Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2019, Qupperneq 70
70 FÓKUS 29. nóvember
YFIRHEYRSLAN
Heiðar
Sumarliðason
Hvert var þitt fyrsta starf?
Ég byrjaði að bera út DV þegar ég var 10 eða 11 ára gamall. Það
hafði í för með sér að ég átti alltaf vasapeninga, gat því keypt
mér snúð og kók á hverjum degi, enda var ég orðinn vel spikaður
þrettán ára. Ég náði því af mér tveimur árum síðar og hef vart
borðað sætindi síðan. Þetta var nota bene áður en offitufar-
aldurinn reið yfir börnin okkar, það voru kannski bara fjórir feitir í
árganginum. Hef því átt betri ár en 8. og 9. bekk.
Hvar líður þér best?
Heima í faðmi fjölskyldunnar. Vil helst ekki
fara út úr húsi eftir klukkan fjögur.
Hvað óttastu mest?
Að missa fjölskylduna.
Hvert er þitt mesta afrek?
Að hafa fengið konuna mína til að giftast
mér. Ef þú hefðir spurt mig þegar ég var sem
feitastur árið 1993, þá hefði ég giskað á að
ég yrði hreinn sveinn að eilífu.
Hver er leiðinlegasta hljómsveit í
heimi?
Ég skipti alltaf um stöð þegar eitthvað með
Muse fer í loftið. Svo þoli ég ekki næntís harð-
lífishljómsveitir á borð við Creed.
Hver er frægasti einstaklingurinn í síma-
skránni þinni?
Það hlýtur að vera Jóhannes Haukur Jóhannesson.
Ég er svona skáumboðsmaður fyrir hann, eða ráð-
gjafi. Við erum með samning, ég held honum niðri
á jörðinni og hann reynir að hífa mig upp.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Man ekki eftir neinu í svipinn. Hins vegar hef ég
tekið eftir að fólk sem er sífellt að skipta sér að
öðrum og „ráðleggja“ er oft fólkið sem minnst
hefur efni á því. Taki það til sín sem við á.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Ég er ótrúlega liðtækur í húsverkunum, þarf að
vera það, því ekki þéna ég vel. En það er þó eitt sem
ég þoli ekki tengt húsverkum og það er að fara með
dót í Sorpu. Það er fátt sem mig hryllir jafn mikið við.
Hver er fyrirmynd þín í lífinu?
David Brent.
Besta bíómynd allra tíma?
Pulp Fiction eða Empire Strikes Back. Get ekki gert upp á milli
þeirra.
En sú versta?
Ég man hvað The Matrix-„framhöldin“ ollu mér miklum vonbrigð-
um.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
Þegar Bragi Árnason, vinur minn, svarar mér með „mmm“ á
Messenger. Hvað þýðir það?! Ég svara honum núna alltaf bara
með „aaa.“ Krókur á móti bragði.
Hverjir eru mannkostir þínir?
Óbilandi réttlætiskennd.
En lestir?
Óbilandi réttlætiskennd. Hann Snæbjörn, meðstjórnandi minn
í útvarpsþættinum Eldi og brennisteini, sagði eitt sinn við mig:
„Heiðar, þú værir búinn að ná miklu lengra í lífinu ef þú bara
kynnir að halda kjafti.“ Það er auðvitað eitthvað til í því, en svo
er aftur á móti spurning hvað maður er tilbúinn að láta bjóða sér
upp.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Hugarró.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Að gerast leikskáld og leikstjóri. Það er að mestu niðurlægjandi
og auðmýkjandi, en þegar það skemmtilegt er það svo frábært
að maður verður að fá meira. Þetta er eins konar fíkn.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er að skrifa barnaleikritið Tréð í samstarfi við Söru Marti Guð-
mundsdóttur og Agnesi Wild sem verður frumsýnt á Listahátíð
Reykjavíkur í vor. Síðan eru ýmis önnur leikhús-, kvikmynda- og
sjónvarpsverkefni á mismunandi stigum þróunar.
Heiðar Sumarliðason er handritshöfundur, framleiðandi og leikstjóri
sem hefur verið áberandi síðastliðið ár á útvarpsstöðinni X-ið með af-
þreyingarþáttinn Stjörnubíó. Nú um helgina fer Heiðar af stað með nýjan
útvarpsþátt, Eldur og brennisteinn, ásamt Snæbirni Brynjarssyni en þó
heldur Heiðar sínu fyrra hólfi með framannefndum þætti. Heiðar er tekinn í
yfirheyrslu DV.
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N