Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 46
Bækur og menning 29. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
Óargadýr, jólaball, jólarúningur
og notaleg stemning í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í desember
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn býður upp á fjölda skemmti-legra viðburða í aðdraganda
jólanna sem gaman er að upplifa
saman með fjölskyldunni. Það er
eitthvað um að vera alla daga frá og
með 1. desember og fram að jól-
um. Jólakötturinn mætir að vanda,
einnig verður jólaball, jólakósí og
margt fleira skemmtilegt til þess að
kveikja í litlum og stórum jólahjört-
um. Nánari dagskrá jóladagatalsins
má finna á vef www.mu.is.
Hættulegur jólaköttur hér fyrir
innan.
Í desember verður frítt í garðinn
alla virka daga og er opnunar-
tíminn frá kl. 10-17. Að auki verður
opnunartíminn lengdur fram
til kl. 20:00 miðvikudag-
ana 4., 11. og 18.
desember.
Garðurinn skartar jólaljósum og er
einstaklega skemmtilegt að heim-
sækja hann í rökkrinu.
Jólakötturinn heldur til í kofa í
Fjölskyldugarðinum
„Jólakötturinn hóf að venja komu
sína í Laugardalinn á aðventunni
fyrir nokkrum árum og er 2019
engin undantekning. Fyrsta árið
kom hann starfsfólki garðsins að
óvöru. Þá hrekkti hann dýr og menn
í Fjölskyldu- og húsdýragarðin-
um svo ljóst var að grípa þurfti til
aðgerða. Næturvörður á vakt reisti
í flýti kofa fyrir óargadýrið svo hann
léti af skepnuskapnum. Síðan þá
hefur starfsfólk ekki þorað öðru en
að reisa kofann á hverju ári
svo kisi hafi í einhver hús að
venda í höfuðborgarferðum
sínum. Kofinn hefur nú verið
reistur í sjoppunni í Fjöl-
skyldugarðinum og hugrökk-
um gestum gefst tækifæri
á að heimsækja kisa þar
fram yfir jólin allavega, en
yfirleitt hafa jólasveinarnir náð
að lokka hann aftur til fjalla þegar
þeir týnast heim á ný.“
Umhverfisvænar jólagjafir
„Laugardaginn 7. desember ætlar
Þórdís V. Þorvaldsdóttir að koma til
okkar og kynna fyrir okkur leiðir til
að pakka jólagjöfum inn á umhverfi-
svænan hátt. Garðurinn hefur það
að markmiði að vera til fyrirmyndar
hvað varðar umhverfismál og von-
um að með þessu framtaki smitum
við út frá okkur, því margt smátt
gerir eitt stórt.“
Ull af nýrúnu sauðfé garðsins
Daginn eftir, eða þann 8. desember,
verður sauðfé garðsins rúið. Rúning-
ur hefur verið partur af jóladagskrá
garðsins jafn lengi og elstu menn
muna. Guðmundur Hallgrímsson
mun halda um klippurnar sem fyrr
og með honum í för verður fólk frá
Ullarselinu á Hvanneyri sem spinn-
ur ullina jafnóðum og hún kemur af
fénu fyrir gesti að taka með heim.
Jólaball í skálanum
Sunnudaginn 15. desember verður
Jólaball Fjölskyldu- og húsdýra-
garðsins haldið með pompi og
prakt. „Það var heldur betur kominn
tími til þess að endurvekja jólaball-
ið enda eru nokkur ár síðan það
var haldið síðast. Jólastuðið hefst
í mótttökuhúsinu kl. 12:30 þar sem
jólasveinar taka á móti gestum og
leiða á jólaskemmtunina í skálanum.
Systir þeirra sveina, Skjóða ætlar að
segja krökkunum sögu og svo endar
stuðið með balli í jólaskreyttum
veitingaskálnum.“
Komdu og upplifðu hátíðarró í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
„Það dylst engum að jólaundir-
búningur á það til að einkennast
af stressi og því verða síðustu tveir
dagarnir fyrir jól stresslausir í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum. Hefð-
bundin dagskrá verður í kringum
dýrin og auka púður sett í ítarlega
fræðslu við gjafirnar og jólalegum
fróðleik bætt við þar sem hann á
við. Dýrin taka á engan hátt þátt í
jólastressinu og því upplagt að koma
í garðinn og læra af þeim og núll-
stilla sig áður en jólahátíðin gengur
í garð.“
Nánari upplýsingar má finna á á
heimasíðu garðsins www.mu.is.