Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 29
Góð kaup
29. nóvember 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
ÞRÁINN SKÓARI:
Gamlir og lúnir skór ganga
aftur og verða eins og nýir
Þráinn Skóari opnaði þann fyrsta janúar 1984 og er eitt elsta skóviðgerðarverkstæði í
Reykjavík. Daníel hefur verið í skó-
viðgerðarbransanum síðan 2014 og
segir ætíð nóg að gera. „Það dalaði
um tíma aðeins í rekstrinum en svo
tók þetta við sér aftur. Hugsanlega
hefur aukin umhverfisvitund þar
eitthvað að segja, en fólk er augljós-
lega farið að hugsa meira og betur
um umhverfið og nýtingu hlutanna,“
segir Daníel.
Gera við miklu meira en bara skó
Á skóviðgerðarstofunni er Daníel
með heilar sex saumavélar sem allar
gegna mismunandi hlutverki þegar
kemur að störfum skósmiðsins. „Við
skóararnir gerum líka miklu meira
en fólk gerir sér grein fyrir. Við erum
að sjálfsögðu í skóviðgerðum hvort
sem um er að ræða sólaumskipti,
viðgerðir á yfirleðri eða uppbyggingu
á skóbotnum. En við erum einnig í því
að gera við leðurjakka, töskur, hatta
og margt fleira. Við segjum oft að ef
enginn annar getur gert við það, þá
endar það hjá skósmiðnum.“
Úr sér gengnir skór verða eins og nýir
Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera
fyrir skó sem virðast vægast sagt
orðnir úr sér gengnir. „Við erum að fá
til okkar skó af ýmsu tagi. Sumir eru
aðeins lúnir og þarf þá rétt að lappa
upp á þá fyrir sérstök tilefni. Aðrir eru
verr farnir og þá þarf að gera meira.
Hvað gönguskó varðar er það
þekkt að eftir ákveðinn fjölda ára
springa sólarnir upp sökum efna-
hvarfs sem á sér stað í millilagi sól-
ans. Þetta lítur rosalega út en í flest-
um tilfellum er vel hægt að gera við
skóna. Einnig er fólk að kaupa góða,
notaða skó á lægra verði, kemur
með þá til okkar og eyðir örlitlu í við-
bót til þess að fá þá eins og nýja. Svo
eiga margir skó af ömmum og öfum
sem þá langar að koma í gagnið aft-
ur. Það er allur gangur á þessu.
Í dag er enginn vandi að finna
ódýra skó sem endast varla út árið
og eru óþægilegir í þokkabót. En
það borgar sig alltaf, fyrir budduna,
umhverfið og heilsuna að fjárfesta í
gæðum þegar kemur að skóm. Góða
skó er hægt að gera við mörgum
sinnum og við fyrstu viðgerð eru
skórnir yfirleitt strax byrjaðir að
borga sig. Skórnir sjálfir endast í
langflestum tilfellum mun lengur en
sólinn, enda er hann slitflöturinn á
skónum og eyðist við hverja notkun.
Ef það er gott í skónum og hugsað
vel um yfirleðrið, þá kemur það fólki
á óvart hversu lengi skórnir endast.
Á mínum tæpum sex ára starfsferli
hef ég oft fengið sama skóparið til
mín í viðgerð oftar en ég get talið á
fingrum annarrar handar.“
Skókassi með öllu tilheyrandi.
Stórsniðug jólagjöf.
Þráinn Skóari er staðsettur að
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Sími: 552-1785
Tölvupóstur: leistiehf@gmail.com
Fylgstu með Þráni Skóara á
Facebook: Þráinn Skóari