Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 48
48 29. nóvember
SAKAMÁL
K
völdið á heimili Breanne
Autry, í Hyman í Utah-fylki
í Bandaríkjunum, var öðr-
um kvöldum líkt þann 24.
júní, 2000. Breanne tók á sig náð-
ir klukkan hálf þrjú um nóttina, en
fimmtán ára systir hennar, Trisha,
hékk enn yfir tölvunni. Næsti
morgun gat þó ekki talist venju-
legur því klukkan sex sást hvorki
tangur né tetur af Trishu.
Reyndar brá öllum íbúum smá-
bæjarins í brún, því alla tíð höfðu
þeir talið Hyman öruggt og vand-
ræðalaust vé. Allir þekktu alla og
gátu borið öllum gott vitni. Lög-
reglan hóf þegar í stað rannsókn.
Lítill, rauður bíll
Þegar rætt var við nágranna kom
í ljós að í vikunni áður höfðu þeir
sumir hverjir séð lítinn, rauðan
bíl sem ekið var ítrekað fram-
hjá heimili Autry-fjölskyldunnar.
Einnig hafði Trisha sést stíga út úr
litlum, rauðum bíl nokkrum dög-
um áður en hún hvarf.
Sama dag og Trisha hvarf sá af-
greiðslumaður í Welcome Mart-
verslun, í nokkurra kílómetra
fjarlægð frá Hyman, stúlku sem
svipaði til lýsingar af Trishu, í
versluninni.
Að hans sögn stóð hún við
gluggann, líkt og hún biði eftir
einhverjum. Afgreiðslumaðurinn
hafði spurt hana hvort allt væri
í lagi og hún kvað já við og fór án
þess að kaupa nokkuð.
Öskur í morgunsárið
Þetta þótti hin mesta ráðgáta og
næstu daga bárust frásagnir af því
að Trisha hefði mögulega sést hér
og hvar í Utah og voru þær kann-
aðar í þaula.
Foreldrar Trishu sögðu að ólík-
legt væri að ókunnug manneskja
hefði getað farið inn á heimilið og
haft hana á brott með sér án þess
að vekja athygli. Ekki var að sjá að
brotist hefði verið inn á heimilið
og því klóruðu menn sér í hausn-
um.
Eldri hjón töldu sig hafa heyrt
öskur rétt fyrir dögun og eitt vitni
sagðist hafa heyrt vein sem bár-
ust frá rauðum bíl sem hafði verið
ekið hjá árla þennan morgun.
Tíminn leið og ekkert spurðist
til Trishu og voru foreldrar henn-
ar orðnir úrkula vonar um að þeir
sæju hana aftur á lífi.
Skafin bein
Sá ótti reyndist ekki ástæðu-
laus því ellefu mánuðum eftir að
Trisha hvarf fundu leitarhundar
lögreglu sundurhlutað lík henn-
ar í í tveimur djúpum gryfjum í
Millville, skammt frá rannsóknar-
stöð vegna sléttuúlfa.
Beinin báru með sér óhugnan-
legan vitnisburð; skurði og för eft-
ir hníf, öxi og járnsög. Talið var
öruggt að allt hold hefði verið fjár-
lægt áður en líkið var sundurhlut-
að.
Í annarri gryfjunni fann lög-
reglan eitthvað af fatnaði Trishu
og neðra kjálkabein, nánast heilt
og skafið hreint.
Shannon Novak, sérfræðingur
sem kannað hafði sögu mannáts í
Bandaríkjunum, sagði að líkams-
leifarnar bæru öll merki þess að
hafa verið bútuð niður í „meðfæri-
legri bita.“
Rafrænn póstur og spjallþráður
Hvað sem öllum þeim vangavelt-
um leið þá var tölva Trishu tekin til
gaumgæfilegrar skoðunar. Í henni
var að finna nokkur netföng og
samskipti sem átt höfðu sér stað á
spjallþráðum.
Greinilegt var að Trisha hafði
eytt slatta af rafrænum pósti
daginn áður en hún hvarf, en lög-
reglu tókst þó að finna eitthvað af
honum aftur. Sá póstur innihélt
nokkrar skuggalegar orðsendingar
frá Cody Lynn Nielsen, 28 ára karl-
manni sem bjó ekki langt frá.
Um Cody þennan var margt
hægt að segja, fæst fallegt. Hann
átti fjögur börn með tveimur kon-
um og höfðu bæði hjónaböndin
endað með skilnaði.
Á sakaskrá hans var að finna
nokkrar nauðganir og ákærur
vegna tilrauna til slíks og fórnar-
lömbin höfðu öll verið ungar
stúlkur.
Kynferðislegt skrímsli
Móðir fimmtán ára vinkonu
Trishu sagði að Cody hefði nauðg-
að dótturinni í baksæti bifreiðar
hans. Stúlkan sjálf sagði að Cody
hefði byrjað að ofsækja Trishu 10.
júní, árið 2000, og hún hefði ótt-
ast hann. Hún sagði að Cody hefði
meira að segja gefið Trishu síma-
númer sitt og að hún hefði varað
Trishu við; Cody væri kynferðis-
legt skrímsli.
Nú fór ýmislegt að gerast. Vitni
hafði samband við lögreglu og
sagðist hafa séð, skömmu eftir
hvarf Trishu, Cody grafandi gryfj-
ur fyrir aftan rannsóknarstöðina í
Millville. Á þeim tíma hafði Cody
séð um viðhald í rannsóknarstöð-
inni.
Cody Lynn Nielsen var hand-
tekinn. Hann játaði sig sekan um
morðið á henni og var gert að sæta
varðhaldi þar til réttað yrði yfir
honum.
Ljósi varpað á atburðarás
Réttarhöldin hófust meira en
tveimur árum síðar og innihéldu
ákæruatriðin morð að yfirlögðu
ráði, mannrán og vanhelgun á
líki.
Kjaftaskúmur í fangelsinu þar
sem Cody var í haldi gat varpað
HRYLLINGUR Í HYMAN
n Hvarf Trishu var mikil ráðgáta n Líkamsleifarnar fundust eftir ellefu mánuði n Hlutuð niður í „meðfærilega bita“„Í annarri
gryfjunni
fann lögreglan
eitthvað af
fatnaði Trishu
og neðra kjálka-
bein, nánast
heilt og skafið
hreint.
Trisha Autry Hvarf spor-
laust snemma morguns.