Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 10
10 27. september 2019FRÉTTIR
T
vö ár eru nú síðan Arna
Bára Karlsdóttir, fyrirsæta
flutti frá Íslandi en hún býr
í dag á Spáni ásamt eigin-
manni sínum, Heiðari Árnasyni,
og þremur börnum. Arna unir
hag sínum vel og segir að Ísland
hafi aldrei verið rétti staðurinn
fyrir sig.
Tildrög þess að Arna flutti frá
Íslandi var barátta hennar við
Fæðingarorlofssjóð, en hún á þrjá
unga syni með stuttu millibili.
„Við fluttum fyrst til Svíþjóðar í
júní árið 2017 en þá var ég alveg
komin með nóg af Fæðingaror-
lofssjóði Íslands sem vildi bók-
staflega ekkert fyrir mig gera. Ég
hafði þá sótt síendurtekið um
orlof og látið bókarann minn af-
henda þeim öll gögn sem þurfti en
það var ekkert hlustað. Mjög löng
og skrítin saga en í grunninn bara
fáránleg því ég átti svo sannar-
lega rétt á fæðingarorlofi þar sem
ég hafði starfað sem launþegi
hjá sama fyrirtæki í fjögur ár. Líf-
ið í Svíþjóð var æðislega ljúft, við
bjuggum þar í smábæ sem var
algjör paradís. Húsið okkar var
risastórt en það eina sem vantaði
var nánd við okkar nánustu fjöl-
skyldu. Þar sem stór hluti af fjöl-
skyldunni minni og mannsins
míns er búsett á suðausturhluta
Spánar ákváðum við að endingu
að flytja hingað út og sjáum ekki
eftir því. Lífið hér er æðislegt út í
gegn, allir svo rólegir og koma fal-
lega fram. Ég elska hvað fólkið hér
er hjálpsamt og vill allt fyrir mann
gera. Svo er líka rosalega ódýrt að
lifa heilsusamlegu lífi hér og njóta
þess að vera til.“
Spurð hvernig drengjunum
hafi gengið að aðlagast lífi í nýju
landi segir Arna þá blómstra hver
á sinn hátt. „Þeir eru á aldrinum
tveggja til sjö ára og hafa á sinni
stuttu ævi flutt til þriggja landa.
Þeir eru því vanir flakki og hafa
aðlagast rosalega hratt. Ég hef lagt
ríka áherslu á að ala þá upp sem
sjálfstæða og sterka einstaklinga.
Ég vil síður hafa þá of mömmu-
og pabbasjúka þótt þeir elski
okkur auðvitað út af lífinu, og við
þá. En þeir hafa það æðislegt hér,
leikskólinn er frábær og skólinn
er mjög öruggur. Það má enginn
sækja börnin nema eftir skóla-
tíma og fólk er beðið um að fram-
vísa skilríkjum ef starfsfólkið
þekkir ekki til. Mér finnst þetta já-
kvætt fyrirkomulag og mjög ólíkt
því sem tíðkast á Íslandi.“
Á haus í hjálparstarfi
En þótt lífið sé ljúft í sólinni
dundu nýverið yfir miklar hörm-
ungar því úrhellisrigning og flóð
hafa leikið íbúa Costa Blanca-
strandlengjunnar grátt. Hamfar-
irnar hafa valdið gríðarlegu tjóni
þar sem sex eru látnir og þús-
undir íbúa svæðisins hafa þurft
að yfir gefa heimili sín. Arna Bára
hefur ekki látið sitt eftir liggja og
vinnur í dag hörðum höndum við
að hjálpa þeim sem orðið hafa
fyrir miklum skaða. „Ég er búin
að vera á haus í hjálparstarfinu
hér því mig langar að gera góða
hluti, en ástandið hér er virki-
lega slæmt. Yfir níu þúsund hús
eru ónýt og yfir 2.700 bílar fljóta
um í einum hrærigraut. Á þessari
stundu hafa sex manneskjur
fundist látnar og ef að líkum læt-
ur munu fleiri finnast á næstu
dögum.
Þetta er mesta flóð síðan mæl-
ingar hófust og hafa meðal annars
þrjár ár flætt yfir bakka sína
og stíflugarðar brostið. Borgin
„Ástandið skelfilegra en
fólk getur ímyndað sér“
n Úrhelli leikur íbúa suðausturhluta Spánar grátt
n Sex hafa fundist látnir n Arna Bára hjálpar Spánverjum í neyð
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is „Ég get ekki
þakkað nægi-
lega fyrir að hafa
sloppið ómeidd, þá
finnur maður þörfina
til að hjálpa öðrum.