Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Blaðsíða 22
22 29. nóvemberFRÉTTIR 2 3 4 10 9 8 7 65 1 Hann er maður margra hatta Andrés Ingi er fæddur 16. ágúst árið 1979 og fagnaði þar af leiðandi stórafmæli þetta árið. Hann ólst upp á sveitabæ í Ölfusinu þar sem fjölskylda hans rak gistiheimili, og gekk í skóla í Hveragerði og á Selfossi. Hann stundaði síðar nám í þýsku og heim- speki í Berlín 2004–2006 og lauk M.A.-prófi í stjórnmálafræði í Háskólanum í Sussex ári síðar. Í gegnum árin hefur hann starfað sem aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, að- stoðarmaður umhverfis- og auðlindaráð- herra, blaðamaður og nefndarritari hjá stjórnlagaráði. Þar að auki hefur hann starfað á geðdeildum Landspítala og unnið ýmis verkefni fyrir landsnefnd UNICEF á Íslandi. Hann var í frímerkjaklúbbi Á yngri árum var Andrés Ingi mikill frí- merkjasafnari og tilheyrði sérstökum klúbbi tímaritsins Æskunnar. Nöfn með- lima birtust í blaðinu og gátu safnarar skrifað hver öðrum og skipst á merkjum við hver annan. Nöfnin voru einnig send á Frímerkjasölu Póstmálastofnunar svo hægt var að hafa auga á nýjum merkjum. Hann styður jafnrétti Andrés hefur verið mjög virkur í jafn- réttismálum og hefur barist gegn því að svonefndir karlaklúbbar séu allsráðandi. Þingmaðurinn sat í stjórn Kvenréttindafé- lags Íslands á árunum 2009 til 2013 og varð þar með fyrsti karlmaðurinn til að sitja í stjórn félagsins. Þetta kemur honum rak- leiðis í góðu bækurnar. Hann hugar að umhverfinu „Frá því að ég settist á þing hef ég fjór- tán sinnum þurft að fara í vinnuferðir til útlanda. Vegna þessara ferða ber ég ábyrgð á losun um 6 tonna af koltvíoxíði út í and- rúmsloftið. Þá fékk ég Votlendissjóðinn til að kolefnisjafna þessi ferðalög,“ skrifar Andrés Ingi á Facebook-síðu sína, Andrés Ingi á þingi. Já, nafnið á Facebook-síðunni hans rímar. Hann er bara það mikill topp- maður. Að hans sögn eru loftslagsbreytingar stærsta áskorun samtímans gagnvart manninum og kalla á átak allra í þágu komandi kynslóða. „Baráttan gegn lofts- lagshamförum virðist stundum ógnar- flókið viðfangsefni. Flest markmiðin eru hins vegar ofureinföld, þótt leiðin að þeim kunni að vera vandrötuð,“ sagði Andrés. Hann er ódýr í rekstri Andrés hefur sagt umræðuna um starfskostnað þingmanna vera af hinu góða. Í samhengi kolefnisjöfnunar og ferðalaga stuðlar þingmaðurinn að sem minnstum ferðakostnaði, eins og liggur fyrir. Á útgefnum tölum um laun og aðr- ar kostnaðargreiðslur til alþingismanna fer ekki á milli mála að Andrés Ingi sé með þeim ódýrari. Fyrir árið 2017 var endurgreiddur kostn- aður Andrésar 292.297 krónur og hefur það lítið breyst á liðnum árum. Andrés eyðir til að mynda litlu í flugferðir og námu ferð- ir með leigubílum á árinu 2019 ekki nema rúmlega níu þúsund krónum og fór sam- bærileg upphæð í slíkan ferðamáta árið áður. Til samanburðar hlaut Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, hátt í fimm milljónir í aksturspeninga á mánuði. Hann hugar að heilsu Andrés lagði fram þingsályktunartillögu sem að hans sögn gæti fækkað óvæntum og hættulegum hjartaáföllum. „Ef fólk fær hjartaáfall ungt verði nánustu ættingjum þess boðin skoðun til að greina hvort þeir séu í áhættuhópi. Með því að greina sjúk- dóminn snemma er oft hægt með einföld- um aðferðum að komast hjá því að hann valdi óvæntu hjartaáfalli síðar meir,“ sagði Andrés um umrædda tillögu og tók fram að árlega fái um fjörutíu manns sitt fyrsta hjartaáfall fyrir fimmtíu ára