Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Side 46
Bækur og menning 29. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ Óargadýr, jólaball, jólarúningur og notaleg stemning í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í desember Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn býður upp á fjölda skemmti-legra viðburða í aðdraganda jólanna sem gaman er að upplifa saman með fjölskyldunni. Það er eitthvað um að vera alla daga frá og með 1. desember og fram að jól- um. Jólakötturinn mætir að vanda, einnig verður jólaball, jólakósí og margt fleira skemmtilegt til þess að kveikja í litlum og stórum jólahjört- um. Nánari dagskrá jóladagatalsins má finna á vef www.mu.is. Hættulegur jólaköttur hér fyrir innan. Í desember verður frítt í garðinn alla virka daga og er opnunar- tíminn frá kl. 10-17. Að auki verður opnunartíminn lengdur fram til kl. 20:00 miðvikudag- ana 4., 11. og 18. desember. Garðurinn skartar jólaljósum og er einstaklega skemmtilegt að heim- sækja hann í rökkrinu. Jólakötturinn heldur til í kofa í Fjölskyldugarðinum „Jólakötturinn hóf að venja komu sína í Laugardalinn á aðventunni fyrir nokkrum árum og er 2019 engin undantekning. Fyrsta árið kom hann starfsfólki garðsins að óvöru. Þá hrekkti hann dýr og menn í Fjölskyldu- og húsdýragarðin- um svo ljóst var að grípa þurfti til aðgerða. Næturvörður á vakt reisti í flýti kofa fyrir óargadýrið svo hann léti af skepnuskapnum. Síðan þá hefur starfsfólk ekki þorað öðru en að reisa kofann á hverju ári svo kisi hafi í einhver hús að venda í höfuðborgarferðum sínum. Kofinn hefur nú verið reistur í sjoppunni í Fjöl- skyldugarðinum og hugrökk- um gestum gefst tækifæri á að heimsækja kisa þar fram yfir jólin allavega, en yfirleitt hafa jólasveinarnir náð að lokka hann aftur til fjalla þegar þeir týnast heim á ný.“ Umhverfisvænar jólagjafir „Laugardaginn 7. desember ætlar Þórdís V. Þorvaldsdóttir að koma til okkar og kynna fyrir okkur leiðir til að pakka jólagjöfum inn á umhverfi- svænan hátt. Garðurinn hefur það að markmiði að vera til fyrirmyndar hvað varðar umhverfismál og von- um að með þessu framtaki smitum við út frá okkur, því margt smátt gerir eitt stórt.“ Ull af nýrúnu sauðfé garðsins Daginn eftir, eða þann 8. desember, verður sauðfé garðsins rúið. Rúning- ur hefur verið partur af jóladagskrá garðsins jafn lengi og elstu menn muna. Guðmundur Hallgrímsson mun halda um klippurnar sem fyrr og með honum í för verður fólk frá Ullarselinu á Hvanneyri sem spinn- ur ullina jafnóðum og hún kemur af fénu fyrir gesti að taka með heim. Jólaball í skálanum Sunnudaginn 15. desember verður Jólaball Fjölskyldu- og húsdýra- garðsins haldið með pompi og prakt. „Það var heldur betur kominn tími til þess að endurvekja jólaball- ið enda eru nokkur ár síðan það var haldið síðast. Jólastuðið hefst í mótttökuhúsinu kl. 12:30 þar sem jólasveinar taka á móti gestum og leiða á jólaskemmtunina í skálanum. Systir þeirra sveina, Skjóða ætlar að segja krökkunum sögu og svo endar stuðið með balli í jólaskreyttum veitingaskálnum.“ Komdu og upplifðu hátíðarró í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum „Það dylst engum að jólaundir- búningur á það til að einkennast af stressi og því verða síðustu tveir dagarnir fyrir jól stresslausir í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum. Hefð- bundin dagskrá verður í kringum dýrin og auka púður sett í ítarlega fræðslu við gjafirnar og jólalegum fróðleik bætt við þar sem hann á við. Dýrin taka á engan hátt þátt í jólastressinu og því upplagt að koma í garðinn og læra af þeim og núll- stilla sig áður en jólahátíðin gengur í garð.“ Nánari upplýsingar má finna á á heimasíðu garðsins www.mu.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.