Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 62
62 29. nóvemberSTJÖRNUSPÁ
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 1.–7. desember
Ekki loka þig inni og giftast vinnunni
þinni. Það er mjög mikilvægt að þú farir
út á meðal fólks í desember – mætir í
vinnustaðapartí og blandir geði við aðra.
Þú ert nefnilega rosalega fær í því sem
þú vinnur við. Það eina sem vantar er
félagsskapur og traustir félagar þegar þú
þarft á hjálp að halda við að leysa erfið
verkefni. Það er ekki skömm að leita sér
aðstoðar.
Þú hefur farið með veggjum undanfarið,
en alls ekkert á neikvæðan hátt. Þú ert
bara ekki í skapi fyrir fólk og það er allt í
lagi. Nú er aðventan byrjuð og þá kviknar
á jólaperunum í hausnum á þér og þig
langar að láta bera meira á þér. Þú lendir
í einhverju stórkostlegu ævintýri í lok
vikunnar sem gerir lífið aðeins skemmti-
legra.
Hvað er í gangi hjá tvíburanum? Það
er annaðhvort eða þessa dagana, eins
og tvíburans er von og vísa. Eftir mikið
„þurrkatímabil“ falla vonbiðlar að fótum
einhleypra tvíbura. Þú skalt samt vara
þig á því. Það er stundum gott að eiga
tímabil með sjálfum sér – án allra ástar-
tilfinninga og ábyrgðar. Þú skalt reyna að
njóta þess í botn.
Þú ert svo mikið jólabarn og þú getur
ekki beðið eftir að eyða aðventunni í
jólastuði og gleði. Þú ert auðvitað búin/n
að skipuleggja hvaða jólamyndir þú ætlar
að horfa á, hvernig þú ætlar að skreyta og
hvaða sortir þú ætlar að baka. Svo ferðu
bara alla leið í jólabrjálæðið. Það góða
við þig, elsku krabbi, er að þú missir samt
aldrei sjónar á því hvað er mikilvægast í
lífinu og um jólin – kærleikurinn.
Þú dettur í gírinn þar sem þú setur þig í
fyrsta sæti. Þú tekur þér nokkra verð-
skuldaða frídaga fyrir sjálfa/n þig, ferð í
ræktina eða gerir æfingar heima í stofu,
ferð í klippingu, jafnvel dekur og leyfir þér
aðeins að vera þú sjálf/ur. Þetta er yndis-
legur tími og þú mátt ekki fá samviskubit
yfir þínum nánustu – þeir lifa alveg af
þótt þú hugsir meira um þig sjálfa/n.
Þú hefur verið að reyna að sannfæra
sjálfa/n þig um hvað eigi að gera varð-
andi tiltekið mál. Þú veist samt innst inni
hvað þarf að gera. Það þarf að taka erfiða
ákvörðun sem hefur áhrif á allt líf þitt og
fjölskyldu. Stundum er sannleikurinn sár
og stundum þarf að sleppa til að fólk geti
blómstrað. Hafðu það hugfast og ekki fá
samviskubit.
Fjölskyldulífið blómstrar hreinlega hjá
voginni. Þú ert í miklum skreytingargír
og vilt koma heimilinu þínu í fallegt lag
fyrir jólin. Það er svo margt að bærast
um í huga þér og stundum færðu of
margar hugmyndir um hvernig þú getur
fegrað þitt nærumhverfi. Þá er best að
anda djúpt, velja það sem er mikilvægast
og takast á við það svo þér fallist ekki
hendur.
Þú ferð á einhvern stórskemmtilegan
viðburð í vikunni og þar kynnist þú
manneskju sem virðist við fyrstu sýn vera
eins og sálufélagi þinn. Þú skalt samt
fara varlega í að treysta fólki frá fyrstu
stundu – það getur stundum endað
illa. Og hugsanlega er þessi manneskja
ekki öll sem hún sýnist, þótt hún meini
kannski vel.