aldurinn, þarf af um sjö undir fertugu. „Hjartaáföll hjá yngra fólki má oft rekja til arfgengra sjúkdóma, þar sem arfgeng blóðfituhækkun er algengust. Slíka hækk- un er auðvelt að greina og meðhöndla,“ sagði hann. Hann styður snöggskilnað Í vetur spurði Andrés dómsmálaráðherra út í lögskilnaði. Þetta gerði hann í kjölfar frétta af þolendum ofbeldis sem reyndist erfitt að losna úr hjónabandi við gerand- ann. Andrés segir vera fulla ástæðu til að endurskoða hjúskaparlög og líta þá til for- dæma í löggjöf hinna Norðurlandanna. „Mér þykir við fyrstu sýn liggja nokkuð beint við að fella skilnað að borði og sæng úr lögum. Ef fólk hættir að vilja vera í hjú- skap geti ríkið bara treyst því til að meta það sjálft án þess að bæta þessum millileik inn í ferlið,“ sagði Andrés. Hann vill lækka kosningaaldur Árið 2017 fór þingmaðurinn fram á lækk- un kosningaaldurs með frumvarpi, en þar tók Andrés fram að aldursmörk kosningar- réttar í sveitarstjórnarkosningum yrði við 16 ára aldur í stað 18. Með slíkri breytingu myndu þá hátt í níu þúsund manns hafa áhrif á samfélagið sem njóta annars ekki þessara grundvallarréttinda lýðræðis- ins að óbreyttum lögum. Frumvarpið var jafnframt lagt fram sem lausn við dræmri og dvínandi þátttöku ungs fólks í kosning- um til löggjafarþinga og sveitarstjórna. Það valdi áhyggjum af framtíð lýðræðis, eins og Andrés sagði. Hann er kjarnafjölskyldumaður Andrés er kvæntur Rúnu Vig dísi Guðmars- dótt ur, ráðgjafa hjá RANNÍS og fyrrverandi starfsmanni hjá framkvæmdastjórn ESB. Saman eiga þau tvö börn, soninn Halldór og dótturina Rögnu. Hann elskar Pokémon Andrés er gífurlega virkur á samfélagsmiðl- um sínum og hefur í ófá skipti deilt áhuga sínum á hinu stórvinsæla fyrirbæri frá Jap- an sem kallast Pokémon. Andrés var virkur í leit að slíkum dýrum þegar símaleikurinn Pokémon Go tröllreið öllu hér um árið. Það hefur ekki farið fram hjá hörðustu fylgj- endum Andrésar að hann er sérstaklega elskur að letidýrinu Snorlax. n 10 ástæður fyrir ágæti Andrésar Inga n Hugar að heilsu og umhverfi n Elskar frímerki og Pokémon n Dáður á samfélagsmiðlum A ndrés Ingi Jónsson þingmaður hefur töluvert verið í brennidepli á dögunum eftir að hafa sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna. Ástæða hans var óánægja með stjórnarsamstarf Vinstri grænna við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknar- flokkinn. Á samfélagsmiðlum og víða hefur fólk keppst við að hrósa Andrési fyrir að standa við hugsjónir sínar, að vera „prinsipp maður,“ eins og hann hefur verið kallaður af sín- um fylgjendum og fleirum. Þetta er fjarri því að vera í fyrsta sinn og hefur þingmaður- inn ratað títt í fjölmiðla þar sem reglulegt mynstur má sjá. Andrés Ingi hefur, ásamt Rósu Björk Brynjólfsdóttur, verið andsnúinn núverandi stjórnarsamstarfi VG við framannefnda flokka. Eftir úrsögnina hefur ríkisstjórnin 34 þingmenn af 63 á Alþingi og mun Andrés sitja sem óháður þingmaður út kjörtímabilið. En hver er þessi maður? Hvaða prinsipp eiga hér við? Rennum aðeins yfir þau og skoðum hvað gerir uppskrift að fyrirmyndartengdasyni. Þetta eru tíu ástæður fyrir því af hverju almenningur elskar Andrés Inga. „Ég vildi að það væru svona 10 eintök í viðbót af Andrési Inga á þingi – Eyrún Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur „Það er enn til fólk á þingi sem man hvers vegna það byrjaði í pólitík – Guðmundur Hörður, vefstjóri og fyrrverandi lögregluþjónn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.