Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 26
26 FÓKUS - VIÐTAL 29. nóvember
Á
aðeins sex árum hefur Sig-
rún Guðjónsdóttir byggt
upp alþjóðlegt ráðgjafar-
fyrirtæki sem veltir 250
milljónum króna á ári og vex 30 til
50 prósent á hverju ári. Viðskipta-
vinir hennar eru nú yfir 2.000
talsins og hún hefur aðstoðað
konur á öllum aldri og frá öllum
heimshornum við að byggja fyrir-
tæki upp frá engu og upp í hund-
ruð milljóna króna í tekjur.
Í stjórn fyrirtækis 33 ára
Sigrún er í dag búsett í Zurich
í Sviss ásamt eiginmanni sín-
um og tveimur stjúpsonum, en
hún er upphaflega menntuð sem
arkitekt, frá Tækniháskólanum í
Karlsruhe í Þýskalandi. Þetta var
um miðbik tíunda áratugarins,
snemma á dögum internetsins og
eftir að Sigrún kynntist netinu þá
varð ekki aftur snúið. Hún lauk í
kjölfarið námi í upplýsingaarki-
tektúr við Tækniháskólann í
Zurich í Sviss. Í kjölfarið hóf hún
störf sem upplýsingaarkitekt og
síðar deildarstjóri hjá Landmat,
sem sérhæfði sig í viðskiptalegri
hagnýtingu landupplýsinga. Sig-
rún hóf nám með vinnu í tölv-
unarfræði eftir að hafa tekið þátt
í FrumkvöðlaAuði þar sem hún
lærði að gera viðskiptaáætlanir.
Þaðan lá leiðin í stjórn-
endastörf hjá upplýsingatækni-
fyrirtækjum á Íslandi, fyrst hjá
veffyrirtækinu Innn þar sem hún
sneri á skömmum tíma sjö ára
taprekstri yfir í hagnað. Eftir þá
reynslu tók hún við stjórn Tækni-
vals aðeins 33 ára gömul uns það
var selt 15 mánuðum síðar. Eft-
ir það tók við frekari uppbygging
á Innn, uns fyrirtækið var selt til
365 árið 2007 og síðar sama ár til
Kögunar, sem sameinaði það vef-
fyrirtækinu Eskil. Eftir samein-
ingu Eskils og Innn lá leið Sigrún-
ar til London til að klára Executive
MBA-nám sem hún hafði stund-
að með vinnu.
Vildi geta unnið hvar sem er
Sigrún útskrifaðist með EMBA
árið 2008 og flutti í kjölfarið til
Sviss þar sem hún tók við fram-
kvæmdastjórastöðu hjá sviss-
nesku lækningatæknifyrirtæki.
Hún þurfti að hætta í því starfi
vegna stoðverkja og var hún
óvinnufær í sjö mánuði vegna
verkja. Eftir það tók hún við sem
framkvæmdastjóri íslenska fyr-
irtækisins InfoMentor í Sviss. Ári
síðar lagði hún til að fyrirtæk-
ið réði frekar framkvæmdastjóra
í Þýskalandi til að spara kostnað
og lét þá af störfum.
„Þarna var ég búin að missa
vinnuna tvisvar, á tveimur árum,
og var orðin veik,“ segir Sigrún.
Hún skráði sig á atvinnuleysis-
bætur en það var ekki auðvelt
fyrir hana að finna hentugt starf
með sértæka menntun og mikla
reynslu af stjórnunarstörfum.
Sigrún segist hafa séð þetta sem
skilaboð frá alheiminum: nú væri
kominn tími til að stofna eigið
fyrirtæki.
