Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Page 54
54 FÓKUS 29. nóvember H elena Reynisdóttir hefur á skömmum tíma skap- að sér nafn fyrir fallega myndsköpun en hún hélt sína fyrstu sýningu 17 ára göm- ul. Sýninguna nefndi hún Ekki er allt sem sýnist, og voru verkin af mörgum þjóðþekktum íslensk- um leikurum. Hugmyndina seg- ir hún hafa verið þá að fólk leiki gjarnan mörg hlutverk og sýni ekki endilega alltaf sinn innri mann. Ári síðar hélt Helena svo aðra sýningu undir yfirskrift- inni Umhverfa/Aroundness þar sem hún skoðaði andlit frá ólík- um sjónarhornum. Þriðja sýn- ingin leit svo dagsins ljós ári síðar á kaffihúsinu Energia og fékk hún heitið Fersk fegurð en þar fjallaði Helena um ferskleika og fegurð vatnsins. „Ég hélt stóra yfirlitssýningu á verkum mínum í Safnahúsinu á Akranesi sem fékk mikla athygli en ég útskrifaðist af myndlist- arbraut í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ sama ár. Ég fór svo beint í förðunarnám hjá Reykja- vík Makeup School og útskrif- aðist þaðan með hæstu einkunn í beauty-förðun. Næsta ár fór svo í mikið af förðunarverkefnum og einstaka teiknipöntunum. Árið 2015 komst ég svo inn í drauma- námið mitt í myndlistarskóla í Stokkhólmi og flutti þangað. Tveimur árum síðar útskrifaðist ég úr náminu við Konstskolan Basis og flutti í kjölfarið aftur til Íslands þar sem ég hóf nám í listfræði við Háskóla Íslands. Nú í sumar komst ég svo í skiptinám við Humboldt-háskólann í Berlín og bý þar núna. Á sama tíma fékk ég stærsta verkefni mitt til þessa sem var að teikna stóra mynd í raunsæisstílnum mínum fyrir Hótel Geysi og hangir hún nú þar í forsalnum á hótelinu. Þetta verk efni var eitt það skemmtileg- asta og mest gefandi verkefni sem ég hef tekið að mér. Forsagan er sú að í byrjun árs fékk ég skilaboð frá eigendum Hótel Geysis þar sem þeir sögðu mér frá verkefninu og að þeir vildu endilega fá mig til að taka það að mér. Þau höfðu þá fylgst með mínum listaferli í mörg ár og fannst ég akkúrat vera sá lista- maður sem þau höfðu í huga. Þau buðu mér að koma og skoða rýmið, en á þessum tíma stóð yfir mikil endurbygging á hótelinu. Ég samþykkti og byrjaði í kjölfarið að plana og undirbúa mig. Verk- ið tók þrjá mánuði í vinnslu enda mjög stórt í sniðum eða um 1,7 metrar sinnum 1,5 metrar. Þetta er mynd af eigendum hótelsins. Ég eyddi miklum tíma í smáatriði því mig langaði að fanga persónu- einkennin eins vel og mögulegt var. Í byrjun ágúst var verkið flutt úr Reykjavík upp á Hótel Geysi og hangir það nú í forsalnum, þegar komið er í anddyri hótelsins.“ Alltaf verið ákveðin hugleiðsla Helena segir myndirnar henn- ar einkennast af raunsæjum stíl og yfirleitt mjög stórar í sniðum. „Þetta eru oftast portrait-teikn- ingar í tveggja metra hæð. Ég legg mikið upp úr því að ná tilfinningu og persónueinkennum mann- eskjunnar sem ég er að teikna, þess vegna vil ég aldrei „fegra“ andlitin, ef svo er hægt að segja. Þegar ég segi fegra á ég við að ég vil ekki breyta neinu við and- litið svo það passi inn í einhverja samfélagslega fegurðarstaðla. Ef manneskjan er með broslínur, hrukkur eða ósimmetrískt and- lit vil ég alls ekki breyta því enda myndi maður þá tapa persónu- einkennum, sem eru einmitt það sem gerir manneskjurnar falleg- astar.“ Helena teiknaði fyrstu teikn- inguna sína í þessum raun- veruleikastíl einungis tólf ára gömul. Hún fann strax að stíll- inn átti vel við hana enda er hún enn við sömu iðju, þrettán árum síðar. „Ég og vinkona mín byrjuð- um á því að hittast eftir skóla til að teikna og gerðum það tímun- um saman. Það skemmtileg- asta var að ég fann fljótt hvernig teiknihæfileikar mínir þróuðust og bættust við þetta. Þarna varð ekki aftur snúið. Ég myndi segja að ég hafi byrjað að teikna vegna þess að ég fann strax hvað ég hafði mikinn áhuga og hann hef- ur haldist óbreyttur síðan. Teikn- ingin er minn helsti miðill og hefur í raun alltaf verið ákveðin hugleiðsla fyrir mig.“ Spurð hvað sé framundan seg- ist Helena alltaf hafa annan fót- inn á Íslandi þótt auðvelt sé að njóta lífsins í Berlín. „Berlín er al- gjör draumur að búa í, sérstak- lega fyrir listafólk. Ég stefni auð- vitað að því að klára skiptinámið mitt hér og sjá svo bara hvert líf- ið leiðir mig næst. Ég reyni alltaf að heimsækja Ísland reglulega og kem auðvitað heim um jólin, en ég er rosalega spennt að hitta fjöl- skyldu og vini.“ n Áhugasamir geta fylgst með Helenu bæði á Facebook og Instagram undir notendanafn- inu, helenareynisart. „Ófullkomleikinn það fallegasta“ n Listakonan Helena Reynisdóttir hélt fyrstu sýninguna 17 ára n Myndlistin ákveðin hugleiðsla Íris Hauksdóttir iris@dv.is Teikning af Ingvari E. Sigurðssyni, frá fyrstu einkasýningu Helenu „Ekki er allt sem sýnist“ árið 2011 Verk Helenu, Þetta er ekki Jón, hékk fyrir framan Kringluna en það var valið af fyrstu einkasýningu hennar árið 2013 fyrir götusýningu Arion banka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.