Ástin er allsráðandi hjá bogmannin-
um. Þú ert nýbúin/n að losa þig við
manneskju úr þínu lífi sem var ekki að
gefa þér það sem þú þarft. Bráðum
kynnist þú annarri manneskju sem veitir
þér ofboðslega mikla lífsfyllingu og þú
kynnist ást sem þú hélst að væri bara til
í bíómyndum. Í stuttu máli – næstu vikur
verða stórkostlegar!
Það er rosalega mikill hávaði í kringum
þig, þótt þú hækkir sjaldnast rödd þína.
Þú heldur þínu jafnaðargeði í lífsins ólgu-
sjó og nærð að taka við alls kyns vanda-
málum frá fólki án þess að taka þau inn á
þig. Þetta er hæfileiki sem margir öfunda
þig af. Þú ert sterkur einstaklingur sem er
ekki hægt að brjóta.
Þú þarft aðeins að slaka á neikvæðninni.
Þú ættir bara að setja á þig rósrauðu gler-
augun og sjá heiminn í nýju ljósi í staðinn
fyrir að vera síröflandi. Jólin reynast þér
oft erfið og þú sérð allt sem gæti farið
úrskeiðis eða einblínir á allan peninginn
sem þú átt ekki. Hættu því strax í dag og
finndu möguleika sem henta þér.
Einhleypir fiskar eru afar kærulausir í
ástamálunum og kannski tími til kominn
til að sleppa sér aðeins. Þú tekur deitlífið
alla leið og gefur alls kyns fólki séns á
Tinder eða í raunheimi, sem þú hefðir
annars horft framhjá. Viti menn – þetta
leiðir til góðs en mundu að þetta tímabil
er tímabundið. Þú vilt ekki vera kærulaus
að eilífu.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
n 1. desember Sigurður Ragnar Eyjólfsson knattspyrnuþjálfari, 46 ára
n 2. desember Logi Bergmann sjónvarpsstjarna, 53 ára
n 2. desember Júlíus Kemp kvikmyndagerðarmaður, 52 ára
n 3. desember Kristján Hjálmarsson gleðigjafi, 44 ára
n 5. desember Kjartan Magnússon stjórnmálamaður, 52 ára
n 6. desember Hildur Yeoman fatahönnuður, 36 ára
n 7. desember Tobba Marinós athafnakona, 35 ára
Lesið í tarot Helga Seljan
Ástir tveggja rithöfunda
– Svona eiga þau saman
S
igríður Hagalín Björnsdóttir, fjölmiðlakona og rithöf-
undur, og Jón Kalman Stefánsson rithöfundur hnutu
nýverið um hvort annað og ástin blómstrar sem aldrei
fyrr. Því fannst DV tilvalið að spá í stjörnumerkin til að
sjá hvernig þetta fjölhæfa par á saman.
Sigríður er vatnsberi en Jón er bogmaður – þar mætast
loft og eldur. Gildi vatnsberans og gáfur bogmannsins gera
þessa blöndu afar einstaka þegar kemur að ástarsambandi.
Sigríður og Jón eru bæði kappsmikil og getur það stundum
valdið spennu á milli þeirra en að sama skapi verður þetta
samband aldrei leiðinlegt eða óspennandi.
Undir rómantíkinni er traust vinátta. Þau geta vel átt sam-
skipti hvort við annað, sem er lykillinn að farsælu sambandi
og getur oft komið í veg fyrir stórslys á ástarsviðinu.