„Ég vissi bara ekki hvernig fyrir-
tæki. Ég var byrjuð að fá áhuga
á fyrirtækjarekstri á netinu. Mig
langaði að geta unnið hvar sem er
í heiminum, hafa tíma til að sinna
heilsunni, ferðast og njóta lífsins.“
Á þessum tíma bauðst Sig-
rúnu að sækja námskeið á vegum
Vinnumálastofnunar í Sviss, þar
sem þátttakendur lærðu að stofna
eigið fyritæki. „Ég lagði fram hug-
mynd, um að vera með versl-
un á netinu (online shop). Mig
langaði að selja íslenskar vörur.
Ég heimsótti fyrirtæki á Íslandi,
talaði við hönnuði og reyndi að
finna út hvernig þetta virkaði
allt saman, en fljótlega runnu á
mig tvær grímur. Kostnaðurinn
við að senda vörur var mjög hár.
Þannig að ég hugsaði með mér að
kannski væri þetta ekki það sem
ég vildi. Ég var ennþá að leita að
hugmynd.“
Á þessum tíma las Sigrún bók-
ina Alkemistinn. Sagan fræga
fjallar um pilt sem ferðast heims-
horna á milli í leit að fjársjóði.
Hann finnur ekki fjársjóðinn en
þegar hann kemur heim kemst
hann að því að fjársjóðurinn er í
bakgarðinum, innra með honum
sjálfum.
„Þarna fann ég minn fjársjóð.
Mig langaði að verða viðskipta-
ráðgjafi, það sem ég kunni best.
Ég byrjaði sem hefðbundinn við-
skiptaráðgjafi en uppgötvaði fljót-
lega að það hentaði mér ekki að
veita ráðgjöf sem fyritæki til fyrir-
tækis, heldur vildi ég bjóða upp á
„online business con sulting“, ráð-
gjöf til einstaklinga við að byggja
upp þekkingarfyrirtæki á netinu.
Og einblína á konur. Á þessum
tíma var ég mjög virk í Facebook-
hópum og ég var alltaf að hjálpa
fólki, en ekki til að selja heldur til
að byggja upp traust. Ég hafði til
dæmis boðið upp á frítt námskeið
þar sem ég kenndi fólki hvern-
ig á að finna viðskiptahugmynd.
Vegna þess að síðan kemur fólk
og finnur þig. Fólk fer að „tagga
þig“ og benda öðrum á þig. Fyrstu
viðskiptavinirnir mínir komu úr
þessum Facebook-hópum. Fólk
sem hafði séð mig hjálpa og vildi
meiri hjálp. Málið er nefnilega
að fólk vill borga. Ef þú ert bara
á höttunum eftir einhverju fríu
þá gerirðu yfirleitt ekki neitt við
upplýsingarnar. Ókeypis upplýs-
ingar eru góðar til að fá innsæi
og hugmyndir en yfirleitt gerirðu
ekki neitt fyrr en þú ert búinn að
borga, fjárfesta í sjálfum þér.“
Sigrún segir það hafa verið
stórt skref að markaðssetja sjálfa
sig á þennan hátt. „Þegar þú
ferð að vinna fyrir sjálfan þig þá
koma upp alls konar furðulegar
tilfinningar. Þú ert berskjaldað-
ur að vissu leyti. Það tók mig tvo
mánuði, bara að setja inn á síð-
una mína: „1 klst viðskiptaráð-
gjöf: 180 dollarar“. 25. mars 2014
kaupir fyrsta konan tíma hjá mér.“
Sigrún byrjaði því á að vera
ráðgjafi fyrir einstaklinga en það
var þó alltaf stefnan að bjóða upp
á námskeið á netinu. Hún tekur
undir að vissulega sé nauðsyn-
legt að byrja smátt. „Ef þú get-
ur ekki selt einni manneskju, þá
Ég er að gera
þetta fyrir kon-
urnar þarna úti
Atvinnulaus
árið 2012 en
veltir nú
milljónum
Byrjaði smátt og er í dag með þúsundir viðskiptavina – Veikindin voru
blessun í dulargervi – Vill hjálpa konum að láta drauma sína rætast