Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 21
29. nóvember FRÉTTIR 21
HVAÐ KOSTA JÓLIN?
Jólin kosta 234.000–278.000 krónur.
Þessi kostnaður er töluverður, ef öll útgjöldin falla á
sama mánuðinn. En svona eru jólin, ekki satt?
Í dag er orðið nokkuð algengt að gamla góða
greni tréð hafi vikið fyrir sígrænu gervijólatré.
Meðalfjölskyldan okkar hefur ekki farið þá leið,
enda kann hún vel við jólalegu grenilyktina sem
fylgir ekta jólatré.
Fjölskyldan okkar fékk sér meðalstórt jólatré og
borgaði fyrir það 7.000 krónur.
*Hér hefði fjölskyldan mögulega getað sparað
sér pening með því að kaupa gervijólatré. Jafn-
vel þótt sparnaðurinn væri lítill fyrstu jólinn þá
myndi upphaflegur kostnaður borga sig til baka
á þeim fjölda ára sem hægt væri að brúka sama
tréð.
Enginn vill fara í jólaköttinn,
svo fjölskyldan fær öll ný föt fyr-
ir jólin. Fjölskyldan miðar við
10 þúsund krónur í föt á börnin
og 20 þúsund í föt á fullorðna
fólkið.
Heildarkostnaður: 60.000 krónur.
*Nú eru komnir markaðir
á borð við Extraloppuna og
Barnaloppuna þar sem hægt
er að kaupa notuð föt á hag-
kvæmu verði. Oft sér varla á
þessum fatnaði og því þarf eng-
um að finnast miður að kaupa
notuð jólaföt, enda er það bæði
hagkvæmt og umhverfisvænt.
Og varla þarf að nefna að það
er engin heilög skylda að kaupa
ný föt fyrir jólin. Þeir sem óttast
jólaköttinn geta keypt sér nýtt
sokkapar og svo hringt stoltir
inn jólin í þeim fötum sem þeim
líður best í.
Meðalfjölskyldan okkar er ein af þeim sem komast ekki í gegnum
hátíðarnar án þess að kaupa smávegis af nýju glingri, enda breytist
jólaskrauttískan á milli ára. Hins vegar kaupa þau ekki allt nýtt og
endurnýta skraut frá fyrri árum. Þetta árið sjá þau fram á að þurfa
að endurnýja jólakúlur á jólatréð þar sem jólakötturinn á heimil-
inu olli töluverðri rýrnun á síðasta ári, en auk þess þurfti að kaupa
nýjar seríur í IKEA þar sem nokkrar seríur höfðu gefið upp öndina
á milli ára, auk þess sem að annað foreldrið á heimilinu tók ekki í
mál að seríurnar væru ekki allar í stíl, sem hitt foreldrið samþykkti
með miklum fögnuði til að þurfa ekki að glíma við hina ógurlegur
seríusnúruflækju, líkt hefur fallið í hlut þess síðustu árin.
Heildarkostnaður: 6.000 krónur.
*Fréttablaðið, ónýtar bækur, gamlar teikningar sem þú gerðir
í skóla og foreldrar þínir hafa „skilað“ þér til baka 30 árum síðar,
geta fengið nýtt líf sem jólapappír. Þetta má svo binda saman með
fallegu snæri.
Meðalfjölskyldan fór öll í klippingu fyrir jólin og annað foreldrið
lét setja strípur í rót. Kostnaður vegna þess á hárgreiðslustofu með
miðlungs verðlagi, fór í 30 þúsund krónur fyrir þau öll fjögur.
*Hér hefði fjölskyldan mátt eiga notalega stund við sjónvarpið
og klippt hvert annað í leiðinni. Afraksturinn hefði líklega verið
grátbroslegur, sem hefði veitt gott tækifæri til að taka skemmtilega
fjölskyldumynd á símana og senda út sem jólakveðju. DV mælir
gegn því að börn yngri en 10 ára fái að vera eftirlitslaus í kringum
hár og skæri. Síðan er að sjálfsögðu engin skylda að fara í klipp-
ingu fyrir jólin. Jafnvel ágætt að leyfa hárinu að vaxa til að halda
hita á kollinum yfir köldustu mánuði ársins.
Meðalfjölskyldan á og rekur
einn bíl. Í kringum jólin
aukast ferðir á einkabílnum
töluvert. Það þarf að keyra á
milli búða, keyra á milli ætt-
ingja, keyra gjafir á milli, aka á
milli jólaboða og þvíumlíkt.
Aukinn eldsneytiskostnað-
ur fjölskyldunnar í desem-
ber nemur um hálfum tanki,
eða 7.000 krónum á litla bens-
índrifna fólksbílnum hennar.
*Hér er áberandi hægt að
spara með því að hjóla, ganga
eða nýta sér almenningssam-
göngur.
JÓLAFÖT
JÓLATRÉ
JÓLAKLIPPING
JÓLASKRAUT OG PAPPÍR
JÓLAELDSNEYTI
NIÐURSTAÐA: