! Ég
las grein um daginn, reyndar í
nokkuð óvenjulegu blaði, Barbie-
-blaðinu. Þar kom meðal annars
fram að þegar stúlkur eru orðnar
fimm ára þá trúa þær því ekki
lengur að þær geti látið drauma
sína rætast. Ég vil sýna öllum að
þetta er hægt. Þú þarft ekki að
hafa fjárfesta í kringum þig og
þú þarft ekki að vera með millj-
ón dollara viðskiptahugmynd.
Þú ert nú þegar með reynslu og
þekkingu sem þú þarft, þú þarft
kannski bara hjálp við að breyta
því í fyrirtæki. Ég hef oft sagt við
viðskiptavini mína að stundum
þarftu að gera eitthvað sem þú
ætlar kannski ekki að vera þekkt-
ur fyrir, bara til að koma hjólun-
um af stað.“
Stærsta verkefnið til þessa
Sigrún verður með alþjóðlega
ráðstefnu í Hörpu 18. og 19. júní,
2020, og er ráðstefnan sérstaklega
fyrir konur sem vilja byggja upp
þekkingarfyrirtæki á netinu. Hún
segir alla geta byggt upp fyrirtæki
á netinu, en konur þurfi að rétta
upp höndina: vekja athygli á sér.
Sigrún bendir þó á að að auðvitað
séu karlmenn velkomnir.
„Þetta er nýjasta verkefnið
mitt, og það stærsta til þessa.
Þarna verða fyrirlesarar alls stað-
ar að úr heiminum. Og allir mæta
í rauðu! Ég er með mjög háan
gæðastandard en fyrirlesararnir
eru allir „self made“; konur sem
hafa byggt upp sín eigin fyrirtæki
með sínu eigin fjármagni, en hafa
ekki fengið fjármagn utan frá. Og
allar eru þær með að minnsta
kosti milljón dollara í tekjur. Ég er
að gera þetta fyrir konurnar þarna
úti. Við þurfum að gera þeim
kleift að láta drauma sína ræt-
ast. Það skilar sér til næstu kyn-
slóðar. Ef konur í dag láta drauma
sína rætast, þá munu stelpurnar
seinna láta drauma sína rætast.“
Sigrún rifjar upp að árið 2008
fór hún á fyrirlestur hjá Tony
Robbins á London. Þar voru við-
mælendur látnir gera verkefni
þar sem þeir skrifuðu niður fram-
tíðarsýn sína, hvar þeir sáu fyr-
ir sér að vera tíu árum síðar. „Ég
týndi síðan skjalinu, en fann það,
tíu árum seinna. Þar stóð meðal
annars: „Ég á mitt eigið fyrirtæki,
ég er með milljón dollara í tekj-
ur, ég er búin að ná jafnrétti, ég er
búin að hlaupa maraþon. Ég var
búin að ná öllum markmiðun-
um, nema að hlaupa maraþon,
og ná jafnrétti. Það er næst á dag-
skrá.“ nSmiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Þarna
fann ég
minn
fjársjóð