Þau dást að hvort öðru og njóta lífsins saman. Bogmaður-
inn laðast að hugsjón og sköpun vatnsberans á meðan vatns-
berinn dáist að innsæi bogmannsins. Bæði merkin þurfa sitt
sjálfstæði og virða það. Svo lengi sem þau tapa ekki sam-
skiptalistinni mun þetta samband verða langt, traust, gjöfult
og umfram allt – stútfullt af skemmtilegheitum. n
Sigríður
Fædd: 11. febrúar 1974
Vatnsberi
n frumleg
n vinnusöm
n sjálfstæð
n mannvinur
n á erfitt með að tjá
tilfinningar
n fjarlæg
Jón
Fæddur: 17. desember
1963
Bogmaður
n gjafmildur
n húmoristi
n bjartsýnn
n æruverðugur
n lofar upp í ermina á sér
n óþolinmóður
Landar vinnu á virtum, erlendum miðli
F
jölmiðlamaðurinn Helgi
Seljan kom sem storm-
sveipur inn í blaðamennsk-
una eftir stutta fjarveru og
setti þjóðfélagið á annan end-
ann með uppljóstrunum Kveiks
í Samherjamálinu. En hvað ber
framtíðin í skauti sér hjá Helga?
DV ákvað að leggja fyrir hann
tarot en lesendur eru minntir
á að þeir geta sjálfir dregið sér
tarotspil á vef DV.
Einstaklega vel gefinn
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá
Helga er Sverðkonungur. Það
táknar persónuleika Helga, sem
hefur marga fjöruna sopið. Hann
er einstaklega vel gefinn og vel
upp alinn, þótt hann hafi, eins og
flestir, misstigið sig í gegnum tíð-
ina. Helgi er mjög uppfinninga-
samur og nýjungagjarn. Hann er
sjálfstæður en þolir illa gagnrýni
– hún sest á sálina. En vegna af-
burðagáfna og sköpunargáfu er
Helgi mjög valdamikill maður og
það skal aldrei vanmeta. Hann
er metnaðargjarn og lætur ekki
kaupa sig hingað eða þangað.
Þetta eru miklir umbrotatím-
ar hjá fjölmiðlamanninum því
þótt hann sé hreykinn af því verki
sem hefur verið unnið hjá RÚV
þá þreytist sálin við mótlætið frá
áhrifamönnum í samfélaginu.
Tilfinningaleg ringulreið
Næst er það Tunglið. Í raun hef-
ur Helgi það á tilfinningunni að
hann ráði ekki við eftirköst Sam-
herjamálsins. Það er fjarri sanni.
Hann má ekki detta ofan í von-
leysi heldur
verður
að standa í lappirnar. Tilfinningar
hans eru í einni ringulreið og
hann gæti fundið fyrir einmana-
leika í kjölfar þessarar miklu
vinnu. Einkalífið hefur setið á
hakanum og hann þarf að opna
hjarta sitt á ný fyrir ást og ham-
ingju, þótt vinnan einkennist af
dimmu og drunga. Helgi verður
að varast að láta innra ójafnvægi
og svartsýni villa honum sýn,
bæði í leik og starfi. Hann þarf að
opna augun, horfa í kringum sig
og sjá fegurðina í litlu hlutunum
því framtíðin er björt.
Ný vinna
Loks er það spilið Breytingar.
Samherjakaflinn er brátt á enda
og nýr kafli við að hefjast. Um-
talsverðar breytingar verða á
högum Helga fyrr en síðar og
eru þetta breytingar til batnaðar.
Blaðamennskan togar í hann þótt
hann vilji stundum henda henni
út um gluggann. Hann fær nýtt
og spennandi tækifæri í þessum
bransa vegna uppljóstrana um
Samherja. Við vinnslu þess máls
hefur hann vakið heimsathygli
og komið upp góðum
samböndum og því
verður þessi nýja
vinna sem hon-
um býðst erlendis.
Um er að ræða stór-
an og virtan miðil sem
þekktur er úti um heim
allan. Hann hoppar á tæki-
færið eftir ígrunduð sam-
töl við fjölskylduna. Nú verð-
ur ekki aftur snúið. Helgi gefur
fortíðina upp á bátinn og tekur
framtíðinni opnum örmum. n