Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 40
Bækur og menning 29. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ Máttur hjartans er ný bók eftir Guðna Gunnarsson. Guðni er stofnandi og upphafs- maður Rope Yoga og GlóMotion- -hugmyndafræðinnar. Guðni er einn af frumkvöðlum Ís- lands á sviði líkams- og heilsuræktar. Hann hefur starfað við fagið í meira en 40 ár og er m.a. fyrsti lífsráð- gjafinn og einkaþjálfarinn á Íslandi. Máttur hjartans er fjórða bók Guðna en áður skrifaði hann Lífs- ráðgjafann/Heilrækt, Mátt viljans og Mátt athyglinnar. Þitt eigið ljós segir til um hversu mikið þú getur séð fyrir þér „Máttur hjartans er skrifuð vegna þess að ég vil hvetja fólk til að vera krafta- verk í sínu lífi með því að vilja sig, til að velja sig og til að valda eigin tilvist út frá forsendum hjartans. Það er mikilvægt að þú skiljir að hvernig þú sérð þig og upplifir – hvaða viðhorf þú hefur til þín – mótar sýn sem framkallar það sem þú sérð fyrir þér og einmitt þetta verður sá veruleiki sem þú skapar,“ segir Guðni. „Ég vil að þú skiljir hvaða lífsins auðlegð opnast þegar þú tekur ábyrgð á eigin tilvist, verður valfær og eykur eigin heimild til hamingju og þakklætis. Ég vil sjá þig auka heim- ildina og finna þar hugrekki og áræðni til að lifa til fulls, á þínum forsendum; að sjá þig skilja að enginn er eyland og að aðeins með því að þiggja og gefa af þér geturðu þrifist í lífinu og látið þig skína til fulls,“ bætir Guðni við. „Við komum okkur þangað sem við erum – með miklum tilkostnaði. Við höfum varið allri ævinni í að verða svona, núna, eins og við erum. Hvers vegna erum við þá að hafna því? Við þessu eru mörg svör og þau opinberast í bókinni, en núna, einmitt núna þegar þú lest þessi orð vil ég biðja þig um að meðtaka eftirfarandi orð með hjartanu, með skilningi dýpst úr hjartanu: Þú getur ekki farið fyrr en þú ert kominn. Vilji er verknaður, ekki löngun, þrá, ætlun eða von. Mátt- ugur er mættur maður sem hefur fyrirgefið sér og vill sig umbúðalaust. Þetta er fyrsti lykillinn og sá mikil- vægasti einmitt núna þegar lestur bókarinnar er fram undan. Þú getur ekki farið fyrr en þú ert kominn og ef þú ert ekki að framkvæma þá ertu ekki að vilja og valda þeim breytingum sem þú segist vilja. Þetta þýðir einfaldlega að þín viðhorf í eigin garð byrja ekki að breytast fyrr en þú viðurkennir og elskar það hver þú ert, hvernig þú ert og hvar þú ert,“ segir Guðni. Upphafið að hugmyndinni Sjáðu fyrir þér. Þannig byrjaði þetta allt saman, fyrir mörgum árum, þegar Guðni hélt námskeið með þessari yfirskrift þar sem áhersla var lögð á sjónsköpun í eigin lífi. „Sjáðu fyrir þér,“ sagði Guðni í mikilvægum orðaleik, „því ef þú getur ekki séð fyrir þér þá geturðu ekki séð fyrir þér.“ Um svipað leyti barst honum tölvupóstur frá Þor- valdi heitnum Þorsteinssyni þar sem hann benti honum á að Sjáðu fyrir þér væri vissulega góð yfirskrift á nám- skeiði en væri þó enn betri bókartitill. „Frá þeim degi spíraði fræið sem nú er orðið að bók, úr þessum sak- leysislega pósti frá kærum vini mínum, og þér að segja tendrast hjarta mitt við minninguna um þessi samskipti, eins og svo margt í tengslum við þennan fallna meistara orðs og hugs- unar,“ bætir Guðni við að lokum. Máttur hjartans fæst í öllum helstu bókabúðum. Einnig er hún til sölu á heimasíðu Rope Yoga Setursins www.rys.is MÁTTUR HJARTANS: Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar Ef þú sérð fyrir þér – þá geturðu séð fyrir þér. Við búum yfir ljósi sem jafnast á við sólina. Samt kjósum við að skammta okkur ljósmagn og ljóma inn í lífið. Þegar við erum í heilindum og lítum út úr einlægu hjarta – í gegnum þriðja augað með innsæi – þá höfum við getu til að skapa á leifturhraða allt sem við erum tilbúin að heimila, þiggja, upplifa. Ertu að dreifa ljósinu – eða ertu beina ljósinu í þá átt sem þú vilt? Ertu viljandi og valfær skapari – eða óviljandi, óvalfært slys? Ertu dimmir – eða ertu birtir?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.